19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 66
BÆKUR BÆKUR BÆKUR
því að til eru íslenskir kvenrithöf-
undar, þótt ekki fari mikið fyrir
þeim í bókmenntasögum eða
öðrum opinberum vettvangi.
Jafnframt á það að geta veitt
innsýn í hugarheim kvenna, við-
horf þeirra og vitund á hverjum
tíma.“
Sögunum er skipt í þrjú tíma-
bil sem hvert um sig tengjast
kvenréttindabaráttu. Fyrsta
tímabilið spannar árin 1880—
1930 og tengist Torfhildi Hólm,
en hún á elstu söguna í safninu.
Það næsta eru árin 1930—1970,
tengt lýðveidisstofnuninni og
þriðja tímabilið kvenréttinda-
baráttunni nýju. Þar eru nýjar
sögur sem sérstaklega voru samd-
ar vegna útgáfu þessarar bókar.
Undirstöðurit er varðar rann-
sókn á kjörum kvenna er ,,A
Room of One’s Own“ eftir
Virginia Woolf. Ljóst er að konur
hafa ekki haft aðstöðu á borð við
karla til ritstarfa. Hitt er jafnljóst
að kvenréttindabarátta hefur
orðið konun hvatning til dáða á
öllum sviðum. Um þetta atriði
segir Ragnheiður Jónsdóttir: „Án
kvenréttindabaráttunnar hefði
ævi mín að sjálfsögðu orðið önnur
og lítil líkindi til þess að ég hefði
nokkurn tíma fengist við ritstörf.“
(Melkorka 1960).
Ekki verða einstökum sögum
gerð skil hér, en þær sýna hver
með sínum hætti einhvern þátt
kvenvitundar. Aðeins þrír höf-
undar skipa nú nokkuð öruggan
sess í ísl. bókmenntasögu, þær
Hulda, Jakobína Sigurðardóttir
og Svava Jakobsdóttir. En það
eru líka karlmenn sem hafa ráðið
gildismatinu. Mottó bókarinnar
er örstutt saga eftir Vilborgu
Dagbjartsdóttur, Draumur, og
fjallar í fyrstu persónu um við-
skipti skáldkonu við Óðin sjálfan.
64
Jafnvel hann átti ekki nema eitt
erindi við konu. Það sem athygli
vekur við lestur er hversu stuttar
sögurnar eru og margar fremur
þættir. Þetta getur stafað af því
að Helga hafi valið að koma sem
flestum höfundum að á sem
fæstum blaðsíðum. Rannsóknir á
kvennabókmenntum eru nær ó-
plægður akur hér og því mikið
verk fyrir höndum. Safn það sem
hér um ræðir tel ég vera góðan
inngang að frekari lestri kvenna-
bókmennta.
Gerður Steinþórsdóttir.
Ljósmæður
á Islandi
Ljósmæðrafélag Islands, sem er
eitt af aðildarfélögum KRFf, var
stofnað 2. maí 1919 og verður því
60 ára á næsta ári. Af því tilefni
hefur félagið ráðist í að gefa út
ritverkið „Ljósmæður á íslandi“
og er áætlað að það komi út fyrir
árslok 1979.
Aðaluppistaða verksins verður
stéttartal ljósmæðra, en skipu-
lögð fræðsla yfirsetukvenna hófst
hér á landi með tilkomu fyrsta
landlæknisins, Bjarna Pálssonar,
árið 1760 og mun starfstalið ná
aftur til þess tíma.
Ljósmóöurstarfið var fyrsta
viðurkennda starfsgrein kvenna
hér á landi og lengst af sú eina,
sem konur áttu kost á að læra og
taka próf i og eru þær þannig
elsta embættisstétt íslenskra
kvenna. Auk stéttartalsins, sem
rúmar hátt i tvö þúsund nöfn
ásamt æviágripum og fjölda
mynda, veröur i ritinu sögulegur
fróðleikur um fæðingarhjálp frá
upphafi fslandsbyggðar, sem
Anna Sigurðardóttir, forstöðu-
maður Kvennasögusafns íslands
skráir. Rituð verður saga Ljós-
mæðrafélags íslands í sex áratugi,
birtir valdir kaflar úr bók Sigur-
jóns Jónssonar, læknis, „Ágrip af
sögu ljósmæðrafræðslu á ís-
landi“, sem Ljósmæðrafélagið gaf
út árið 1959 og fleira.
Sérstök ritnefnd er starfandi
meðan þetta mikla verk er i und-
irbúningi og er Sólveig
Matthíasdóttir formaður hennar,
en ritstjóri verksins er Björg Ein-
arsdóttir. Núverandi formaður
Ljósmæðrafélagsins, Steinunn
Finnbogadóttir, hefur starfað
með ritnefndinni frá upphafi.
Ljósmæðrafélagið hefur skrif-
stofu í eigin húsnæði að Hverfis-
götu 68A í Reykjavik og er við-
talstími þar vegna ljósmæðra-
talsins alla virka daga frá kl.
16:00 til 17:00 eða í síma 24295.
BjE
Afmælisrit til
Önnu
Sigurðardóttur
í ráði er að gefa út rit í tilefni
sjötugsafmælis Önnu Sigurðar-
dóttur forstöðumanns Kvenna-
sögusafns Islands.
All margar konur hafa nú þeg-
ar lofað að skrifa í ritið og vonir
standa til að það geti orðið fjöl-
breytt og skemmtilegt.
Þeir sem áhuga hafa geta tekið
þátt i heillaóskalista og gerst
áskrifendur.
Allar upplýsingar um útgáf-
una veita Valborg Bentsdóttir,
Ljósheimum 16B, Reykjavík,
Guðrún Gisladóttir, Hliðarvegi
16, Kópavogi og Else Mia
Einarsdóttir, Granaskjóli 25,
Reykjavík.