Kylfingur - 01.05.2004, Page 90

Kylfingur - 01.05.2004, Page 90
vegum GSÍ, sem ég og gerði. Var góð aðsókn að þessum nám- skeiðum og útskrifuðust fyrstu héraðsdómaramir 9. maí 1982. I kringum 1990 fórum við Kristján að halda landsdómaranám- skeið og 1994 fórum við til St. Andrews á námskeið og tókum þar alþjóðlegt dómarapróf. Rristján hefur alla tíð þýtt golfreglumar og unnið ötult og gott starf á þeim vettvangi auk þess að vera einn helsti dómari lands- ins.“ Eitthvað hejurþú verið að spila golf meðfram félags- og dóm- arastörfum? „Ég hafði verið að spila allmikið golf í Svíþjóð og tekið tals- vert þátt í mótum en spilaði mun rneira með fjölskyldunni. Þeg- ar heim kom spilaði ég minna og tók ekki mikið þátt í mótum. Það kom í hlut Sólveigar dóttur minnar að halda uppi heiðri fjöl- skyldunnar í keppnum, en hún varð meðal annars þrívegis Is- landsmeistari í golfi. Hún flutti síðan til Portúgals og leikur í dag golf aðeins einstöku sinnum. Strákamir mínir tveir Ami og Heimir vom mikið í golfi á bemsku- og unglingsár- um, sérstaklega Heimir, en ýmsar kringumstæður svo sem nám og stofnun fjölskyldu gerði það að verkum að þeir hættu að mestu golfiðkun. Þó er Ami nú farinn að spila aftur og elsta dóttir Heimis, Drífa Sóley sem er 9 ára, er komin af stað og ekki þykir mér ólrklegt að hún eigi einhvem tíma eftir að draga föður sinn með sér á völlinn.“ Almenn þekking á reglum hefur aukist Þekking á golfreglum þegar þú kemur heim, var hún almenn eða var skoiiur á þekkingu ? „Það verður að segjast eins og er að á þessum árum var golfregluþekking hins almenna kylfings frekar lítil. Það hefur síðan breyst mikið, að hluta til vegna þess að reglumar em orðnar mun aðgengilegri og einnig vegna þess að nú em haldin námsskeið fyrir byrjendur þar sem farið er í golfreglurnar. I nýju reglubókinni er finna umtalsverðar breytingar sem vom gerðar um síðustu áramót og það sem er kannski einna mikilsverðast er að reglumar em ekki á eins flóknu máli og þær voru. Búið er að liðka mikið til í málfarinu á enskunni og sömuleiðis hefur íslenska þýðingin tekist mjög vel og ættu allir að kynna sé nýju reglubókina.“ Fyrir mig og fleiri hefur þessi mikli enski doðrantur sem þú ert yfirleitt með ífarteskinu verið nánast ógn- vœnlegur? „Það er nú svo að í reglubókinni þá fer mikið af plássinu undir aðra hluti en golfreglumar sjálfar. Eins og sjá má á hinni ágætu íslensku útgáfu þá eru reglumar ekki nema rúmlega helmingur bókarinnar. Hitt em viðaukar um staðarreglur, sýnishom af þeim og um keppnisskilmála, hönnun kylfa og boltann. Síðast em svo reglur um áhugamannaréttindi. Allar reglumar em þýddar beint úr ensku. f stóm ensku úrskurðabókinni er að finna allar golfregl- umar og alla úrskurði sem kveðnir hafa verið upp um atriði í hverri reglu. Það er alveg nauðsynlegt fyrir okkur dómarana að hafa hana við hendina, en fyrir hinn almenna kylfing er allt í ís- lensku reglubókinni sem hann þarf að vita. Staðarreglur em yfir- leitt vel kynntar í klúbbunum sjálfum.“ Það eru aldrei allir á eitt sáttir um reglur. Reglur í golfi er engin undantekning og jafnvel eru þœr meira umdeildar heldur en flestar leikreglur í íþróttum. Vúja margir segja að þœr séu smásmugulegar og ósanngjarnar? „Ég get ekki sagt að ég sé alltaf sammála öllu sem stendur í reglubókinni, en það er nú tilfellið að þessar reglur eru vel út- hugsaðar og í raun mjög réttlátar þegar að er gáð. Þær em alltaf í endurskoðun og er starfandi nefnd sem gerir ekkert annað en að fara í gegnum golfreglur. Breytingamar sem gerðar vom um síð- ustu áramót voru ánægjulegar og gera reglumar skýrari. Það er nú einu sinni svo að í hita og þunga leiksins þá em ekki allir á eitt sáttir um úrskurð dómara. Þetta á við um flestar íþrótta- greinar. Það er nú samt með golfreglumar að nánast aldrei er efast um réttmæti dóma sem segir okkur hversu skýrar og afdráttarlausar þær em. Það er svo staðreynd að hinn almenni kylfingur fylgist ekki nógu vel með breytingum sem á reglunum verða. Tökum sem dæmi breytingu sem kom fyrir ijómm ámm um vítalausa lausn frá gmnd í aðgerð, frá óhreyfanlegri hindrun og aðkomuvatni. Það var þannig að þú máttir taka lausn með því að mæla kylfu- lengd frá trufluninni og láta boltann falla vítislaust innan einnar kylfulengdar. Þetta vita flestir. Breytingin sem ekki allir virðast hafa áttað sig á er að nú mátt þú fá lausn með því að ákveða næsta stað fyrir lausn. Þú ferð á næsta stað, ekki nær holu, þar sem þú ert laus við tmflunina og stillir þér þar upp með þá kylfu sem þú hyggst nota, taka þér stöðu og leggja kylfuhausinn á jörð- ina. Það er næsti staður fyrir lausn. Síðan máttu taka eina kylfu- lengd, dræver ef því er að skipta, og mæla kylfulengd frá þeim stað og láta þá fyrst boltann falla innan þessarrar kylfulengdar. Síðan má svo boltinn rúlla allt að tvær kylfulengdir eftir að hann snertir jörðina, þó ekki nær holu en næsti staður fyrir lausn. Þama er kylfingurinn því að fá mun rneira pláss til að athafna sig en ella. Þetta er aðeins ein breyting af mörgum sem gerðar hafa verið á undanfömum árum og því miður virðast mai'gir ekki hafa áttað sig fyllilega á breytingunum. Athyglisverðasta breytingin í ár er á siðareglunum. Það er búið víkka þær og stækka verulega. Þessar reglur vom áður tvær blað- síður í reglubókinni en em nú fjórar blaðsíður. í lyrsta skipti er búið að setja inn refsingar fyrir brot á siðareglum. Ef nú leik- maður skeytir í engu um siðareglur meðan á leik stendur og telst brotlegur þá fer það fyrir mótanefnd hvort beita skuli refsingu Þorsteinn Svörfuður hafði nóg að gera á meistaramóti GR semfyrr. Hann þuifti m.a. aðfylgja þeim Jóhannesi Kolbeinssyni og Ellerti Magnasyni í bráðabana um sigur í 1. flokki þar sem Ellert hafði betur. 88 KYLFINGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Kylfingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.