Kylfingur - 01.05.2004, Síða 18
CjOI<FKU)BBUR REYKJAVÍKUR 70 ÁRA
ÖSKJUHU'ÐARÁRIN
I SAMBYLIVIÐ
KARTÖFLUBÆNDUR
Þegar hér var komið sögu var hugur hinnar dugmiklu stjómar Golfklúbbs íslands allur við nýja golfvöllinn á Bústaðaháls-
inum og klúbbhús sem þar átti að rísa. Varla hafði blekið þornað á samningi þeim sem Golflklúbbur Islands gerði við bæjar-
stjómina í Reykjavík um leigu á 37,3 hektara Iandi, fyrr en farið var að girða landið, ræsa mýrar og rækta um það bil 13
hektara. Markmiðið hafði verið að leika á vellinum strax vorið 1937. Það gekk ekki eftir. Þegar talað er um golfvöllinn á Bú-
staðahálsinum er yfirleitt talað um Öskjuhlíðarvöllinn, nafn sem festist við hann. Öskjuhlíðin sjálf var aðeins í augsýn. Land-
ið sem klúbburinn fékk var á Bústaðahálsi sunnan við Kringlumýri. Þekktar byggingar sem nú eru á því svæði sem Golf-
klúbbur íslands hafði til umráða eru Borgarleikhúsið, hluti af Kringlunni, Morgunblaðshúsið, Verslunarskóli íslands og Há-
skólinn í Reykjavík.
Einn af forystumönnum klúbbsins og formaður byggingar-
nefndar hans, Sigmundur Halldórsson arkitekt, teiknaði golf-
skálann, sem var mjög myndarlegt hús og vom einhveijir á því
að þama væri verið að byggja glæsilegasta klúbbhús á Norður-
löndum. Rökin fyrir byggingu svo myndarlegs golfskála vom
þau að óhjákvæmilegt væri að hafa upphitað klúbbhús með
nauðsynlegum þægindum þar sem félagar gætu leitað skjóls
þegar misjafnt veður væri, gætu geymt áhöld sín og komið sam-
an eftir kappleiki. Án klúbbhúss myndu æfingar og kappleikir
minnka mikið þar sem gert var ráð fyrir að í klúbbhúsinu fæm
fram æfingar og kennsla og afleiðingamar yrðu þær að félaga-
tal klúbbsins myndi smáijara út.
Átök urðu um þetta í stjóm klúbbsins og vildu einstaka
stjómarmenn frekar leggja áherslu á að peningamir fæm í gerð
vallarins heldur en golfskálann. Var boðað til aukaaðalfundar
þar sem samþykkt var að halda áætlun um gerð hússins sem
Golfskáli rísinn á Bústaðahálsi. Húsið þótti eitt hið glœsilegasta í Reykjavík þegar byggingu þess var lok-
ið og var um tíma einn vinsœlasti samkomustaður borgarinnar.
Friðrik krónprins og Ingrid krón-
prinsessa voru heiðursgestir við
vígslu golfvallarins 1. ágúst 1938.
Myndin er tekin í klúbbhúsinu.
16 KYLFINGUR