Morgunn


Morgunn - 01.06.1932, Page 123

Morgunn - 01.06.1932, Page 123
MORGUNN 117 er sá, að ef vér gerum hann að algildum mælikvarða, hlýtur oss að finnast fátt um flest skáld veraldarinnar. Almennur ^ar næs^ hlýtur sú spurning að verða veruleiki. fyrir oss, hvort þau fyrirbrigði, sem nefnd hafa verið hér að framan, muni vera svo langt ,,utan við hinn almenna veruleika“. Eg held, að slík staðhæfing stafi af of litlum kynnum af ís- lenzkri þjóð, og — það sem er furðulegra um íslenzkan fræðimann — of litlum kynnum af íslenzkum bókum, eða of fljótfærnislegri athugun þeirra. Eg ætla að taka tvö söfn, að eins sem dæmi. Úr nógu er annars að moða. Islenzkur fræðimaður, sem er óvenjulega kunnugur alþýðufólki, tekur sér fyrir hendur að safna þeim sögum, sem menn segja hverir öðrum — aðallega í einum landsfjórðungi. Safnið er afar-mikið, og af því hefir hann komið út á prenti rúmlega 600 stórum blað- síðum. Um hvað eru nú þessar sögur? Yfir 500 blað- síður eru um þau fyrirbrigði, sem ritdómarinn telur vera ,,utan við hinn almenna veruleika“. Prófessor Sigurður Nordal og Þórbergur Þórðarson taka sér fyrir hendur ,,að bjarga frá gleymsku og afbökun gömlum og nýjum sögum, sem ganga manna á milli, og koma fyrir al- menningssjónir ýmsum fróðleik, sem grafinn er í hand- rita söfnum“. Þrjú hefti af riti þeirra, Gráskinnu, liggja fyrir framan mig. Þau eru samtals 288 blaðsíður. Um hvað eru nú sögur þeirra? Hvað er það, sem menn hafa sagt þessum lærdómsmönnum? Á 176 blaðsíðum eru þessi fyrirbrigði, sem eiga að liggja „utan við hinn al- menna verkuleik“ — að ótöldum álfasögunum. Eg er ekki að halda því fram, að allar þessar frásagnir séu sannsögulegar. En mér þykir í meira lagi ólíklegt, að þær séu ekki sprottnar upp af einhverri reynslu, ein- hverjum veruleik. Mér þykir það þeim mun ólíklegra, sem eg hefi sjálfur um mörg ár haft náin kynni af sann- orðum og áreiðanlegum mönnum, körlum og konum, sem eru sannfærðir um, að þeir hafi orðið fyrir svip- aðri eða sams konar reynslu sem þeirri, er frá er skýrt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.