19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 30

19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 30
Best er að eiga 2 — 3 börn. Það tilheyrir að eiga börn. Ef þau eru 2 eða fleiri, læra þau að taka tillit hvert til annars. Börnin ættu að vera í umsjá móður sinnar allra fyrst, en síðan beggja foreldra. Það er áreiðanlega erfitt að vera einstætt foreldri. Þá eru engar málamiðlanir til, enginn sem passar barnið líka. Feður ættu að fá meiri rétt yfir börnum sínum. Það er óréttlátt að stelpa, sem á barn getur gefið það eða látið annan ættleiða það, án þess að rétti pabbinn fái nokkru ráðið. Hann má þá ekki einu sinni taka það frekar í fóstur sjálfur. En það er ekki eftirsóknarvert að þurfa e.t.v. að sitja uppi með 3—4 börn við skilnað. Oftast er það mamman sem gerir það. Hann getur þá elt nýjar stelpur út um allan bæ — en hver vill 4 barna móður? Gætirðu hugsað þér að vera húsfaðir? Ekki til lengdar. En stundum, þegar ég er að gera eitthvað leið- inlegt, þá dettur mér í hug hvað það væri auðvelt að vera hús- móðir og mega sofa út og gera bara það sem mig langaði til suma daga. Hvort heldurðu að sé betra fyrir hjónabandið að búa í sveit eða borg? í sveitinni vinna hjónin saman. En það eru ekki allir, sem geta það. Mér finnst gott að vinna með sumu fólki, en afleitt með öðru. Það er ekki víst, að mér finndist gott að vinna með þeirri sem ég giftist. Einangrunin í sveitinni getur líka verið slæm fyrir sambúðina. Það er eins og skapist viss andi á hverjum bæ og heimurinn endi við túngarðinn. Svo verður fólk hjárænulegt, þegar það hittir aðra. Bæjarbragurinn er svo mis- jafn, á sumum heimilum tíðkast það að tala illa um náungann og gera sífellt grín að öðru fólki. Þegar hjónin eru samhent og byggja hvort annað upp í já- kvæða átt, er sveitaheimilið á- kjósanlegur staður, einnig af því að þar eru börnin í tengslum við atvinnu foreldra sinna. Þau hafa störfum að gegna, sem gerir það að verkum að þeim finnast þau mikilvæg — hafa hlutverk. Lífs- leiðinn, unglingavandamálin og kynslóðabilið margnefnda ríkir ekki í þannig umhverfi. ^ Tæplega þrítug — gift í 8 ár — tek ég ekki undir þá „klisju“ að ekkert heimili sé án barna, samband fólks getur verið auðugt án þess að það eigi börn saman. Það er líka ábyrgðarhluti að mæla með barneignum eins og ég gerði áðan, því þjóðfélag okkar er fjandsamlegt börnum. Oftast vinir Sp. Telurðu kynlíf mikilvægt í sambandi ykkar? Sv. Bæði já og nei. Auðvitað skiptir kynlífið máli, en það geta komið upp aðstæður þar sem maður verður að vera án þess — vegna veikinda, fjarveru eða óléttu — og það getur verið allt í lagi, ef báðir aðilar skilja aðstæð- urnar og sætta sig við þær. En stundum getur hlaðist upp spenna þegar dauft er yfir kynlíf- inu, og það getur haft illar af- leiðingar, gert sambandið kalt. Þetta gerist kannski þegar maður vinnur svo mikið að maður hefur ekki orku til neins þegar maður kemur í rúmið en hefur að öðru leyti allar forsendur til að vera til í tusk. Sp. Gerðuð þið áætlanir um barnafjölda áður en þið giftust? 28 Sv. Nei. Við eignuðumst ekki barn fyrr en við vorum búin að vera gift í fáein ár. Það breytti sambandinu mjög mikið. Við höfðum verið frjáls, óbundin af öllu nema hvort öðru. Barn á heimtingu á vinnu og ástúð, sem báðir aðilar verða að taka á sig. Það er komin samábyrgð sem verður alls ekki hlaupið undan. Þessi ábyrgð hefur splundrað mörgum hjónaböndum, af því að annar aðilinn vill hlaupast frá henni. Barni fylgja oft miklar vökur, og þegar fólk þarf svo að vinna allan daginn getur ástand- ið orðið óbærilega erfitt. Maður ræður ekki lengur lífi sínu. Fólk ætti að eignast börn frekar seinna en fyrr. Þótt það sé þá orðið fast í ýmsum ósiðum þá er það líka orðið þroskaðra og gerir sér betur grein fyrir á hverju er von. En það má heldur ekki draga það of lengi, sambandið má ekki vera orðið of mótað, þá getur barn haft mjög óþægileg áhrif. Aldur skiptir þó kannski ekki meginmáli í þessu sambandi heldur það að fólk hugsi sig um
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.