19. júní


19. júní - 19.06.1985, Síða 77

19. júní - 19.06.1985, Síða 77
16. landsfundur Kvenrétt- r indafélags Islands landsfundur Kvcnrétt- indafélags Islands var haldinn dagana 15. og • 16. mars 1985 í Menning- armiðstöðinni Gerðubergi Reykjavík. Fundinn sátu um 80 manns víðs vegar að af landinu. Menntamálaráðherra, Ragnhildur Helga- dóttir flutti ávarp í upphafi fundarins. Rifj- aði hún upp þá tíma er hún gekk í KRFÍ, starfsemi þess þá og nú og aukningu á virkni ungra kvenna innan félagsins. Hún kom einnig með þá hugmynd að félagsmenn í KRFÍ fari í framhaldsskólana og kynni starf- semi sína þar og taldi það vænlega leið til að ná til ungs fólks. Aðalviðfangsefni landsfundarins var kynning á niðurstöðum könnunar sem KRFÍ lét gera um hlut kvenna og karla á vinnumarkaðnum eftir tilkomu tölvubylting- arinnar. Þá var fjallað um skattamál hjóna, launamál kvenna auk innri nrálefna félagsins. Framsöguerindi voru átta og öll flutt fyrri daginn. Sólveig Ólafsdóttir sagði frá ’85- nefndinni, samstarfsnefnd um lok kvenna- áratugar SÞ á Islandi. Ragnheiður Harðar- dóttir, Sigrún Jónsdóttir og Sveinbjörg Svav- arsdóttir kynntu niðurstöður könnunar senr þær höfðu unnið fyrir KRFÍ, „Tölvutæknin. Hlutur kvenna og karla á vinnumarkaðn- um“. Greint er frá þessari athugun annars staðar í blaðinu. Jónína M. Guðnadóttir fjallaði um breytingar á stefnuskrá félagsins og drög að reglugcrð 19. júní. Brynhildur Kjartansdóttir var með hugleiðingar um Menningar- og minningarsjóð kvenna. Ingi- björg R. Guðmundsdóttir fjallaði um launamál kvenna og Arndís Steinþórsdóttir fjallaði um skattamál hjóna. Að loknum framsöguerindum voru umræður. Fyrri degi landsfundar lauk með heimsókn landsfundarfulltrúa að Bessastöð- um til forseta íslands, Vigdísar Finnboga- dóttur. Laugardaginn 16. mars hófst landsfundur kl. 9.00 með því að fjórir starfshópar störf- uðu. Starfshópur 1 fjallaði um tölvutæknina og hlut kvenna á vinnumarkaðnum. Helstu niðurstöður starfshópsins voru: a) Að nauðsynlegt væri að vinna markvisst að því að gera konum kleift að nota sér tölvutækni. b) Þar sem fyrirsjáanlegt væri atvinnuleysi kvenna í kjölfar tölvubyltingarinnar væri nauðsynlegt að ríkið kostaði og skipu- legði endurmenntun vinnuaflsins. c) Mikilvægt væri að starfsmenn fengju tækifæri til þess að fylgjast með ákvarð^ anatöku og skipulagningu tölvuvæðingar í fyrirtækjum. d) Starfshópurinn beindi því til stjórnar KRFÍ að vinna að aukinni umræðu um þessi mál og athuga möguleika á fræðslu- námskeiðum um tölvur. Samþykkt var ályktun frá starfshópnum þar sem bent er á þá staðreynd að sú nýsköðun atvinnulífs hér á landi sem nauð- synleg er talin og stjórnvöld stefna að mun snerta mjög viðkvæma stöðu kvenna með takmarkaða grunnmenntun á vinnumark- aðnum. Skorað er á félagsmálaráðuneytið að það beiti sér fyrir átaki til menntunar kvenna í verslunarstétt sent nú þegar eru að hverfa af vinnumarkaði vcgna tækniþróun- ar. Loks er átalin harðlega skipan starfshóps um nýja tækni á vegum félagsmálaráðuneyt- isins, þar sem engin kona á sæti í. Starfshópur 2 fjallaði um innri mál KRFÍ. Hópurinn gerði lítillegar breytingar á stefnuskrá KRFÍ og verður hún sérprentuð og gefin út síðar ásamt lögum KRFÍ. Þá var samþykkt tillaga frá hópnum um að hlutast verði til um að 10. grein skipulagsskrár MMK verði breytt þannig að á landsfundi KRFÍ verði kosnar 3 stjórnarkonur og 2 til vara, en á aðalfundi KRFÍ í Reykjavík mitt á