19. júní - 19.06.1985, Blaðsíða 72
Konur og tölvuvæðing:
Karlarnir marka stefnuna
konurnar sitja hjá
í þessari grein er ætlunin að fjalla lítillega um helstu niðurstöður skýrslunnar „Tölvuvæðing -
hlutur kvenna og karla á vinnumarkaðnum," sem unnin var seinni hluta sumars 1984 á vegum
Kvenréttindafélags íslands.
Aundanförnum áratugum hefur
mikið verið unnið að því víða um
heim að þróa og fullkomna
töivutæknina. Þróunin hefur
verið svo hröð, að stundum er talað um
tölvubyltingu, og henni jafnvel líkt við iðn-
byltinguna í lok síðustu aldar. Áhrifa þess-
arar tækniþróunar gætir víðast hvar í þjóð-
félaginu, og varla er nokkur þáttur atvinnu-
lífsins undanskilinn. Á íslandi voru það
framan af fáein fyrirtæki og stofnanir sem
gátu hagnýtt sér tölvutæknina í rekstri
sínum.og fámennur hópur tæknimenntaðra
sérfræðinga hafði vald á þessari tækni og
fylgdist með nýjungum á sviði hennar.
Síðastliðinn áratug hefur orðið breyting á
hvað þetta snertir. Tölvutæknin er að verða
mjög útbreidd í íslensku atvinnulífi og
möguleikarnir virðast óþrjótandi. Hinn
almenni borgari kemst nú ekki lengur hjá
því að tileinka sér tölvutæknina, einkum þar
sem verið er að tölvuvæða vinnuferlið á fjöl-
mörgum vinnustöðum.
Sem dæmi má nefna þróunina í íslenskum
bankamálum, en Reiknistofa bankanna var
stofnuð árið 1975, þegar bankarnir samein-
uðust um kaup á móðurtölvu. Á undan-
förnum árum hefur markvisst verið unnið að
því að beinlínutengja alla afgreiðslustaði við
móðurtölvuna. Árið 1979 tók Gjaldheimtan
í Reykjavík tölvutæknina í sína þjónustu, og
fer nú öll innheimta opinberra gjalda fram
með aðstoð tölvu.
Breytingar sem þessar hafa að sjálfsögðu
margþættar afleiðingar, bæði efnahagslegar ^
og félagslegar. Hagnýting tölvutækninnar 3
hefur aukið afköst og hraða, nákvæmni og 2
öryggi, skapað nýja möguleika, sparað fjár- *
magn og aukið hagkvæmni í rekstri fyrir- 1
tækja og stofnana. Svo virðist sem efnahags- £
legar afleiðingar séu að mestu leyti jákvæð-
ar. Hins vegar eru skiptar skoðanir um 03
félagslegar afleiðingar, einkum hvað varðar
stöðu kvenna á vinnumarkaðnum.
Samkvæmt erlendum atvinnuspám og
könnunum á áhrifum tölvuvæðingar á
atvinnulífið er gert ráð fyrir að at-
vinnutækifærum í ýmsum greinum muni
fækka í framtíðinni, og að þetta muni eink-
um bitna á konum. Mörg hefðbundin verk
kvenna, t.d. skrifstofustörf, er hagkvæmt að
vinna í tölvum.
Eins og nú er háttað er verksvið kvenna á
vinnumarkaðnum þrengra en verksvið
karla. Einnig er hlutur kvenna í hinni nýju
tæknibyltingu atvinnulífsins lítill. borið
saman við hlut karla. Karlar virðast vera
brautryðjendur á þessum vettvangi. Þeir
skapa og innleiða hina nýju tækni í atvinnu-
lífið, en konur fylgjast með úr fjarlægð.
Markmiðið með athugun á hlut kvenna og
karla á íslenskum vinnumarkaði eftir til-
komu tölvutækninnar er að kanna hvort
hlutfallið sé svipað hér og komið hefur fram
í rannsóknum og athugunum erlendis.
Gengið er út frá þeirri tilgátu að hlutur
þeirra sé ójafn og verkaskipting kynjanna á
tölvusviði skipi körlum í stjórnunar- og
nýsköpunarstörf, en konum í almenn skrif-
stofustörf, ritvinnslu og skráningu.
Innflytjendur og framleiðendur
tölvubúnaðar
Við höfðum samband við 34 fyrirtæki á
Súlurit I: skipting kynja í störf:
höfuðborgarsvæðinu, sem flytja inn og fram-
leiða tölvubúnað til að athuga stöðu kynj-
anna innan fyrirtækjanna. Viðtöl við for-
svarsmenn fyrirtækjann fóru fram símleiðis
á tímabilinu 26.júlí—S.ágúst 1984. Ýmsar
fyrirfram valdar spurningar voru lagðarfyrir
þá. Niðurstöður spurningalistans verða nú
raktar og m.a. er borið saman hlutfall kynja
í hinunt ýmsu störfum innan fyrirtækjanna.
Tekið skal fram að miðað er við störf en ekki
einstaklinga. Sami einstaklingurinn getur
gegnt fleiri en einu starfi.
Starfsmenn þeirra fyrirtækja, sem sjá um
innflutning og framleiðslu tölvubúnaðar eru
310 talsins, af þeirn hópi eru karlar 80 % og
konur 20 %. Konur vinna mun oftar hluta-
störf. 271 starfsmaður er í heilsdagsstarfi,
þar af 234 (86%) karlar og 37 (14%) konur.
Hlutastörf vinna 39, þar af 13 (33%) karlar
og 26 (67%) konur. Þetta hlutfall endur-
speglar skiptinguna, sem á sér stað á milli
kynja í heilsdags- og hlutastörfum í atvinnu-
lífinu almennt.
innan fyrictckja
72