19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 40
Jakki" '78
Guðrún Auðunsdóttir
eru þó nær tveir þriðju hluti
nemenda í skólanum. Hvernig er
skipting þeirra milli deilda?
Sigrún: Það er nokkuð áberandi
kynskipting í vali milli deilda í
MHÍ. Það eru deildir, sem eru
eingöngu skipaðar kvenfólki, þ.e.
textil og keramikdeildir og í
kennaradeildinni eru fáir strákar.
Frjálsu deildirnar eru miklu
meira blandaðar, en þær hafa
tilhneigingu til að innihalda fleiri
karlmenn.
Jónína: Mér finnst athyglisvert
að stúlkurnar sækja inn á fleiri og
fjölbreyttari svið listsköpunar en
strákarnir.
Guðrún: Sem börn i skóla lærð-
um við að sauma og prjóna með-
an strákarnir smíðuðu. Það er
eðlilegt að vefjalist höfði sterkar
til kvenna en karla þar sem við
höfum fengist við garn og tuskur
frá barnæsku.
Sigrún: Ég held að það sé alltaf
að aukast að stelpur sæki í hinar
hefðbundnu karlagreinar, en aft-
ur á móti fara strákarnir ekki í
textil og keramik, ekki enn að
minnsta kosti. En það er reyndar
38
sama sagan annars staðar í at-
vinnulífinu.
Ingunn: Á margan hátt er
grundvöllurinn að viðhorfum
okkar til listar og listiðnaðar
iagður í bernsku. Drengir eru
hvattir og lattir á annan hátt en
stúlkur og öðlast yfirleitt meira
sjálfstraust. I skóla sem MHÍ er
það ríkjandi að strákarnir eru
sjálfsöruggari en stelpur. Sú bylt-
ing sem gera þarf í jafnréttismál-
um kynjanna þarf að hefjast á
breyttu uppeldi okkar eigin
barna.
Sigrún: Já, það þarf að byrja á
byrjuninni, en það getur náttúr-
lega verið dálítið erfitt fyrir
nokkra foreldra að berjast gegn
heilu þjóðfélagi með öllum sínum
skólum, sjónvörpum og öðrum
mötunarvélum.
Svala: Hvað með hina árlegu
úthlutun listamannalauna? Að
dómi úthlutunarnefndar, sem
auðvitað er eingöngu skipuð
körlum, þá eru listamenn þjóðar-
innar í ár 86% karlar og 14%
konur. Eru konur ekki virkari í
listum en þessar tölur sýna?
Ingunn: Til að fullyrða um það
þyrftum við að hafa tölur yfir
hlutföllin á milli karla og kvenna
í félögum myndlistarfólks eða
lista yfir þá sem haldið hafa sýn-
ingar á verkum sínum undanfar-
in ár svo hægt væri að bera þær
Ingunn Eydal „Sjónvarpsgláp" '76