19. júní


19. júní - 19.06.1985, Blaðsíða 44

19. júní - 19.06.1985, Blaðsíða 44
Guðrún Erla Geirs „Allir i draumar miðast við það að vera fri s er fjögurra ára. Fólkiö, sem bjó á efri hæðinni er flutt út og ég er á vappi í tómri íbúðinni. Á veggjunum blasa við mér förin eftir stóru málverkin þeirra, sem nú eru farin. Ég þekkti þessar myndir ekki, en tilvera þeirra verður mér allt í einu svo raunveruleg af því að þær eru farnar. Þetta er fyrsta minningin mín um myndlist. - Löngu seinna geri ég svo leikmynd við Ger- trude Stein, Gertrude Stein, Gertrude Stein og þá nota ég þessa minningu til að vekja sömu hughrif hjá áhorfendum og ég fann fyrir þá.“ -Varstu þá ákveðin í því frá barn- æsku að leggja fyrir þig myndlist? „Nei, alls ekki. Ég byrjaði meira að segja í Versló en hætti þar fljótlega, fór að vinna í búð, eignaðist barn...ég var þó alltaf ákveðin í einu: því að verða ekki húsmóðir. Ástæðan til þess að ég hætti í skólanum var að ég vildi eignast mína eigin íbúð og flytjast að heiman.“ -Vesen hcima? „Nei, nei, alls ekki, foreldrar mínir eru yndislegt fólk og sambandið var gott. En ég held ég hafi alla tíð verið haldin óskaplegri sjálfstæðisþörf, ég vildi bara vera sjálfs míns herra.“ -Tókst það? „Tja, 19 ára átti égson ogeigin íbúð. Það var þá sem ég fór í Myndlista- og handíðaskólann, tók fyrst teiknikenn- arapróf og fór svo eitt ár í textíl.“ -Hvað varstu að hugsa? Um að verða teiknikennari eða leistu á þetta sem undirbúning undir eigin sköpun? „Kennaraprófið var af hagsýnisástæð- um. Ég gerði ntér grein fyrir því, að skapandi listamenn geta átt erfitt fjár- hagslega, ég vildi tryggja mér starfs- Sú listakona, sem 19. júní kynnir hér fyrir lesendum sínum er Guðrún Erla Geirsdóttir- Gerla. Hún hefur ekki hvað síst vakið athygli fyrir leikmyndir sínar, en hún vann leikmynd þessara verka: Skjaldbakan kemst aldrei þangað (Egg-leikhúsið), Hin bitru tár Petru von Kant (Alþýðuleikhúsið), Gertrude Stein, Gertrude Stein, Gertrude Stein (Þjóðleikhúsið) og Klassapíur (Alþýðuleikhúsið). Hlutur Gerlu í þessum sýningum hlaut mikið lof. Um það leyti, sem þetta er skrifað, vann Gerla að undirbúningi Listahátíðar kvenna, sem fram fer í haust og er eitt af því, sem gert verður í tilefni lokaárs kvennaáratugs Sameinuðu þjóðanna. 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.