19. júní


19. júní - 19.06.1985, Side 12

19. júní - 19.06.1985, Side 12
þitt og starf fyrirfram og utmið skipu- lega að ákveðnu marki. Ertu kannski sú manngerð sem tekur stefnu og heldur svo fast við hana hvað sem á gengur? „Ekki get ég nú beinlínis tekið undir það, en þegar maður rekur feril sinn eins og ég hef gert, þá hljómar það kannski eins og bein lína sem ákveðin var fyrirfram og allt er slétt og fellt. Ég held m.a.s. að það geti reynst manni skeinuhætt að ákveða of mikið fram í tímann og hengja sig í einhverja eina leið og líta svo á sig sem píslarvott ef hún reynist ekki fær. En það er nauð- synlegt að setja markið hátt og miða að því að verða heilsteypt manneskja og reyna að standa undir trausti í stórum málum og smáum. Kínverjar eiga marga merkilega orðskviði, þar á meðal að ekki beri að stefna að háum stöðum, heldur stefna að þeirri þekk- ingu og reynslu sem þarf til að gegna hárri stöðu. Sá sem því marki hefur náð, hefur raunarhreppthnossið, hvort sem staðan fylgir eða ekki.“ / karlaheimi - Hvernig er svo að vera kona í karla- heimi utanríkisþjcmustunnar? „Ég held að það sé varasamt að líta á karlmenn sem órofaheild, sem standa sameinaðir að því að útiloka konur og berjast gegn þeim. Ég held að það geri þeirri konu lífið nær óbærilegt sem hugsar um umhverfi sitt á þann hátt. Þó svo það sé mikið áhyggjuefni hve illa er komið fram við konur á vinnumark- aðnum og hve illa þeim gengur að kom- ast áfram. Draugar úr fortíðinni gægj- ast sífellt fram og ekki síst á örlaga- stundu við mannaráðningar og ákvarð- anir um stöðuhækkanir. Ég gæti nefnt hér alþekkt dæmi, þegar karlmaður kemur á vinnustað og spyr konu „hvort enginn sé við“. Það er auðvitað ekki hægt að móðga annan einstakling meira en með því að afneita tilvist hans beint upp í geðið á honum. Þetta er slæmt þó það séu ekki samantekin ráð að vinna skipulega gegn konum. Við vitum að karlmenn keppa innbyrðis og fordómar ríkja gegn karlmönnum vegna ýmissa þátta. Við vitum líka að besti karlmað- urinn kemst ekki alltaf lengst. Allar svona kenningar um ástandið eins og það er, vekja engan sérstakan áhuga hjá mér, heldur fyrst og fremst leita ég úrlausnar. 12 Gamlar goðsagnir og manndómspróf Hvað á til bragðs að taka? Hvernig á maður sem einstaklingur að bregðast við þessum fordómum sem enginn einn getur kveðið niður. Ég held að svarið felist í því að trúa á eigin málsstað og láta ekki andstæðinga jafnréttisins segja sér hver maður er. Amma mín, Ásdís Þorgrímsdóttir, brynjaði sig gegn fordómunum með setningu sem eftir henni er höfð: „það er allt satt sem sagt er um konur. Það gildir bara um bæði kynin“. Ég skildi hana ekki til fullnustu þegar hún sagði þetta, ég var svo lítil, en síðan hafa þessi orð hennar og aðrar brýningar fylgt mér, en amma var brennandi í anda jafnréttisins. „Karlar“, sagði amma, „eru verndaðir fyrir gangrýni á störf sín og frammi- stöðu vegna goðsagnarinnar um karl- manninn, konur aftur berskjaldaðar fyrir gagnrýni vegna goðsagnarinnar um konuna. í raun eiga allir lestir sem eignaðir eru konum einum við bæði kynin og munurinn á þeim í öllu því sem máli skiptir er sáralítill." Við barnabörnin gegnum öll undir „manndómspróf“ hjá ömmu, að geta drukkið kaffi. Ég hef allt frá því að hún eggjaði mig til kaffidrykkju sex ára gamla verið kaffisvelgur eins og hún. Amma var af aldamótakynslóðinni og trúði á hæfileika fólks og bjartari framtíð. „Lítið þjóðfélag hefur ekki efni á að hundsa hæfileikafólk. Það kemur ekkert í staðinn fyrir greind og hæfni“ sagði hún einhvern tíma, „hvorki kynferði né ætterni.“ Það er ekki svo lítið að hafa fengið hvatningu af þessu tagi sem barn. Að banka upp á Lítum á hvernig aðrir hópar hafa brugðist við fordómum og borið sigur úr býtum. Faðir minn hefur sagt mér hversu erfitt það var fyrir stráka utan af landi og stúdenta frá Akureyri að verða fullgildir í hópi háskólastúdenta fyrir sunnan. Þá voru tilteknar embættis- mannaættir og ekki nægði að vera karlkyns. Smám saman sönnuðu utan- bæjarmennirnir ágæti sitt og enginn spyr lengur hvar menn eru fæddir og menntaðir fram að stúdentsprófi í dreifbýli eða þéttbýli. Utanbæjar- mennirnir bönkuðu upp á og gerðu til- kall til æðstu embætta í þjóðfélaginu, og þeir sem fyrir voru veittu mótstöðu til að byrja með. Mér finnst það hjálpa mér til að sætta mig við þetta ástand að reyna að sjá okkur konur sem nýjan hóp sem bankar upp á, og megum ekki gefast upp þótt ekki sé opnað í fyrstu umferð". — Finnst þér einhver munur á við- horfum erlendra karla og íslenskra til þess að kona sé diplómat? Sigríður Snævarr fór að skellihlæja við þessari spurningu og sagði að það væru nær 160 ríki í Sameinuðu þjóð- unum þannig að stórt væri spurt. „En síðan frú Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti finnst mönnum auðvitað eðlilegt að aðrar íslenskar konur geri hvað sem er. Ég man að þegar frú Vigdís var kjörin forseti var ég í sendi- ráðinu í Moskvu og veitti því forstöðu í fjarveru sendiherra. Einn sendiherrann sem hringdi til að óska okkur til ham- ingju með nýjan forseta spurði svo í leiðinni: „En hvernig er það, fá strák- arnir ekkert að gera hjá ykkur lengur?" J

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.