19. júní - 19.06.1985, Blaðsíða 29
Konur og reykingar
tímabili. Annars vegar miðhlutun á
eggjaleiðurum um lítinn holskurð, hins
vegar hefur verið brennt fyrir og í
sumum tilfellum einnig klippt á
túburnar gegnum kviðarholssjá. Á
umræddu tímabili voru gerðar 1.048
ófrjósemisaðgerðir á deildinni.
„Reynt var að meta fjölda og umfang
áfalla fyrir og eftir aðgerð. Ljóst er að
væg áföll eru oft vantalin í sjúkraskrám,
enda ekki vel skilgreind. Pað eru og hin
stærri áföll sem máli skipta. Alls voru
44 konur taldar verða fyrir einhverjum
úföllum eða 4.2%. Fáeinar urðu fyrir
fleiri en einu vægu áfalli. Fjögur voru
alvarleg, 2 innvortis blæðingar eftir
kviðarholsspeglun þörfnuðust upp-
skurðar. Önnur uppgötvaðist strax, en
hin nokkrum klukkustundum eftir
Lykkju komið fyrir í legi
aðgerð. Ein kona fékk lungnarek eftir
holskurð og önnur rifu á görn við
sPeglun.“ Kviðspeglun tókst ekki hjá
16 konum og því gerður holskurður, 12
konur fengu blæðingu í kviðvegg og 11
sýkingu í skurðsár.
Af þessari upptalningu má sjá að það
er hvergi nærri hættulaust að nota þær
getnaðarvarnir sem eru hvað algeng-
astar f dag. En eru getnaðarvarnir
einkamál kvenna? Eru karlmenn ef til
V>11 reiðubúnir að leggja á sig allar þær
heilsufarslegu aukaverkanir sem tak-
mörkun barneigna hefur í för með sér?
Reykingar
kvennamálefni?
S
júkdómsfaraldrar vekja oftast athygli. Nýlegt dæmi er AIDS,
áunnin ónæmisbæklun. Sumir faraldrar þótt stærri séu vekja
% % minni athygli. Má þar nefna lungnakrabbamein meðal
kvenna, sem eykst óhugnanlega. Að minnsta kosti 85% af
lungnakrabbameini er talið stafa af sígarettureykingum. Reykingar
kvenna hafa aukist stöðugt síðustu áratugina og halda áfram að aukast þó
að reykingar meðal karla séu í rénun.
Er nú svo komið að dauði úr lungnakrabbameini fer að verða algengasti
krabbadauði kvenna í Bandaríkjunum, algengari en dauði af völdum
brjóstakrabbameins, og hefur tvöfaldast á síðustu tólf árum.
Reykingar valda einnig ýmsum öðrum sjúkdómum en krabba, svo sem
Iungnaþembu, astma, hjarta- og æðasjúkdómum, veiklun í börnum reyk-
ingafólks og fleiru. Þessar köldu staðreyndir þurfa að ná eyrum kvenna,“
segir Stefán Þórarinsson læknir á Egilsstöðum, sem þýddi eftirfarandi rit-
dóm fyrir 19. júní.
The Ladykillers (kvennamorð-
inginn): Hvers vegna eru reyk-
ingar kvennamálefni:
Bobbie Jacobsson heitir kona,
sem er framarlega í hinni al-
þjóðlegu kvennahreyfingu.
Hún er ein af fáum í þeim hópi,
sem hefur vakið athygli á hætt-
unni, sem konum sérstaklega
stafar af reykingum. Bobbie
Jacobsson hefur skrifað bók,
sem hún kallar: THE LADY-
KILLERS WHY SMOK-
ING IS FEMINISTISSUE.
þær hjálpuðu mér að bæla niður þessar
tilfinningar. Þær voru einu ytri merkin
um tilfinningar mínar, sem ég gat látið
í ljós,“ segir 37 ára ritari, sem tókst að
hætta að reykja.
Kvennamálefni?
- Eru reykingar í rauninni „kvenna-
málefni“?
Þær eru augljóslega kvennamálefni í
því ljósi, að konurnar eru hinir nýju
reykingamenn og sjúkdómar, sem stafa
af reykingum, höggva stærri skörð í
raðir kvenna en hinir hefðbundnu
kvennasjúkdómar, t.d. krabbi í
brjóstum og kynfærum.
„Reykingar slæva tilfinningarnar
þannig, að ég velti því ekki eins fyrir
mér hversu erfitt ég á,“ segir 64 ára
kona, sem reykir 20 sígarettur á dag.
„Ég vil ekki öskra og rífast við fjöl-
skylduna, svo ég reyki heldur,“ segir
húsmóðir.
„Ég hef alltaf átt erfitt með að tjá
reiði mína og óróa. Sígaretturnar voru
þýðingarmiklar fyrir mig vegna þess, að
29