19. júní - 19.06.1985, Blaðsíða 11
Sigríftur Snævarr á ráöherrafundi Evrópuráösins sem fulltrúi Ólafs Jóhannessonar þáv. utanríkisráðherra árið 1982. Grískur
ráöherra situr henni til hægri handar og írski fastafulltrúinn til vinstri.
A ráðstefnu í indverskum sarí
Við bandaríska háskólann ríktu að
því leyti önnur viðhorf að þar var nárnið
einnig hagnýtt. Til dæmis vorum við
stúdentarnir látin þjálfa okkur í að sitja
ráðstefnur með því að haldnar voru „al-
þjóða ráðstefnur“. Mér er það minnis-
stætt, vegna þess að ég var „sendinefnd
Indlands“ og mætti auðvitað með langa
stefnuræðu, íklædd „sari“ sent indversk
skólasystkin mín lánuðu mér og vöfðu
mig eftir kúnstarinnar reglum.“
Ekki hœgt að fá sveinspróf
fyrir diplómata____________________
- En þá komum við að starfinu. Varstu
alltaf ákveðin í að reyna fyrir þér í utan-
ríkisþjónustunni að námi loknu?
„Hvað varðar utanríkisþjónustuna
er það auðvitað ekki einhliða val, menn
fara ekki í nám og fá svo sveinspróf sem
diplómatar! Þrfð gildir auðvitað að
sækja um og umsækjandinn er metinn
á grundvelli nárris og fyrri starfa og fleiri
þátta. Það gildir alls staðar í heiminum
og hefur áhrif á kennslu í alþjóða sam-
skiptum. Þetta er ólíkt því sem þekkist
til dæmis í læknadeild, þar vita kenn-
arar að þeir eru að mennta menn til að
verða læknar, nái þeir prófi. í stjórnvís-
indanámi er fagleg umfjöllun aðalat-
riðið, en jafnframt er nemendum með
þjálfun beint inn í stjórnunarstörf.
í utanríkisþjónustu íslands eru rúm-
lega fjörutíu inismunandi embætti sem
menn gegna í tólf þjóðlöndum, og hver
og einn er í tilteknu starfi um afrnark-
aðan tíma. Þanniger það, að menn með
áratuga reynslu í utanríkisþjónustunni
geta þurft að afsaka sig fyrir að vera
nýliðar í tilteknu starfi. Enn fremur
gerir þessi fjölbreytni að verkum að
ekki er hægt að benda á neitt eitt nám
sent öðrunt fremur þjálfar menn til að
verða diplómatar. Lögfræðin var lengst
af allsráðandi og það nám hefur góða
kosti og sömuleiðis viðskipta- eða hag-
fræðinám.
Frá Moskvu til Strasbourg
Miðað við minn fyrsta starfsvettvang
í utanríkisþjónustunni sem var í sendi-
ráðinu í Moskvu, hefði besta þjálfunin
verið háskólapróf í rússnesku og rúss-
neskum bókmenntum. í starfi rnínu við
Evrópuráðið í Strasbourg reyndi mikið
á mitt nám til skilnings á ýmsum málum
er upp komu. í því starfi sem ég hef nú
með höndum sem forstöðumaður
blaða-, upplýsinga- og menntadeildar
utanríkisráðuneytisins reynir á þekk-
ingu á íslenskri ntenningu og tengsl við
fjölmiðla, og þannig mætti lengi telja og
mest læra menn auðvitað í starfi. í mínu
starfi hef ég sjálf til dæmis haft mesta
gleði af mörgunt þeim verkefnum sem
hafa verið fjærst tninni eigin sérgrein."
Að verða heilsteypt mann-
eskja og setja markið hátt
- Þetta hljómar allt eins og þú hafir
verið búin að leggja línurnar fyrir nám
11