19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 60
Svafa Þórleifsdóttir
In Memoriam
Svafa Þórleifsdóttir var fædd 20.
október 1886 á Skinnastað í Öxar-
firði, dáin 7. mars 1978 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru hjónin Sess-
elja Þórðardóttir og Þórleifur Jóns-
son, prestur að Skinnastað. Svafa átti
tvö systkini, eina systur og einn
bróður. Svafa naut í æsku meiri
menntunar en þá var tíðast, enda
bæði gáfuð og námfús, og hæg
heimatökin, því séra Þórleifur faðir
hennar var vel lærður og góður
fræðari. Aðeins 16 ára gömul vetur-
inn 1902—1903 er Svafa við nám í
Mjólkurskólanum á Hvanneyri.
Næsta ár liggur leiðin í gagnfræða-
skólann Flensborg i Hafnarfirði, og
um svipað leyti er hún nokkra mán-
uði óreglulegur nemandi i Kvenna-
skólanum á Blönduósi. Kennarapróf
tekur Svafa árið 1910 og allmörgum
árum síðar, eða 1935 sækir hún
kennaranámskeið að Askov (í Dan-
mörku). Það er augljóst að hugur
Svöfu hefur snemma hneigst að
fræðslustörfum, því hún tekur þegar
um tvítugsaldur að kenna börnum
og unglingum. Fyrstu árin aðallega á
bernsku og æskuslóðum sinum í
Norður-Þingeyjarsýslu. Á þessum
árum og raunar allt frá bernsku,
tekur hún mikinn þátt í félagslífi
byggðarlagsins, bæði i Ungmenna-
félagi og Kvenfélagi Öxfirðinga og er
um tima í stjórnum tveggja þessara
félaga. Árið 1913 fluttist Svafa úr
heimabyggð sinni og ræðst skóla-
stjóri við barnaskólann á Bildudal.
Hún gegnir þvi starfi til 1919. Einnig
þarna lætur hún að sér kveða í
félagsmálum og á t.d. sæti í stjórnum
bæði kvenfélagsins og ungmenna-
félagsins á Bíldudal. Haustið 1919
gerist Svafa skólastjóri barnaskólans
á Akranesi og gegnir því starfi næstu
25 árin. Lengst af þeim tíma er hún
einnig skólastjóri gagnfræðaskólans
þar, og seinustu sex árin sem hún er á
Akranesi er henni auk þess falin
skólastjórn Iðnskólans þar á staðn-
um. Jafnframt skólastjórastörfunum
var Svafa í fararbroddi flestra vel-
ferðarmála barna og ungmenna á
Akranesi öll þessi ár. Hún var t.d.
gæslumaður ungtemplara, en það
hafði hún einnig verið á Bíldudal,
formaður barnaverndarnefndar, í
stjórn Barnavinafélags Akraness og
nokkur ár ritstjóri Foreldrablaðsins á
Akranesi. 1 viðbót við allt þetta var
hún formaður Kvenfélags Akraness
árin 1926— 1944, og formaður Sam-
bands borgfirskra kvenna árin
1931-1944.
Árið 1944 hætti Svafa kennslu og
fluttist til Reykjavíkur. Hún ræðst
þá framkvæmdastjóri Kvenfélaga-
sambands Islands (K.I.) og er það til
1948. Þessi ár vann hún mjög mikil-
vægt starf að skipulagsmálum K.I.
Hún átti einnig mikinn þátt í að
ráðist var í útgáfu „Húsfreyjunnar“
tímarits Kvenfélagasambandsins og
var ritstjóri hennar árin 1953— 1968.
Á kennaraárum sínum tók Svafa að
sjálfsögðu þátt ! samtökum stéttar
sinnar og var t.d. í fyrstu stjórn
Sambands íslenskra barnakennara.
Eftir að hún fluttist til Reykjavík-
ur var hún um skeið í stjórn Lands-
sambands íslenskra barnaverndar-
félaga. Svafa var lengi mikilvirkur og
traustur félagi í Kvenréttindafélagi
Islands og allmörg ár í stjórn þess.
Hún átti einnig sæti í ýmsum nefnd-
um á vegum félagsins, og komu þá
ekki síst hinir ágætu skipulagshæfi-
leikar hennar að góðum notum.
Þegar ársrit K.R.F.I. „19. júni“ hóf
göngu sína árið 1951 var Svafa í
fyrstu ritnefndinni, og hún var jafn-
framt ritstjóri þess fyrstu árin. Mesta
starf Svöfu í tengslum við K.R.F.I.
var þó vafalaust hið mikla og fórn-
fúsa starf, sem hún gegndi árum
saman við Menningar- og minning-
; arsjóð kvenna. Hún sat í stjórn
sjóðsins árin 1945—1972 og var
gjaldkeri og framkvæmdastjóri hans
Svafa Þórleifsdóttir.
1949—1968. Hún sá einnig að lang-
mestu leyti um útgáfu þriggja fyrstu
Æviminningabókanna. Auk þeirra
ritstarfa Svöfu, sem hafa verið nefnd
hér að framan, skrifaði hún allmarg-
ar greinar í blöð og tímarit um upp-
eldis- og menningarmál. Einnig
fékkst hún nokkuð við þýðingar.
Svafa átti við erfiðan sjúkdóm að
striða allmörg seinustu árin. En þrátt
fyrir það og háan aldur var hún ó-
buguð andlega til hins síðasta. Svafa
giftist ekki, en hún átti einn fóstur-
son. Svafa var heiðursfélagi í K.R.-
F.I.
Guð blessi minningu þessara
merkiskvenna. G. H.
58