Kylfingur - 01.05.2004, Page 125

Kylfingur - 01.05.2004, Page 125
uppgötvar þú að orsökin er há- væra tölvan þín. Algengt er að fólk finni ekki fyrir hávaða fyrr en hann hættir. Litur á tölvum og skjáum skiptir líka máli. Fólk þreytist meira í augum við að vinna mikið með svartan ramma utanum skjá- inn og því er í vaxandi mæli boð- ið uppá Ijósa skjái í dag. Flutningar. Með því að framleiða búnaðinn nálægt markaðnum sparast mikið eldsneyti í flutnings- kostnað. Þegar um stærri sending- ar er að ræða er búnaði pakkað í stærri einingar og umbúðir þ.a.l. sparaðar. Einnig eru sömu umbúð- irnar notaðar aftur og afur - og þegar þær eru úr sér gengnar eru þær endurunnar. Allar almennar umbúðir eru úr endurunnum efn- Endurvinnsla. Allur búnaður þarf að vera endurvinnanlegur og hannaðurtil þess. Fujitsu Siemens hefur rekið endurvinnslustöð fyrir rafeindabúnað í Paderborn í Þýskalandi frá 1986 sem flokkar og endurvinnur tölvubúnað. Nú er tækifæri - allavega fyrir þá sem láta umhverfismál sig varða - að næsta tölva verði umhverfis- væn tölva. Kíktu á merkið - Fu- jitsu Siemens er eina tölva á ís- landi með viðurkennt umhverfis- merki - Svaninn! Láttu til þín taka. Nánari upplýsingar á www. taeknival.is TÞ Þann 30. mars síðastliðinn hélt af stað hópur ungs fólks úr afreks- hóp GR í æfingaferð til Alicante á Spáni. Þarna voru á ferð 29 kylfingar á aldrinum 15-20 ára, í för með okkur voru fararstjór- arnir Magnús, Sveinn og Einar og þjálfararnir Derrick og David. Koma okkar til Spánar var síðla kvölds, og var því ekki amalegt að láta taka vel á móti sér á þessu líka glæsilega fimm stjömu hóteli, Hesperia Golf Hotel, sem við dvöldum á þessa 8 daga okkar á Spáni. Morguninn eftir var hópurinn vakinn eldsnemma, en það þótti okkur nú ekki leiðinlegt þegar við áttuðum okkur á því hvar við vomm stödd. Og voru allir spenntir að drífa sig út á völl. En áður en haldið var út á völl beið glæsilegt morgunverðarhlaðborð með allskyns kræsingum. Þeg- ar út á völl var komið var hópnum skipt í tvennt og fór þá annar hópurinn út á völl að spila en hinn helming- urinn var á æfingasvæðinu ýmist að æfa sveifluna eða stutta spilið, undir leiðsögn þjálfaranna. Svo var þessu skipt eftir hádegi, þannig það var æft stíft allan daginn. Eftir fimm góða æfingadaga var síðan haldið mót inn- an hópsins, þar sem kom í ljós að margir höfðu tekið miklum framfömm eftir vetraræfngamar og gat mað- ur einnig séð mun á mönnum frá fyrsta degi og þeim síðasta sem spilað var á Spáni. Á kvöldin vom yfirleitt allir dauðþreyttir eftir langa göngu og miklar æfingar. Eyddu menn tíma sínum á hótelinu í góðum félgsskap hvors annars hvort sem verið var að slappa af inn á herbergi fyrir framan sjón- varpið eða skellt sér í sund og gufu. Þó vom alltaf vissir aðilar sem virtust hafa nægja orku til að hamast í fótbolta, tennis eða ffflast í sundlaugargarðinum. Völlurinn var eins og fym segir með besta móti og var það frábært fyrir okkur að fá að spila á svona fínum velli til að hita upp fyrir sumarið. Veðrið lék við okkur allan tím- ann og var maður farin að sjá ansi ijóðar kinnar þegar við hittumst á kvöldin í matnum. Síðasti dagurinn var frídagur, löngum og ströngum æfingum lokið, en allir glaðir eftir að hafa fengið að komast loks- ins í golf eftir langan vetur. Frídeginum var eytt í búðar- ráp og seinnipart dags vai' hóp- urinn sameinaður í sundlaugar- garði hótelsins þar sem við átt- um yndislegan dag í sólinni. Stelpumai' voru æstar í að ná sem mestri brúnku á síðasta degi og lágu í sólinni en strák- amir skemmtu sér konunglega við að henda hvor öðrum út í laugina. Nokkrir vom enn þyrstk í golf og spiluðu sinn síðasta hiing í ferðinni þennan dag. Kvöldið endaði svo með kvöldmat og verðlauna- afhendingu á hótelinu. Þessi ferð var í alla staði mjög vel heppnuð. Góður hópur, fararstjórarnir og kennar- amir góðir. Veðrið var yndislegt og völlurinn frábær. Og vil ég fyrir hönd okkar allra þakka klúbbnum fyrir að gera ferð sem þessa mögu- le£a- Hrafnhildur Einarsdóttir. KYLFINGUR 123
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Kylfingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.