Kylfingur - 01.05.2004, Side 75
Stefán Svavarsson,
Sagan í tölum
Því hefur verið haldið fram að stundum sé áreiðanlegri upplýsingar að finna í bókhaldstölum heldur en í öðrum
heimildum. Það átti a.m.k. við um bresku hefðarfrúna sem andmælti því forðum daga að hún hefði eignast son
á laun, enda þótti það hneisa, en hins vegar komst upp um málið vegna þess að nákvæmur bókhaldari hennar
skráði í bókhaldsbækur útgjöld vegna sonarins. Hvað sem þessu líður þá getur verið fróðlegt að fara yfir tölur í
safni klúbbsins og rýna í þær um stundarsakir. Skrifarinn ætlaði sér raunar að komast yfir 70 ársreikninga
klúbbsins en varð því miður að sætta sig við að finna aðeins reikningsskil klúbbsins fyrir síðastliðin þrjátíu ár.
Kannski leynast eldri reikningar í skjalasafni klúbbsins en þeir komu ekki í leitimar í fyrstu atrennu.
Engum dylst, sem með hefur fylgst, að
gífurleg aukning hefur orðið í fjölda
kylfinga á síðustu ámm. í meðfylgjandi
töflu kemur fram að fjöldi félaga í GR var
um 350 á árinu 1974 en hann var orðinn
tæplega 2000 í árslok 2003. Taflan sýnir
auk þess að félagafjöldinn eykst hægt og
bítandi allt tímabilið en tvisvar varð hlut-
fallslega meiri aukning en á öðrum tím-
um. Smákippur kom í fjölda félaga undir
lok níunda áratugarins en síðan tvöfaldað-
ist fjöldinn á nokkrum árum undir lok
tíunda áratugarins, þegar félögum í
klúbbnum fjölgaði úr 1000 á árinu 1998 í
nærfellt 2000 fimm ámm síðar.
Stærsti tekjuliður klúbbsins hefur ávallt
verið félagsgjöld og nærfellt allt tímabilið
em félagsgjöldin rúmlega helmingur allra
tekna. Hefur þá litlu skipt hversu há fé-
lagsgjöldin em að raungildi. Þetta kemur
fram í næstu tveimur myndum.
Önnur sýnir meðalfélagsgjöld verðbætt
fyrir áhrifum almennra verðlagsbreytinga
en frá upphafi til loka tímabilsins, þ.e. frá
miðju árinu 1974 til miðs árs 2003, 240-
faldaðist verðlag.
Hin myndin sýnir hvemig tekjur
klúbbsins skiptast eftir tegundum og em
allar ljárhæðir á verðlagi ársins 2003. Af
myndunum má einnig ráða að tekjur vom
að raungildi 12 sinnum hærri í lok tíma-
bilsins en í upphafi þess, en á sama tíma 6
faldaðist félagafjöldinn. Það sýnir vel
hversu mikil aukning hefur orðið á starf-
semi klúbbsins.
Greining tekna
160
140
120
100
80
60
40
20
0
■ Félagsgjöld ■ Vallargjöld ■ Kappleikjatekjur
■ Styrkir ■ Auglýsingatekjur ■ Aðrar tekjur
M.kr.
(-jptvað aetðist d evientki cjewu) dvið 1934
* Adolf Hitler lýsir sig foringja (fiihrer) Þýskalands og „hreinsar"
nasistaflokkinn eftir „nótt hinna löngu hnífa".
■ Rauði herinn í Kína hefur „gönguna löngu".
Henry Miller sendir frá sér skáldsöguna Tropic of Cancer.
Dollfuss myrtur eftir vaidaránstilraun nasista í Austurríki.
Robert Graves gefur út skáldsöguna, „Ég, Kládíus".
KYLFINCUR 73