19. júní - 19.06.1985, Blaðsíða 67
láta hann detta þar í sjóinn, en það verkefni
fengum við fyrir skömmu.“
- Er þetta skemmtilegur atvinnurekslur?
„Já, mjög spennandi. Þyrluheimurinn í
veröldinni er sérstakur heimur. Hann er það
smár að allir þekkjast. Menn hittast tvisvar
á ári, oftast í Los Angeles eða Las Vegas, en
nú síðast var fundurinn í New Orleans. Þar
hittast allir sem framleiða þyrlur, selja þær,
gera þær út og selja allt sem tengist þeim.“
Kynferði skiptir ekki máli
- Er þyrluheimurinn ekki karlaheimur?
„Jú, sennilega f meira mæli en flest önnur
atvinnusvið í heiminum. Þegar ég birtist
fyrst á fundum sem þyrlueigandi urðu menn
svolítið skrítnir, en ég nýt þar nú nokkurrar
sérstöðu, fyrir að vera kona.“
- Ertu ennþá með umboð fyrir þyrlur?
„Já, en markaðurinn er ekki stór hér á
landi. Ég á eina Hughes þyrlu, Landhelgis-
gæslan á aðra og óvíst hvort rúm er fyrir
fleiri. En þetta fyrirtæki Hughes Helicopt-
ers, á sér skemmtilega sögu. Það var sá sér-
vitri Howard Hughes, sem átti fyrirtækið, en
hann vann meðal annars það afrek að finna
upp brjóstahaldarann. Hann lét líka smíða
flugvél, sem enn er sú stærsta í heimi. Hún
átti að geta flutt 750 hermenn í fullum her-
klæðum, var mcð 8 mótora, smíðuð úr kross-
viði. Hún hóf sig til l'lugs aðeins einu sinni,
í fimm mínútur árið 1947. Þessi flugvél er nú
komin á safn í Los Angeles, þar sem einnig
er til sýnis gatnla farþegaskipið Queen
Mary.“
- Nú eru Þyrluþjónustan og þyrluumboðið
aðeins hluti af umsvifum þínum og því langar
mig að spyrja þig hvernig sé að vera arkitekt
hér og nú?
„Þetta er harður bransi."
- Er hann erfiðari fyrir konur en karla?
„Ég tel ekki að kynferði skipti svo miklu
máli og ég hef alla tíð hagað mér eins og það
skipti ekki máli, þó að vafalaust finnist sumu
fólki annað.
Ég verð að viðurkenna að stundum eru
sagðir við ntann hlutir sem ekki eru sagðir
við karlmenn, en ég reyni að láta það ekki á
mig fá.
Og líttu bara á Thatcher í Englandi.
Oxford háskóli neitaði að gera hana að heið-
ursdoktor. Þeir hefðu örugglega ekki neitað
karlkyns forsætisráðherra.
Maður mætir vissri tortryggni í fyrstu á
byggingastöðunum. Menn svona gá að því
hvort ntaður hafi í raun og veru vit á því sem
verið er að gera. En þetta viðhorf hverfur
fljótt, þegar þeir heyra að maður kann sitt
fag. Það er um að gera í byrjun að gefa ekki
höggstað á sér,“ segir Albína Thordarson að
lokum.
Rannveig Jónsdóttir
Eftirtaldir aöilar hafa styrkt blaðið
Vouge
Skólavörðustíg 12, sími 25866
Sláturfélag Suðurlands
Hans Petersen
Lynghálsi 1, sími 83233
Brunabótafélag íslands
Laugavegi 103, sími26055
Bílaborg hf.
Smiðshöfða 23, sími 81299
Hampiðjan hf.
Stakkholti 2, sími 28100
Niðursuðuverksmiðjan ORA
Vesturvör 12, sími 41995
Örtöivutækni hf.
Ármúla 38, sími 91-687220
Mjólkursamsalan
Laugavegi 162, sími 10700
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.
Þverholti 20, sími 11390
KVENFATABUÐIN
ÚRVAL AF DAG- OG KVÖLD-
KJÓLUM
Sumarkjólar, pils og blússur st. 38-60.
Fatnaður í yfirstærðum ávallt í úrvali.
Litmyndalisti
Póstsendum
KVENFATABÚÐIN
LAUGAVEGI 2 101 REYKJAVÍK
S:12123
Viltu
vinna
stundum?
Afleysmga- og ráðningaþ/onusta
I iáca. iLrl hf (W
67