19. júní - 19.06.1985, Blaðsíða 68
Hlíf Samúelsdóttir með vörur sínar. (Ljósmynd Anna Fjóla Gísladóttir).
lagi hafði faðir minn verið með innflutn-
ing og smáfyrirtæki í mörg ár og ég var
kunnug svona smárekstri. í framhaldi
af öllu þessu fæddist sú hugmynd að
kannski mætti slá tvær flugur í einu
höggi, nota bílskúrinn og skapa mér
atvinnu um leið, þar sem ég gæti verið
meira heima við en ef ég væri útivinn-
andi og gæti því sinnt heimilinu og
börnunum.“
Hóf innflutning með
aðstoð föður síns
Fyrritækið mátti ekki þurfa á miklu
lagerplássi að halda, svo snyrtivöruinn-
flutningur hentaði vel fyrir Hlif. Og
hún hcldur áfram: „Ég fór til föður
míns, sem hefur heildsöluleyfi og
spurði hvort hann vildi hjálpa mér af
stað.
Hann gerði það. Ég mátti flytja inn á
hans nafni á meðan ég væri að athuga
minn gang og hann hjálpaði mér meira
að segja að fjármagna fyrstu sending-
una.
Pegar ég var búin að fá sýnishorn
gekk ég með þau í nokkrar búðir til að
vita hvernig vörunum yrði tekið og fékk
Vantaði þægilega vinnu
og stofnaði heildsölu
Það eru ein fjórtán ár frá
því ég var einu sinni að
yy fletta þýsku blaði, eins og
ég geri oft síðan ég var í
Þýskalandi. Par rakst ég á auglýsingu
um snyrtivörur, sem ég hafði reyndar
keypt stundum úti og þekkti því og vissi
að voru ekki til hérna heima. Þetta voru
snyrtivörur frá Ellen Betrix. Ég skrifaði
út til fyrirtækisins og spurði hvort ég
gæti fengið umboð fyrir vörurnar, og
fékk jákvætt svar,“ segir Hlíf Samúels-
dóttir eigandi Heildverslunarinnar
Elbu, þegar við spyrjum hvert sé upp-
hafið að þessum sjálfstæða atvinnu-
rekstri hennar.
„Þeir hjá Ellen Betrix sögðust
gjarnan vilja fá umboðsmann á íslandi.
68
Þeir væru með umboð á hinum Norður-
löndunum og hefðu áhuga á að kanna
hvernig salan gengi hér.
Annars lág tvennt, eða kannski
þrennt til þess að ég ákvað að reyna
þetta. Fyrst og fremst það að við hjónin
vorum að byggja hús á Flötunum í
Garðabæ og fjárhagurinn var bágbor-
inn hjá okkur eins og flestum sem byrja
að byggja. Sú kvöð fylgdi byggingunni
að bílskúrinn varð að vera tvöfaldur og
inn í þessum tvöfalda bílskúr hringlaði
einn lítill Volkswagen. í öðru lagi hafði
ég unnið hjá lögfræðingi þangað til við
fluttum hingað, en það var orðið erfitt
að hendast með börnin fram og aftur í
sambandi við vinnuna, svo ég hætti að
vinna úti eftir að við fluttum. í þriðja
jákvæðar móttökur. Ég byrjaði í mjög
smáum stíl, en þetta er eins og önnur
verslun, hleður utan á sig. Þegar ég var
búin að vera með innflutninginn í ár og
borga föður mínum það sem hann hafði
lánað mér stofnaði ég mína eigin heild-
verslun, Elbu, og síðan hefur þetta
verið hérna í bílskúrnum hjá mér.“
Hlíf segir okkur, að hún selji vörur
sínar í nokkrar verslanir úti á landi, í
Keflavík, á Akureyri, Húsavík, ísafirði
og Selfossi og svo auðvitað í verslanir í
Reykjavík. „Annars hef ég reynt að
hafa sanngjarnt bil á milli verslananna
hér í borginni því mér hefur fundist það
vekja meiri áhuga á vörunni, að hún sé
ekki í hverri búð.“
- Hefurðu orðið vör við þrýsting frá