Morgunn


Morgunn - 01.12.1948, Side 13

Morgunn - 01.12.1948, Side 13
MORGUNN 159 hafa rannsakað fyrirbrigði þessarar tegundar, þykir þó tíbetanska bókin öllu athyglisverðari og merkilegri, fyrst °g fremst vegna þess, að margt af því, sem þar er hald- ið fram um viðskilnað manna við þetta líf, er í fullu sam- rasmi við niðurstöður sálrannsóknamanna vorra tíma. 1 bók þessari er sviplíkama mannsins lýst mjög nákvæm- iega, tekið fram að hann sé búinn sams konar skyntækj- Um og sá jarðneski, en starfsorka hans sé fullkomnari. Þá er þar og að finna frásagnir um aðferðir til þess að létta mönnum viðskilnaðinn og beina hugum þeirra að ijósinu í framsýn, ljósi eilifðarheimkynnanna. Hinn mikli vitranamaður og postuli kristinnar trúar, Páll frá Tarsus, kemst svo að orði í einu bréfa sinna: ,,Ef háttúrlegur líkami er til, þá er og til andlegur líkami“. Svo sannfærður virðist hann hafa verið um þetta. Orðin hamfari og hamfarir, sem víða kemur fyrir í fornritum vorum, bendir mjög til þess, að forfeður vorir hafi þekkt fyrirbrigði þetta og kunnað full skil á því, sem gerðist, en hamfari virðist sá maður hafa verið nefndur, sem gseti yfirgefið jarðneskan líkama sinn, farið í sviplíkama sínum til fjarlægra staða og skynjað þar umhverfi og riðburði, meðan búkurinn lá sofinn á sínum stað. Meðal hinna frumstæðustu manna nútímans gætir sann- fasringarinnar um það mjög ákveðið, að manninum sé unnt nð yfirgefa jarðneskan líkama sinn um stundarsakir, ferð- nst til fjarlægra staða í öðru líkamsgervi, og sjá þar og greina verðandi viðburði. Ýmsir kunna að vísu að benda a> að slíkum sögnum um getu töframanna þeirra sé lítt nð treysta sökum þess, hve mjög gætir hjátrúar og hind- hrvitna í trúarlífshugmyndum þeirra og skoðunum á til- verunni. Þetta er vitanlega rétt, en eigi að síður er það staðreynd, að ýmsir erlendir menn, sem dvalið hafa lang- óvölum meðal frumstæðra kynflokka, hafa sannreynt, að ynasum hinna svonefndu töframanna þeirra hefur tekizt hetta. Frá mörgum vottfestum og sannanatryggðum frá- s°gnum um slíkt væri hægt að segja, ef tími væri til.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.