Kylfingur - 01.05.2004, Page 57

Kylfingur - 01.05.2004, Page 57
Ragnheiður Guðmundsdóttir, lœlmir og Gestur Jónsson, formaður GR, á aðalfimdi GR, þegar Ragnheiður var kjörin heiðursfélagi í GR. Ragnheiður vann ómetanlegt staiffyrir Golfklúbb Reykjavíkur á þeim árum þegar klúbburinn var aðflytja í Grafarholtið. Tvisvar þurfti hún að ganga á fimd borgaryfirvalda ogfá það land sem klúbbnum hafði verið úthlutað undir golfvöll stœkkað. Hún tók við semformaður klúbbsins á aukaaðalfimdi 12.júní 1958 og gegndi formennsku út það ár. mögulegt sumsstaðar að halda sér við mörk þeirra 65 hektara sem fengust út- hlutað, ef takast ætti að koma girðingu umhverfis völlinn. Það vantaði að minnsta kosti 4,5 hekt- ara til viðbótar. Enn fór Ragnheiður á fund borgarstjóra og fékk heimild til að stækka landið til að geta girt það af og var leyfið dagsett 26. ágúst 1958. Þar kom fram að land GR í Grafarholti var orðið 69,5 hektarar. Allt átti að vera klappað og klárt „Þegar ég tók við sem formaður gerði ég mér ekki grein fyrir því, hve mikil vinna átti eftir að fylgja því að fá aukið land undir völlinn. Ég hafði verið full- vissuð urn áður en ég tók við, að frá öll- um samningum við borgina væri endan- lega gengið og þai' væri allt klappað og klárt og nýja landið biði tilbúið eftir að lögð væri hönd á plóginn í bókstaflegum skilningi. Stjómin hafði enda gert samn- ing við Jarðræktarfélag Reykjavíkur um að brjóta landið og við Skógrækt ríkisins um að girða völlinn og girðingarefnið var þegar fengið. Vildifá kosningu um embœtti formanns Ragnheiður segir að það hafi borið nokkuð óvænt að þegar hún vai'ð formað- ur GR. „Einn stjómarmanna hringdi í mig í maí 1958 og sagði að þar sem ég væri varaformaður yrði ég að taka við for- mennsku vegna þess að formaðurinn, Þorvaldur Asgeirsson, hafði sagt af sér og væri hættur vegna ágreinings við kapp- leikjanefnd. Ég sagðist taka að mér for- mennsku með aðeins einu skilyrði, að ég yrði kosin í embættið en ekki sett í það. Á auka aðalfundi 12. júní 1958 var ég ein- róma kjörin formaður klúbbsins - fyrst kvenna til þess að gegna því embætti á Is- landi. Algerlega óvænt og óviðbúin tók ég við formennsku meira af skyldurækni við mitt gamla félag heldur en löngun til að hljóta þessa vegtyllu.“ Heimavön hjá borgarstjóra „Ég tók við formennsku í GR með 40 hektara lands, en skilaði af mér klúbbnum með 69,5 hektara lands,“ sagði Ragnheið- ur og ekki laust við að stolt sé í röddinni. Þá beitti hún sér fyrir því að fá heitt vatn á svæðið í Grafarholti og náði því í gegn eftir nokkur samtöl við borgarstjóra, enda orðin heimavön þar á bæ eftir það sem á undan var gengið. Hún segir að golfið hafi veitt sér af- skaplega mikla ánægju í gegnum tíðina. „Ég er þannig gerð að ég vil hafa fast land undir fótum. Ég hef ánægju af útivist og þess vegna átti golfíþróttin svona vel við mig. Að frnna ilminn af nýslegnu grasi á golfvelli er upplifun út af fyrir sig. Ég tel mig lánsama að hafa kynnst golfíþróttinni og fengið tækifæri til að starfa með góðu fólki að uppbyggingu GR.“ Vajo KYLFINGUR 55
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Kylfingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.