19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 38
íbúðir fyrir
jafnræðisfjölskyldur
Gestur Ólafsson arkitekt:
Að undanförnu hefur mikið
verið um það rætt hvaða framtíð
það sambýlisform, sem algengast
er hér á landi, eigi fyrir sér.
Margir afgreiða málið með því að
hefðbundin sambúð í fjölskyld-
um sé óumbreytanlegur horn-
steinn þjóðfélagsins en aðrir álíta
kommúnur eina raunhæfa val-
kostinn. Fáir gera sér grein fyrir
þeim valkostum sem allir ein-
staklingar eiga um það hvaða
lífsmynstur þeir kjósa.
Algengt er að fólk gangi blind-
andi inn í þau sambýlisform og
hefðir sem eru óskráð, en hafa
verið fest í stein í þeirri íbúð sem
þau kaupa eða leigja og sama
máli gegnir yfirleitt um þá sem
byggja sjálfir. Alltof oft kaupa
þeir sem ætla að byggja staðlaða
teikningu sem gerir ráð fyrir úr-
eltu sambýlisformi, í stað þess að
hugleiða í samráði við arkitekt
hvernig lífi það vill í raun og veru
lifa og hvernig hægt sé að gera
viðkomandi íbúð eða hús þannig
úr garði að hún henti sem best
þessu lífsformi. Áður en varir eru
svo verstu vankantar orðnir að
vana, menn eldast, börnin vaxa
upp og þeir möguleikar á lífsfyll-
ingu sem viðkomandi íbúð eða
hús hefði getað veitt liggja ónot-
aðir.
Mörgu fólki sem festir ráð sitt
bregður illa við að glata þvi næði,
sem það hafði i eigin herbergi i
foreldrahúsum eða þegar það bjó
eitt. Alla jafna er talið sjálfsagt að
hjón séu saman um herbergi þótt
það þyki jafn sjálfsagt að börnin
þeirra séu ein i herbergi. Ef
aukaherbergi er i íbúðinni fyrir
36
annaðhvort hjóna er því undan-
tekningarlítið ráðstafað fyrir
„húsbóndann“. Svefnherbergi
hjóna hér á landi eru líka yfirleitt
það lítil og óvistleg að þau eru
varla nothæf til annars en að sofa
í þeim. Engin aðstaða er til skrifta
eða tómstundaiðju og varla til
lestrar. Ef einhvern fjölskyldu-
meðlima langar til að horfa á
sjónvarp, hlusta á útvarp,
grammófón eða teip í sameigin-
legum hluta íbúðarinnar er næð-
ið yfirleitt búið. Ef annað hjóna
er með fund eða bridspartí hefur
hitt oft ekki í neinn þolanlegan
stað að venda í íbúðinni á meðan.
Ef annað hjóna vill fara fyrr að
sofa en hitt, eða fyrr á fætur, eða
ef annað þeirra hrýtur veldur
þetta oft ónæði og leiðindum fyr-
ir hinn aðilann.
Margt bendir til þess að á
næstu árum muni jafnræði milli
fjölskyldumeðlima aukast veru-
lega bæði hérlendis og erlendis. f
jafnræðisfjölskyldum hefur hver
fjölskyldumeðlimur sitt eigið
herbergi. Þessi herbergi eru öll
það rúm að fullorðin manneskja
eða barn getur búið þar og haft
sína persónulegu muni, pappír og
bækur í friði. Þessi herbergi eru
sólrík og aðlaðandi bæði til svefns
og tómstundastarfa og hljóðein-