Kylfingur - 01.05.2004, Síða 40
Borgaryfirvöld höfðu einnig látið að því liggja að til greina kæmi að úthluta GR svæði
fyrir golfvöll að Keldum og teiknaði Geir Svansson tillögu að golfvelli í landinu. Þetta voru
aðeins orðin tóm hjá borgaryfirvöldum enda tilheyrir sú lóð ríkinu og ljóst að aldrei mun rísa
golfvöllur þar.
Aftur að Korpúlfsstöðum
Gamli 9 holu völlurinn á Korpúlfs-
stöðum var vestan við Korpúlfsstaði.
Myndin er tekin á 1. teig. Til vinstri
á myndinni er skúrinn sem iengi
þjónaði kylfingum á Korpúlfsstöðum
og var þar rekin veitingasala.
Þegar ljóst var að Gufuneslandið var fjarlægur möguleiki þá var augunum aftur beint að
Korpúlfsstöðum. Nú var allt sett á fullt til að fá þetta ákjósanlega land fyrir 18 holu golfvöll,
enda brýn nauðsyn orðin á að fá annan golfvöll til að geta tekið við þeim mörgu sem höfðu
áhuga á að ganga í klúbbinn. Borgar-
yfirvöld voru nú orðin sveigjanlegri í
sambandi við Korpúlfstaðalandið og
með hjálp góðra manna hjá borginni
gaf borgarstjóm grænt ljós á vallar-
gerð, sem átti að hluta til að tengjast
byggð sem þar átti að rísa. Héldu
menn nú að málið væri í höfn og ríkti
mikil bjartsýni hjá GR.
Hannes Þorsteinsson var aftur feng-
inn til að teikna 18 holu völl, nú á
Korpúlfstaðalandi, sem og hann gerði
og vakti teikning hans af vellinum
núkla athygli, ekki síst fyrir það að
innan vallarmarkanna var stór íbúa-
byggð. Þegar farið var nánar að fjalla
um byggðina í Staðahverfi hjá borgar-
yfirvöldum kom í Ijós að landið sem
lagt var undir byggðina í skipulaginu
var of lítið til þess að geta borið skóla og aðra þjónustu sem fylgir íbúahvei'fi. Það þurfti að
breyta teikningu vallarins á síðari stigum hans og var meðal annars svæðið sem golfskálinn
átti að rísa tekið fyrir byggð en golfskáli átti í fyrstu að rísa þar sem nú er byggð við 17. og
18. braut.
Óvœnt hindrun
Nú var búið að teikna glæsilegan golfvöll og ekkert til fyrirstöðu að hefja framkvæmdir
þegar óvænt hindrun kom upp. Gefum Garðari Eyland þáverandi formanni GR orðið: „Völl-
urinn var síðan hannaður og samræmdur byggð ásamt reiðstígum, göngustígum og fleiru
sem átti að koma í landið. Þegar svo allt var komið á fullt, búið að hanna og farið að leggja
út völlinn kom bakslagið. Ný borgarstjóm var kosin, borgarstjórn sem var með aðrar áhersl-
ur. Við stóðum frammi fyrir því að það átti að fara að stöðva framkvæmdimar. Við vildum
ekki gefast upp að svo komnu máli og nú var lagst undir feld til að leita leiða til að völlur-
inn yrði að vemleika og finna aðferð til að halda áfram.“
Stjóm GR settist yfir málið með Stefáni Hermannssyni, þáverandi borgarverkfræðingi,
sem ávallt hefur reynst klúbbnum vel þegar á reynir. Og það fannst lausn sem borgarstjórn
Reykjavíkur gat sætt sig við. Sú lausn fólst í að GR tók að sér framkvæmdir við gerð vallar-
ins og útvegaði fé til framkvæmdanna sem borgin endurgreiddi klúbbnum á nokkrum ámm.
Hannes Þorsteinsson tók að sér að breyta vellinum til að samræma hann hugmyndum borg-
arstjómar að skipulagi svæðisins.
Framkvæmdir við Korpúlfsstaðavöllinn hófust svo árið 1993 undir stjóm Margeirs Vil-
hjálmssonar, sem þá var nýráðinn vallarstjóri í Grafarholtinu og fékk nú það verkefni, auk
þess að sjá um Grafarholtið, að stjóma gerð nýja vallarins í Koipúlfsstaðalandi. Fram-
kvæmdir gengu mjög vel og stóðust allar áætlanir. Var fyrst leikið á hluta af nýja vellinum í
júní 1996. Ári síðar var farið að leika á honum í heild og hann síðar vígður í upphafi Lands-
móts, 22. júlí 1997, en þetta ár hélt GR Landsmótið á Grafarholts- og Korpúlfsstaðavelli.
Frœgt klúbbhús og byrjendavöllur
Eins og lýst er á öðrum stað í greininni var gert ráð fyrir að GR hefði aðstöðu í Korpúlf-
staðalandi í nýju húsi og var gert ráð fyrir því að aðalstöðvar klúbbsins yrðu áfram í Grafar-
holtinu. Þegar svo svæðið sem átti að vera fyrir slíkt hús var tekið undir byggð var GR boð-
inn austasti hluti af Korpúlfsstöðum, hinu fomfræga óðalssetri. Ástand hússins var bágborið
og ljóst að það þurfti mikið að gera til að koma húsinu í stand. Teikningar og áætlanir vom
gerðar og var strax settur mikill kraftur í að koma húsinu í það horf að sómi væri af fyrir
3« KYLFINGUR