Kylfingur - 01.05.2004, Side 120
EVROPUKEPPNI
FÉLAGSLIÐA í GOLFI
Kemer Golf Club
Istanbul, Tyrklandi
í nóuember
2003
Eins og venjulega þá unnu GRingar sveitakeppnina sem
haldin var á Leirunni. Verðlaun voru þátttaka í Evrópu-
keppni klúbbliða, sem haldin var í Tyrklandi, nánar tiltekið
á Kemers Golf & Country Club, sem er í um það bil 40-50
mín. keyrslu frá Istanbul. Til fararinnar voru valdir þeir Pét-
ur Oskar Sigurðsson, Birgir Már Vigfússon og Stefán Már
Stefánsson, allir kornungir og efnilegir kylfingar, þeim til
halds og trausts voru Stefán Breiðfjörð Gunnarsson
(kafteinn), Derrick Moore kennari og fararstjóri var Jón
Pétur Jónsson.
Lagt var af stað í býtið
þann 27. október, flogið
til London og síðan til
Istanbul þá um kvöldið,
gekk ferðin vel í alla staði
og lent um kl. 10 um
kvöldið. Aáður enn við
flugum frá London, þótti
fararstjóranum rétt að
hafa smá sjóð í þarlend-
um gjaldeyri, fór í banka
og spurði hvað ca. 300
pund væru mikið í tyrk-
neskum gjaldeyri, kom þá
í ljós að umrædd upphæð
væri 700 milljónir líra,
aldrei áður og ólíklega
seinna hefur undirrituð-
um liðið eins og mílljóna-
mæringi, reyndist bunk-
inn vera um 15 cm á
þykkt og fór mjög illa í veski, eins gott að vera með tösku, til
skýringar, þá er um 75% verðbólga í Tyrklandi, eins og var hér
um árið hjá okkur en þá fór verðbólgan upp í allt að 120%.
Skipulagið á keppninni sjálfri var í ágætu lagi, nerna þessar
eilífu rútuferðir á golfvöllinn, tóku um 40 mín til 60 mín. og hafa
keppendur sem og fararstjórar aldrei vaknað áður kl 5 á morgn-
ana til að fara í golf, þá meina ég nokkra daga í röð, en þetta var
reyndin, einnig þótti okkur tímamörkin hálfundai'leg, ræst út
með 12 mín. millibili, reyndar stytt í 10 mín í síðustu tveimur
umferðunum.
Golfvöllurinn var erfiður, skógarvöllur, þröngur og brautir
lágu yfírhöfuð í hundslöpp.
Par 3 brautimar voru annað hvort niður í móti, bara flötin og
vatnstorfæra báðum megin, eða þá upp í móti og jafnvel blindar
að stórum hluta. Völlurinn sjálfur var c.a. 6.400 m langur og par
5 brautirnar ekki mjög erfiðar, enda lágu fuglar þar í bunkum.
Þessi völlur er einhver erfiðasti golfvöllur sem undinitaður hef-
ur gengið, langt á milli teiga, hæðóttur og hlaðinn torfærum,
enda par 73. A fyrsta keppnishring lék enginn keppandi undir
pari vallarins. Keppendur lærðu þó fljótt á völlinn og kom þá
betra skor í ljós.
Að þessu sinni þá mættu 27 sveitir, allstaðar úr Evrópu, marg-
ar hverjar skrautlegar, þó bar af sveitin frá Golfklúbbnum í
Moskvu, meðalaldur 53 ára og höggaíjöldi á keppanda frá 86
höggum upp í 109, kom í ljós að þetta voru Bretar sem em með-
limir í klúbb þessum, átti þetta að vera skemmtiferð hin mesta,
komust þeir fljótt að raunum að skemmtun og golf fer ekki alltaf
saman. Undir lokin þá kom loksins skor undir 90 hjá þeim.
Nokkrar sveitir báru af, báðar frönsku sveitimar (máttu senda
tvær því þeir unnu í fyrra), spánska sveitin, kom rnjög sterk til
leiks, einnig stóðu vinir okkar Danir sig mjög vel. Flestar vom
sveitimar skipaðar leikmönnum sem eru með +1 og niður í +3 í
forgjöf, tveimur ungum og einum leikreyndum, því alltaf telja
tvö bestu skorin dag hvem, en leiknar em 4 umferðir í höggleik.
Okkar strákar stóðu sig ágætlega, en alltaf vantaði herslumun-
inn að ná betra skori, því tveir kylfingar verða að skora vel sama
dag, þannig vantaði okkur skor 76 og lægra til að komast í mið-
eða jafnvel efsta hópinn, eða topp tíu eins og stefnan var sett á.
Okkar kylfingar slá alveg jafnlangt eða lengra í teighöggum, em
með ágætis millihögg, en síðan byrjar ballið, segjum síðustu 10-
20 metrana og em þá púttin innifalin. Þetta er veikleiki sem hægt
er að laga, bara að fækka púttum um 3 til á 5 hring, þá kemur
skor sem allir geta verið hreyknir af, en að öllu öðm leyti þá
stóðu þessir ungu menn sig frábærlega. Vonandi fer svona
keppnisferð í leikreynslusarpinn margfræga sem nýtist þeim í
erfiðum keppnum í framtíðinni.
Vegna stöðugra rútuferða þá gafst nú ekki mikill tími til skoð-
unar, þó bmgðum við okkur einu sinni í bæinn, skoðuðum bláu
moskuna og fleiri áhugaverða staði, niður við Bosporossund,
sem tengir saman Svartahafið og Miðjarðarhaf, einnig Asíu og
Evrópu, með því að fara yfir eina brú þá kemur maður í aðra
heimsálfu, nokkuð skondið. Þegar við vomm að gera upp leigu-
bílinn (c.a.12 millj.) þá er verið að kalla til bæna, prestur að kalla
á sóknarböm. Tók þá kafteininn okkai- sig til og fór að herma eft-
ir bænakallinu og tókst mjög vel upp svo viðstaddir tóku ekki
eftir neinum mun. Vomm við nokkuð fljótir að þagga niður í
honum, því ekki hefði ég vilja standa fyrir útskýringu á uppátæki
þessu gagnvart heimamönnum sem eru heittrúaðir mjög, annars
kom mér það mikið að óvart, hvað allt er orðið vestrænt, allir í
gallabuxum, leðurjökkum og yfirhöfuð snyrtilegir til fara. Ekki
bar mikið á konum með slæður, virðist þetta vera á miklu und-
anhaldi, einnig sá maður í kringum golfvöllinn stórkostlegar vill-
ur, sem vom fullbúnar eða í smíðum, líklega kostað nokkra billj-
arða.
Til gamans koma hér dæmi um verð á nokkrum vömm:
Vatnsflaska 1 milljón.
Bjór 2,5 milljónir.
Brauðsneið 1,5 milljón.
Út að borða fyrir 6 á tyrkneskum veitingastað 140 milljónir.
1 milljón er 50 kr ísl.
Með þökk fyrír góða ferð
Jón P. Jónsson.
118 KYLFINGUR