Kylfingur - 01.05.2004, Side 123
0 0
9 holur allt jafnt, eins eftir 10 holur, kom
þá sú 11, Pétur Oskar gerði sér þá litið
fyrir og smellti kúlunni beint ofan í bauk-
inn í öðm höggi. Eftir það leit hann ekki
til baka og vann með glæsilegu inná
höggi á 16. holu, smellti sér í fuglafæri á
meðan heimamaðurinn barðist um í
glompu. GR vann frækilegan sigur 3/2,
þar með var það á hreinu að enn og aftur
hafði Golfklúbbur Reykjavíkur sýnt það
og sannað að íslandsmeistaratignin er
þeirra, sama hvort sé leikið í roki eða
logni.
Þeir sem léku fyrir hönd GR að þessu
sinni vom eftirtaldir kylfingar:
Siguijón Amarsson
Kristinn Ámason
Haraldur Heimisson
Pétur Óskar Sigurðsson
Stefán Már Stefánsson
Tryggvi Pétursson
Bjöm Þór Hilmarsson
Birgir Már Vigfússon
Liðstjórinn var hinn sigursæli Stefán
Alec Gunnarsson Ferguson, bflstjóri og
vatnsberi var undirritaður. Nutum við
einnig góðrar hjálpar kennara klúbbsins
Demck Moore. Þökkum við strákunum
fyrir virkilega góða frammistöðu og síð-
ast enn ekki síst, frábæran liðsanda og
samstöðu.
Jón P. Jónsson.
Golf sem ólympíuíþrótt
Golf gæti orðið ein af keppnisgreinunum á Úlympíuleikunum í Pek-
ing árið 2008 eftir rúmlega hundrað ára fjarveru, en mikil umræða
er um það hvort bestu atvinnukylfingar heims eiga að hafa keppnis-
rétt þar eða ekki. Alþjóða ólympíunefndin telur að bestu kylfingar
heims eigi heima á leikunum líkt og alþjóða golfnefndin sem hefur mikin
hug á að fá íþróttina aftur inná Úlympíuleikana.
Hins vegar telja margir fremstu kylfingar heims eins og Ernie Els, Tiger
Woods og fleiri að áhugamenn ættu einungis að hafa keppnisrétt. Fjögur stærstu mót heimsins eru talin þau
virðingamestu í íþróttinni og telja kylfingarnir að Ólympíugull sé það næst besta.
„Golf á að vera stór þáttur í Ólympíuleikunum ég skil ekki hvers vegna íþróttin er ekki löngu komin þangað
inn," sagði Els. „Mér finnst að áhugamenn ættu fyrst að taka þátt og sjá hvernig það virkar, á seinni stigum væri
svo athugandi hvort atvinnumenn ættu heima þar."
Tiger Woods finnst að golfið ætti að vera meðal keppnisgreina í Peking í Kína árið 2008 en segir það ekki
höfða til sín að taka þátt í Ólympíuleikum.
Heimsmet í golfi
Ástralskur lögreglumaður hélt heim til sín með blöðrur á höndum eftir að hafa sveiflað golfkylfunni sinni 10.080
sinnum og sett heimsmet í golfi. Hann lék alls 1.800 holur á sjö dögum til að safna fé handa sextán ára pilti
sem slasaðist alvarlega é BMX-hjóli í fyrra. Alls safnaði hann sem svarar 320.000 krónum.
76 ára ekkja sló tvisvar holu í höggi á sama hringnum
Bresk 76 ára ekkja, Felicity Ann Sieghart, þykir hafa slegið öll met er hún fór tvisvar holu í höggi á sama hringn-
um í innanfélagsmóti á golfvelli heimabæjar hennar, Aldeburgh í Suffolk í Englandi. í fyrra skiptið flaug kúlan 134
metra af teig þriðju brautar og beint í holu, og svo aftur á 17. braut en þar eru 130 metrar af teig í holu.
Fulltrúar golfklúbbsins í Aldeburgh segjast að loknum rannsóknum engin dæmi hafa fundið um fólk á ofanverð-
um áttræðisaldri sem unnið hefur slíkt afrek, að leika tvær holur á einu höggi í sama hringnum. „Okkur sýnist
eftir skoðun að það séu meiri líkur á að vinna í Lottóinu en afreka svona nokkuð," segir Eve Calvert, fyrirliði
kvennadeildar golfklúbbsins.
„Pað er sjaldgæft að farin sé hola í höggi, í venjulegum klúbbi á það sér kannski stað tvisvar á ári. En tvær
holur á sama hring í keppni er lygilegt," bætir Calvert við.
Frú Sieghart er enginn viðvaningur því hún hefur stundað golf alla ævi og er forgjöf hennar nú 26 en var mun
lægri á árum áður.
ENDURBÆTTAR GOLFVERSLANIR GR
Mikil vinna hefur verið lögð í golfverslanir Golfklúbbs
Reykjavíkur fyrir sumarið. Áhersla var lögð á að gera þær sem
glæsilegastar, bæði snyrtilegar og auka vöruvalið.
Fyrstu viðbrögð við nýju versluninni á Korpu sem opnaði á
sumardaginn fyrsta, 22. maí, hafa verið mjög góðar. Með
bættu vinnuumhverfi mun þjónustan verða enn betri.
Vöruúrval verslananna hefur
verið bætt mikið og einnig verður
boðið upp á prufukylfur til láns á
æfingasvæðin. Mikið af merktum
GR vamingi verður til boða. Helst
ber að nefna Titleist burðarpoka,
Titleist der- og kuldahúfur,
FootJoy vindstakka, FootJoy
golfhanska sem slógu í gegn í
fyrra, Glenmuir-peysur og síðast
en ekki síst, bolta af ýmsum
gerðum. Við viljum hvetja alla
GR-inga til að vera vel merkta á
70 ára afmælisári okkar.
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur
ákveðið að tengja sig sérstaklega
við tvö af stærstu og þekktustu
merkjum í golfheiminum. I
Grafarholti er verslunin með Ping
þema og á Korpúlfsstöðum verður hún með Titleist þema.
Einnig voru valdir bestu æfmgaboltamir sem völ er á fyrir
bæði æfingasvæðin.
Æfingaboltamir em frá Pinnacle, en þess má geta að þeir em
framleiddir af Titleist. Það verður því aðeins boðið upp á topp
merki á æfingasvæðum og verslunum GR í sumar.
KYLFINCUR 121