milli landsfunda verði kosnar 2 stjórnar- konur og 3 til vara. Starfshópurinn lagði fram drög að reglu- gerð fyrir 19. júní og lagði til að þau yrði samþykkt sem var og gert. Starfshópur 3 fjallaði um skattamál hjóna. Miklar umræður og skiptar skoðanir voru í þessum starfshópi. Hópurinn lagði fram áskorun sem var samþykkt. Þar cr skorað á stjórnvöld að halda áfram á þeirri braut til sérsköttunar við álagningu tekjuskatts á hjón, sem mótuð var með lögum nr. 40/1978 um tekur og eignarskatt. Einnig eru árétt- aðar tillögur KRFÍ um skattalegar ívilnanir til þeirra sem annast uppeldi barna á heim- ilum með stórauknum barnabótum. Og loks var lögð áhersla á að skattaframtal hvers einstaklings sé sjálfstætt skjal og skráð á framteljanda sjálfan. Starfshópur 4 fjallaði um launamál kvenna. Engin sameiginleg niðurstaða kom úr umræðum hópsins. Lögð var fram og sam- þykkt áskorun til Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra um að hann láti nú þegar framkvæma könnun á því hvers vegna launamismunur kynjanna er svo mikill sem ra,un ber vitni. Eftir að starfshópar höfðu kynnt niður- stöður sínar voru almennar umræður, og til- lögur og áskoranir samþykktar. Samþykkt var tillaga um að gera Auði Auðuns, fyrrverandi dóms- og kirkjumála- ráðherra að heiðursfélaga KRFÍ. Auður hefur starfað ötullega að hagsmunamálum kvenna og m.a. starfað innan KRFÍ og verið formaður MMK í 25 ár. Þá var skorað á menntamálaráðuneytið að stórauka starfsfræðslu nteð sérstakri áherslu á jafnrétti kynjanna jafnt á grunn- skóla- og framhaldsskólastigi, svo ung- lingum finnist sjálfsagt að fara nýjar leiðir í starfsvali. Fundurinn taldi að stórauka bæri fræðslu í skólum um stofnun heimilis, sam- búð og hjúskap, uppeldi og jafna stöðu kvenna og karla. Loks skoraði fundurinn á Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra að tryggja sem fyrst að hægt verði að koma á kerfis- bundinni leit að brjóstakrabbameini hjá konum með brjóstamyndatökum. Kosið var í stjórn KRFl til næstu fjögurra ára og hlutu þessar kosningu: Aðalm. Áslaug Bryngjólfsdóttir. Varam. Valborg Bentsdóttir og Gerður Steinþórs- dóttir. Aðalm. Dóra Guðmundsdóttir. Varam. Sigurveig Guðmundsdóttir og Guðrún Sæmundsdóttir. Aðalm. Helga Sigurjónsdóttir. Varam. Sigurlaug Gunnlaugsdóttir og Guðrún Gísladóttir. Aðalm. Kristín Jónsdóttir. Varam. Sjöfn Halldórsdóttir og Eygló Pétursdóttir. Aðalm. Ragnheiður Björk Guðmunds- dóttir. Varam. María Ásgeirsdóttir og Ást- hildur Ólafsdóttir. Aðalm. Valgerður Sigurðardóttir. Varam. Ásdís Rafnar og Björg Einarsdóttir. í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna voru kosnar: Aðalm. Kristín B. Tómasdóttir, Brynhildur Kjartansdóttir og Hlédís Guðmundsdóttir. Varam. Helga Gröndal og Hjördís Þor- steinsdóttir. Einnig var kosið í fulltrúaráð KRFÍ en f því eiga sæti tveir aðalmenn og tveir vara- menn í hverju kjördæmi landsins. Uppstill- ingarnefnd lagði til að fulltrúaráðið sæti óbreytt og var það samjrykkt. 16. landsfundi KRFl lauk með pallborðs- umræðum „Hvert stefnum við f jafnréttis- baráttunni?“ Erna Indriðadóttir stjórnaði umræðum en þátttakendur voru Jóhanna Sigurðardóttir, Guðrún Ágústsdóttir, Lára V. Júlíusdóttir, Unnur Stefánsdóttir, Inga Jóna Þórðardóttir og Esther Guðmunds- dóttir. Eftir fundarslit þáðu landsfundarfulltrúar veitingar að Borgartúni 6 í boði félagsmála- ráðherra, Alexanders Stefánssonar. 77
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.