Morgunn - 01.12.1948, Blaðsíða 22
168
MORGUNN
veginn varð misfellulaust, en þær ferðuðust víða um
Bandaríkin og Evrópu, og rannsóknir nokkurra frægra
vísindamanna staðfestu, að þær voru merkilegum miðils-
hæfileikum búnar.
Þær Fox-systurnar tvær skildu aldrei þýðing þess, sem
hér hafði gerzt, þær skildu aldrei gildi þess máls, sem
æðri máttarvöld höfðu notað þær til að hrinda af stað.
Hæfileikar þeirra voru mjög notaðir af forvitnu fólki,
sem leitaði á fund þeirra til að sækjast eftir nýstár-
legri dægradvöl, og þær virðast lítinn áhuga hafa haft
fyrir því, að fyrirbrigðin væru tekin til alvarlegrar rann-
sóknar, og enn minni skilning á því, að hér var hreyfing
að fæðast, sem stórfelld áhrif átti eftir að hafa á lífs-
skoðun milljóna manna. Þær grunaði sízt, að hér væri
upphaf þeirra atburða að verða, sem síðar áttu eftir að
ríða að fullu trú margra frægra vísindamanna á efnis-
hyggjuvisindin sjálf.
En þetta mál var ekki lagt nema að litlu leyti í þeirra
hendur, því að þegar fáum árum síðar fór hver miðillinn
að koma fram af öðrum, sem slík stórmerki gerðust hjá,
að sumir vísindamannanna fóru að ókyrrast. Sögurnar
voru svo vel vottfestar, fyrirbrigðin að dómi dómbærra
manna svo stórkostleg, að sumum vísindamönnunum þótti
ekki lengur til setu boðið. Og eftir nokkurn tíma var ný
vísindagrein fædd, sálarrannsóknir nútímans voru orðn-
ar tU.
Vér kristnir menn ættum að kunna að meta vegsemd
píslarvættisins, svo mjög ber á fórnarblóði píslarvottanna
á fyrstu öldum kirkjunnar. Píslarvættið varð einnig hlut-
skipti margra þeirra, sem komu nálægt spíriitismanum
lengi fram eftir árum, og er raunar víða enn.
Vitanlega urðu miðlamir margir píslarvottar, meðan
þekkingin var enn í fyrstu bernsku og hleypidómarnir
máttugastir. Það báru ekki allir miðlar gæfu til þess að
lenda í höndum annarra eins manna og Indriði Indriða-
son undir stjórn þeirra prófessors Haralds Níelssonar og