19. júní - 19.06.1985, Blaðsíða 19
„Um þrítugt," sagði Sveinn, því þá
væri hann búinn að þekkja alla í hverf-
inu.
Hlaupa afsér hornin
Brynju fannst aldurinn frá 17 og upp
úr heppilegastur. Hin töldu það vera
Tómas Hallgrímsson
frá 25 ára og upp úr, því þá myndu þau
vera búin að gera allt sem þau ætluðu
sér og lilaupa af scr hornin og gætu því
farið að setjast í helgan stein.
„Heppilegur aldur fer eftir því hvað
fólk er að gera hverju sinni. Fólk í námi
ætti ekki að hefja hjúskap en ef fólk er
larið að vinna skiptir það ekki máli,“
sagði Bernhard.
-Ætlið þið að gifta ykkur?
„Ekki ótilneyddur,“ varð Bjarka að
orði.
Brynja sagðist ekki leggja það á
nokkurn mann fyrr en uin fimmtugt, ef
einhver vildi hana þá. Pau hin sögðust
hiklaust ætla að gifta sig, ef þau fyndu
einhvern sem þau langaði til að deila líf--
inu með.
-Hvers væntið þið af hjónabandinu?
Flestir vonuðust eftir hamingju og
ást, og vildu engu við það bæta. Einn
vonaðist þó eftir samvinnu og samstilltu
átaki eins og hann orðaði það. Og svo
var það ein sem bjóst við skilnaði, svo
mikil var trúin á hjónabandið!
-Finnst ykkur börn vera nauðsynleg
til að fullkomna hjónabandið?
Bjarki: „Já, já. Ég ætla að byrja á að
eignast eitt, en ef það verður eitthvað
misheppnað þá steinhætti ég þessu."
Ragnar: „Þau eru ekki nauðsynleg til
að fullkomna hjónabandið heldur til-
veruna."
Brynja: „Mér finnst þau vera nauð-
synleg, því þau binda fólk betur saman,
og þegar það á annað borð er orðið
bundið, þá sakar ekki að treysta
böndin.“
Halldóra Traustadóttir
Börn nauðsynleg
Einni fannst það þó ekki vera skilyrði
að eignast börn, en hinum fannst þau
fara á mis við svo mikið, ef engin börn
væru og vildi eignast minnst þrjú
Gujón Böðvarsson
stykki. Barn er sameiginlegt áhugmál
hjóna og þar með skilur hjónabandið
eitthvað eftir bætti einn við.
-Hvernig viljið þið hafa hlutverka-
skiptinguna á ykkar heimili?
Um þetta atriði voru flestir sammála.
Allir vildu hafa hana jafna eða eftir
samkomulagi. Þannig væri best að hafa
hana, en bjuggust þó ekki við að það
gæti nokkurn tímann orðið svo.
Best væri þó að bæði gætu fórnað sér
til að ala upp börnin: Annars færi það
19