Kylfingur - 01.05.2004, Side 117
aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur 20. nóvember 2003
stækkun Koipunnar er gert ráð fyrir því
að taka æfingasvæðið á Korpunni undir
stækkun vallarins. Af því leiðir svo að
þörf klúbbsins fyrir gott æfingsvæði verð-
ur að mæta annars staðar. Hefur verið tek-
in ákvörðun um að byggja æfingaaðstöðu
klúbbsins upp hér í Grafarholtinu þannig
að klúbburinn reki framvegis aðeins eitt
æfmgasvæði og þá hér í Grafarholti. í
hönnun þess mannvirkis sem brátt mun
n'sa er gert ráð fyrir allt að 70 básum, þar
af um 50 undir þaki. Vegna þessarar
breytingar samþykkti borgin að veita
klúbbnum 35 m.kr. á næstu þremur árum
til viðbótar fyrra framlagi til þess að taka
þátt í kostnaði við uppbyggingu þessa
mannvirkis. Áætlun okkar er sú að mann-
virkið muni fullbúið kosta um 103 m.kr.
Verkið stendur þannig að æfingaskýlið er
fullhannað, eða því sem næst, og grennd-
arkynning, ef ég fer rétt með, stendur yfir
og þess er að vænta að formleg leyfi
byggingaryfirvalda til þess að hefjast
handa fáist í byrjun næsta mánaðar. Ætl-
un okkar er að hefjast þá þegar handa við
verkið þannig að nýtt æfingasvæði GR í
Grafarholti megi taka í notkun á næsta ári,
helst strax í vor. Slíkt væri ekki amaleg
afmælisgjöf til klúbbfélaganna á 70 ára
afmæli klúbbsins sem verður á næsta ári.
Við uppgröft vegna æfingaskýlisins og
bfiastæða í tengslum við það munu falla
til nokkur þúsund rúmmetrar af mold sem
hugmyndin er að nota til þess að bæta
brautir Grafarholtsvallarins. Er hugmynd-
in sú að taka að þessu sinni stóran hluta af
5. og 4. brautinni, þ.e. keyra moldina á til-
tekin svæði þessara brauta og tyrfa síðan
svæðin strax í vor. Af þessu verður von-
andi óveruleg taiflun fyrir leik á vellinum
í upphafi næsta golfárs, en vonandi verð-
ur ávinningurinn til framtíðar verulegur.
Svona framkvæmdir eru reyndar dýrar en
ávinningurinn er mikill og til framtíðar
eins og við sjáum kannski best af breyt-
ingunni sem varð á 3ju brautinni fyrir
tveimur árum.
Góðir fundarmenn
Eg vil að síðustu nota tækifærið til þess
að þakka framkvæmdastjóranum Mar-
geiri Vilhjálmssyni og öllum öðrum
starfsmönnum GR fyrir samstarfið á
starfsárinu sem og starfsmönnum í veit-
ingasölu og kennurum klúbbsins.
Þá vil ég þakka samstjómarmönnum
mínum samstaifið á árinu. Nú ber svo við,
öðru sinni, að þeir gefa allir kost á sér
áfram til starfa þannig að það er a.m.k.
ekki enn tímabært að þakka þeim endan-
lega fyrir góð störf í þágu khibbsins.
/ tengslum við lceland Open 2003 komu hingað til lands fjórír aMnnukylfingar af LPGA-mótaröðinni og iéku 5 holu sýningargolf á Grafar-
holtsvelli með kunnum íslenskum kylfingum. F.v.: Herhorg Amarsdóttir, Carin Koch, Beth Bauer, Ragnhildur Sigurðardóttir, Þórdís Geirsdóttir,
NataUe Gulbis, OlöfMaría Jónsdóttir og Stephanie Louden.
KYLFINGUR II5