19. júní


19. júní - 19.06.1985, Side 66

19. júní - 19.06.1985, Side 66
W-Á Æ kjp'i' i \ 7 m 1 j&Jmi í Albína Thordarson við þyrlu sína. (Ljósmynd Anna Fjóla Gísladóttir). Ég spyr hana fyrst wn þyrluþjónustuna og hvers konar fyrirtœki þetta sé. „Þyrluþjónustan er minnsta flugfélag á landinu, með fjögurra farþega sætaframboð og þyrlan mín er sú eina í einkaeign á land- inu. Þetta er þó ekki ódýrasta flugfélagið í rekstri, þar sem þyrla kostar á að giska fimm sinnum meira en venjuleg flugvél, sem ber jafn marga.“ - En hvernig gengur reksturinn? „Hann gengur vel í þeim skilningi að ég er með fyrsta flokks flugvél og hef verið með fyrsta flokks flugmenn. Ég hef flugmann í fullu starfi á sumrin, cn kaupi viðhald á þyrl- unni af öðrum.“ - Hvernig stóð á því að þú fórst úl íþennan rekstur? „Fyrri maðurinn minn, Ásgeir Höskulds- son, var umboðsmaður fyrir Hughes Heli- copters. Við vorum nýbúin að kaupa þyrlu þegar hann fórst 1977. Þá tók ég við umboð- inu, enda hafði ég fylgst með starfi hans og tekið þátt í því með honum. Þremur árum síðar stofnaði ég svo þyrluþjónustuna." Fólksbíll látinn detta í flóann - Hver eru verkefni fyrir þyrlur á íslandi? „Þau eru margvísleg, en þó engan veginn eins margvísleg og í öðrum löndum. Það stafar meðal annars af því að við erum á norðurslóðum að verkefnin eru flest sumar- verkefni. Þess vegna nota ég Hughes 500 D þyrlu, sem er kröftug og traust vél. Til cru ódýrari þyrlur í sama stæröarflokki, en í íslensku veðurfari, ekki síst á hálendinu, vil Þyrluheimurinn er karlaheimur Albína Thordarson stundar tvær at- vinnugreinar. Aðra þeirra stunda nokkrar konur á íslandi, en hina er hún algerlega ein um hér á landi og jafnvel í heiminum. Hún gerir út þyrlu með starfi sínu sem arkitekt, ogekki er alltaf ljóst hvort er aðalstarfið. Á efstu hæð í Skipholti 37 er Albína til húsa, með bæði sín störf, í björtu og rúm- góðu turnherbergi, með útsýni til allra átta. Þar reka þær saman teiknistofu, hún ogyngri 66 systir hennar Guðfinna, sem einnig er arki- tekt. Þær systur eru niðursokknar í störf sín við teikniborðin, þegar blaðamaður 19. júní lítur inn einn vordaginn, til að spyrja frétta. Albína býður upp á kaffi, glaðleg og hress í fasi og ber sig um með sjálfsöryggi þeirrar persónu, sem veit hvað hún vill. Albína hafði sagt mér að koma þennan dag, þó að allt væri vitlaust að gera, því að næsta vika yrði enn verri. ég ekki gera þær út. Það er engin tilviljun hvað þessar þyrlur eru algengar í Norður- Noregi, Svíþjóð, Norður-Kanada og Alaska. En verkefnin eru mörg: landmælingar, vatnamælingar, steypuvinna, efnisflutningar af ýmsu tagi í krók neðan á vélinni, smala- mennska og flutningur á kindum, flutningur á skíðamönnum á háa tinda og flutningur á girðingarefni. Fjölmargt annað mætti nefna, svo sem að flytja fólksbíl út á Faxaflóa og

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.