19. júní


19. júní - 19.06.1985, Síða 35

19. júní - 19.06.1985, Síða 35
Konur og ofneysla áfengis Konureru þrautseigari - Er munur á meðhöndlun karla og kvenna þegar inn á meðferðarstofnanir er komið? „Það er enginn meðvitaður munur þar á, en vissulega hlýtur það að hafa sín áhrif hversu miklu færri konur eru á þessum stofnunum. Hins vegar er það ljóst að þegar inn á afvötnunarstöð er komið eru vandamálin mjög áþekk og skiptir kynferði þar engu máli. Flestir standa í mjög svipuðum sporum, bug- aðir af skömm yfir því hvernig komið er fyrir þeim. Hins vegar eru konur þrautseigari við að halda meðferðina út. Flestar konur halda sig inni allan þann tíma sem þeirn er ætlað, en karlmenn virðast frekar telja sig ómissandi, finnst þeir síður geta fórnað öllum þessum tíma í burtu frá vinnu. Þar kemur þessi hefðbundni hlutverkaleikur í þjóðfélaginu skýrt fram.“ Konur ná betri árangri ~ En er árangur svipaður hjá báðum kynjum? „Það kom okkur mjög á óvart þegar viðárið 1981 könnuðum árangur þeirra sem dvalið höfðu í eftirmeðferð á Sogni frá því að þar var opnað. Þá kom í ljós að konur sýndu bctri árangur en karlar. Ef til vill má skýra það að hluta til með því að konur eru að öllu jöfnu ekki eins illa farnar og langt gengnar þegar þær 'eita aðstoðar. Þar kemur aftur að lík- amlega þolinu og svo félagslegu um- burðarlyndi." ~ En þegar illa fer, eru konurþá tregari hl að koma aftur til meðferðar? „Nei, konur sýna engu meiri tregðu hl endurkomu ef þörf krefur. Hins Vegar er rétt að taka það fram að allir alkóhólistar sem búnir eru að fara í nieðferð og hafa fallið eins og það er kallað, eiga mjög erfitt með að sætta sig við það og leita sér aðstoðar að nýju.“ Kfargt gœti breyst_______________ Þetta voru lokaorð Þórarins Tyrf- 'ngssonar. Alkóhólismi er mjög fjöl- Þórarinn Tyrfingsson yfírlæknir. (Ljósmynd Anna Fjóla Gísladóttir). þætt vandamál. Það er því hæpið að rýna aðeins á einstaka þætti hans eða draga menn í dilka eftir kynjum eða einstökum vímuefnum. Það þarf góða heildaryfirsýn yfir alla þætti til að hægt sé að skilja þennan sjúkdóm að ein- hverju marki. Það er athyglisvert að velta fyrir sér ýmsu því sem fram kemur hjá Þórarni eins og til dæmis því að konur skuli síður hneigjast til alkóhólisma en karlar. Skýringar gæti verið að leita í því að tiltölulega stutt er síðan að neysla kvenna á áfengum drykkjutn var viðurkennd. Og enginn verður jú alkó- hólisti fyrr en hann neytir einhvers vímugjafa. Þetta hefur þó breyst mikið. Svo- nefnd félagsleg drykkja er nú engu minni hjá konum en körlum og kann- anir sýna að neysla kannabisefna er hlutfallslega jafnmikil meðal kvenna og karla á aldrinum milli tvítugs og þrítugs í þeim hópi sem komið hefur til með- ferðar. Einnig bendir margt til þess að ungar stúlkur séu jafnvel harðari af sér en piltar við að nálgast margvísleg vímuefni til neyslu. Alkóhólismi er í dag viðurkenndur senr sjúkdómur. Stöðugt er unnið að rannsóknum á þessum sjúkdómi, or- sökum hans og afleiðingum. Hins vegar er vafasamt að nokkru sinni komi fram lyf sem læknað geti menn af alkóhól- isma. Því eins og Þórarinn komst ein- hvern tíma að orði: „Ef fram kæmi lyf sem ynni gegn þeim áhrifum sem áfengið hefur á alkóhólistann, þá gæti hann allt eins haldið sig við kranavatn- ið.“ 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.