Kylfingur - 01.05.2004, Qupperneq 83
Slíkt var þakklætið til herforingjans úr Laugarnesi að hann var
sæmdur guiimerki með lárviðarsveig.
Svan er eini maðurinn sem ber slíkt merki.
Auðvitað var stöðug glíma við erfiða fjárhagsstöðu. Dýrtíðin -
verðbólgudraugurinn gerði illilega vart við sig eftir Viðreisn.
Skálinn var auglýstur á uppboð, en greiðslubyrði lána þung og
heimtur á félagsgjöldum lélegar. Svan vísaði frá sér öllum hug-
myndum um gjaldþrot eða stofnun hlutafélags um skálann.
Það kom ekki til greina.
Landnám á Korpúlfsstöðum á þessum árum átti eftir að marka
þáttaskil í sögu GR. Svan Friðgeirsson fór með Ólafi Þorsteins-
syni og Guðmundi Ófeigssyni strandlengjuna frá Kollafirði inn í
Leirvoginn. Þeir skoðuðu Korpúlfsstaðaland og Gufunes, Viðey
og raunar suður fyrir Reykjavík alla leið á Alftanesið. Ári síðar
voru brautir slegnar í landi Korpúlfsstaða. Níu holur til æfinga.
„Brautimar voru ekki á sama stað frá ári til árs og við glímdum
við hestamenn sem töldu gengið á sinn rétt enda afnot óljós. En
mjór er mikils vísir og það átti eftir að sannast,“ segir Svan um
landnámið, en tekur þó fram að hann hafi verið hrifnastur af Við-
ey og sé enn!
Norðurlandamót og silungur í tjörn
Athygli vakti nýjung á 17. braut, en á stjómarfundi 20. ágúst
1973 var bókað:
Feðgarnir á Laxalóni, Ólafur Skúlason og Skúli Pálsson,
gefa regnbogasilung ítjörnina við 17. braut. 1 tonni
sleppt — veiðileyfi til sölu.
Fram kom að landbúnaðarráðuneytið mótmælti bjargræðinu,
en Skúli heitinn hafði átt í harðri glímu við ráðuneytið sem hafði
bannað að silungi yrði sleppt í ár og vötn. í október '73 var Skúla
veitt heiðursmerki GR fyrir hina höfðinglegu gjöf en tekjur af
veiðileyfum námu 100 þúsund krónum. Ári síðar vom uppi
áform að sleppa silungi í vatnið, en fallið frá því vegna vatns-
leysis, en silungi var sleppt í nokkur ár.
Árið 1974 var Norðurlandamót haldið í Grafarholti. Það voru
að sönnu tímamót og því mátti þakka:
Stórafrek hafi verið unnin [á velli og skála] og hægt að
bjóða upp á góðan 18 holu golfvöll.
Á aðalfundi í árslok 1972 lét Svan af formennsku, en stjómaði
vallamefnd nánast samfellt í 20 ár. I fundargerð frá 15. desember
1974 kemur fram að unnin hafi verið „kraftaverk á húsi og velli“.
Vallarframkvæmdir mjög miklar, uppbyggðir nýir teigar
og flatir, brautir hreinsaðar og lagfærðar - sjálfboða-
vinna mjög mikil. Skáli mætti teljast fullkláraður en ugg-
vænlegt hve félögum hefði fækkað.
Á skömmum tíma hafði orðið bylting á vellinum í Grafarholti
og samdóma áht er að Svan Friðgeirsson hafi verið maðurinn á
bak við „stórafrek og kraftaverk". Félagslega var klúbburinn við-
kvæmur þó hægt og sígandi miðaði upp á við. Árið 1973 borg-
uðu 298 félagsgjöld, en 99 vom strokaðir út af skrá enda í van-
skilum. Nýir félagar vom 44, svo þeim hafði fækkað um 55.
Gullmerki með lárviðarsveig
Slíkt var þakklætið til herforingjans úr Laugamesi að hann var
sæmdur gullmerki með lárviðarsveig. Slík viðurkenning hafði
einstaklingi aldrei verið veitt. Árið 1976 tók Svan á ný við for-
mennsku í eitt ár og sat Ólafur Bjarki með honum í stjóm. Árið
1974 vom þeir Svan og Ólafur Bjarki sæmdir gullmerki Golf-
sambands Islands. Þau stórmerki gerðust árið 1980 að Svan var
ekki kjörinn í vallamefnd en ekki leið á löngu uns stjóm ræddi
að „mörg brýn verkefni væm óunnin á völlunum." Leitaði stjóm-
in til Svans um að snúa aftur sem hann gerði og bókað að „enda
hafi hann óskorað vald í þeim efnum“.
Svan tók við formennsku á ný árið 1981 þegar kosið var milli
hans og sitjandi formanns, Magnúsar Jónssonar. Karl Jóhanns-
son settist í stjóm með félaga sínum í Olís svo og þeir Ragnar
Ólafsson - Bjarka Ragnarssonar og Geir Svansson Friðgeirsson-
ar. Enn sannaðist að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni - báðir
kylfingar í fremstu röð og dyggir Olís-menn. Svan gengdi emb-
ættinu til ársloka 1982 og var drifíjöður vallamefndar framundir
1990 og starfsmaður GR í tvö ár.
Korpúlfsstöðum úthlutað til GR
Landnámið á Korpúlfsstöðum reyndist mikið gæfuspor og
þann 6. júní 1981 var samþykkt í stjóm GR að sækja um „afnota-
rétt að Korpúlfsstöðum fyrir 9 holu völl, a.m.k. til næstu ára“ og
að ári fékk klúbburinn svæðinu úthlutað. Nú er þar einn glæsi-
legasti völlur landsins. Sama ár fór Evrópumeistaramót unglinga
fram í Grafarholti. Enn einn vitnisburðurinn um að Golfklúbbur
Reykjavíkur var „kominn á kortið“.
Þann 28. nóvember 1982 tók Karl Jóhannsson við formennsku
af félaga sínum hjá Olís. Kalli Jóh var þjóðþekktur handknatt-
leiksmaður í KR og landsliðsmaður - íþróttamaður af guðs náð.
Trésmiðurinn komst fyrst í kynni við golfið seint á sjötta ára-
tugnum. „Eg vann við að reisa raðhús í Hvassaleiti og golfvöll-
urinn var vestan við hina nýju byggð. Mér fannst kostulegt að sjá
menn sveifla kylfu og slá bolta um víðan völl. Hafði í nógu að
snúast að koma þaki yfir höfuðið og kasta bolta. En forvitnin var
vakin,“ segir Kalli í samtali við söguritara. Hann fiktaði við að
slá hvíta boltann og baktenan blossaði upp ekki löngu síðar.
Kalli er liðtækur kylfingur - eins og þeir félagar Ólafur Bjarki og
KYLFINGUli HI