19. júní


19. júní - 19.06.1985, Síða 81

19. júní - 19.06.1985, Síða 81
Umsagnir KRFI var beðið um umsögn frá Alþingi um eftirfarandi mál. 1. Frumvarp til laga um endurmenntun vegna tæknivæðingar í atvinnulífinu. 2. Frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, 48. mál. Frumvarp til laga um stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, 105. mál. 3. Frumvarp til laga um endurmat á störfum láglaunahópa. 4. Óumbeðið sendi KRFÍ umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 75,14. september 1981. um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum 187. mál. KRFÍ var beðið um umsögn frá íslandsdeild Norðurlandaráðs vegna norrænnar þingmannatillögu A695/s sem lögð hefur verið fram í Norður- landaráði um val á námi og starfi eftir áhuga og hæfni fremur en kynferði. afturábak í jafnréttisbaráttunni. Stefna KRFI hefurveriðog erskýr; það er hver ein- staklingur greiði (tckju) skatt af þvf fé sem hann einn aflar. Þegar umrætt frumvarp var til umfjöllunar á Alþingi síðustu dagana fyrir jólaleyfi þingmanna sendi stjórn KRFÍ bréf til allra þingmanna og mótmælti umræddri breytingu. Skattahópur lagði niðurstöður sínar fyrir landsfund KRFÍ. Starfsemin út á við KRFI á fulltrúa í ráðgj afanefnd Jafnréttis- ráðs og var á sl. hausti endurskipað í nefnd- ina og eiga þar sæti Oddrún Kristjánsdóttir (aðalmaður) og Esther Guðmundsdóttir (varamaður). Hlutverk ráðgjafanefndar- innar er að vinna að þeim málum sem Jafn- réttisráð felur nefndinni hverju sinni svo og að gera tillögur til ráðsins að nýjum verk- efnum og framkvæmd þeirra. Störf nefndarinnar á sl. ári hafa verið í beinu framhaldi af starfi fyrri nefndar, eink- ni KRFÍ Útgáfustarfsemi Utgáfa fréttabréfs er fastur liður í starfi félagsins og hafa fjögur fréttabréf komið út á milli aðalfunda. Ritstjórar hafa verið Guðrún Egilson og Jónína M. Guðnadóttir. Þórhildur Jónsdóttir hefur séð um útlit og uppsetningu. 19. júní kom að venju út í júní 1984. Meðal efnis í blaðinu voru greinar um tölvubyltinguna og áhrif hennar á konur, sagt var frá Framkvæmdanefnd um launmál kvenna og rætt við nokkrar konur er skipa mikilsverð embætti í íslenskri stjórnsýslu. Ennfremur var greinaflokkur um jafnréttisbaráttuna og áhrif hennar á hjónabandið. Ritstjóri var Fríða Björnsdóttir, fjármálastjóri Erna Bryndís Halldórsdóttir og Júlíana Signý Gunnarsdóttir var auglýsingastjóri. Utbúnar hafa verið möppur undir 19. júní. KFRÍ hefur gefið út í fjölrituðu hefti niðurstöður athugunar um áhrif tölvu- væðingar á störf kvenna og karla á vinnu- markaðinum sem Ragnheiður Harðar- dóttir, Sigrún Jónsdóttir og Sveinbjörg Svavarsdóttir önnuðust. Bæklingurinn heitir „Tölvuvæðingin. Hlutur kvenna °g karla á vinnumarkaðnum". Þórhildur Jónsdóttir, auglýsingateiknari teiknaði niyndir. um varðandi mótandi áhrif skóla, þ.e. kennara og námsgagna, á viðhorf skóla- barna til kynhlutverka. Ráðstefna var haldin um þessi mál fyrir tæpu ári sem nefndist „Stelpurnar og strákarnir í skólanum“. Unnið hefur verið að samningu og útgáfu bæklings um jafnréttismál, sem er ætlaður fyrir kennara til uppfræðslu og umræðu við börnin. Þá er verið að undirbúa viku með jafnréttisfræðslu í Námsgagnastofnun í sept- ember nk., og verið er að athuga með nám- skeið á vegum Kennaraháskóla íslands um jafnréttismál næsta sumar. Skv. lögum á formaður KRFÍ sæti í íslensku UNESCO nefndinni. Hefur einn fundur verið haldinn frá síðasta aðalfundi. Arndís Steinþórsdóttir hefur verið aðal- maður KRFÍ í Framkvæmdanefnd um launamál kvenna, en Sigríður Vilhjálms- dóttir varamaður. Verið er að ganga frá athugun um stöðu kvenna á vinnumark- aðnum sem Esther Guðmundsdóttir og Sig- ríður Vilhjálmsdóttir hafa annast. Kvennaáratug Sameinuðu þjóðanna lýkur á þessu ári og verður þriðja kvennaráðstefna SÞ haldin í Nairobi í Kenya dagana 15.-26. júlí 1985. Utanríkisráðherra hefur skipað cftirtalda aðila í sendinefnd íslands: Sigríði Snævarr, sendiráðunaut fromann nefndar- innar, Guðríði Þorsteinsdóttur, formann Jafnréttisráðs, Maríu Þorsteinsdóttur, for- mann Kvenfélagsambands íslands, Esther Guðmundsdóttur, formann Kvenréttinda- félags íslands og Gerði Steinþórsdóttur, borgarfulltrúa. Kvennasamtök hér á landi hafa ákveðið að nýta sér þetta ár, og vekja athygli á stöðu kvenna. Stofnaður hefur verið samstarfs- hópur 23 félagasamtaka og nefnda og ber hann nafnið ’85-nefndin - samstarfsnefnd í Iok kvennaáratugs SÞ. KRFÍ á aðild að þessari nefnd og er Sólveig Ólafsdóttir aðal- maður þar en Esther Guðmundsdóttir vara- maður. KRFÍ á fulltrúa í Mæðrastyrksnefnd og hefur Ingibjörg Snæbjörnsdóttir setið þar. Þorbjörg Magnúsdóttir hefur verið fulltrúi KRFI í Landsambandi gegn áfengisbölinu. f áfengisvarnardeild kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði hafa setið Júlíana Signý Gunn- arsdóttir og Þóra Brynjólfsdóttir. í Land- vernd hafa Valborg Bentsdóttir og Oddný Kristjánsdóttir verið fulltrúar KRFI. Jafnréttisnefnd norrænu ráðherranefnd- arinnar hélt fund í Gautaborg 2. - 4. maí 1984. Formaður sótti þennan fund. Formaður sótti stjórnarfund Alþjóðasam- taka kvenréttindafélaga IAW, sem haldinn var í London 31. júlí 1984. í framhaldi af þeim fundi var haldinn formannafundur IAW og sóttu hann formaður og varafor- maður KRFÍ. Notaður var styrkur Hús- stjórnar Hallveigarstaða kr. 30.000 til farar- innar. Danska kvenréttindafélagið hélt ráð- stefnu 4.-6. október 1984 um misnotkun lyfja, eiturlyfja og áfengis meðal kvenna. KRFI var boðið að senda fulltrúa og voru veittar 3.000 d.kr. til fararinnar. Sú upphæð nægði ekki og var því haft samband við SÁÁ og athugað hvort samtökin hefðu hug á að senda fulltrúa í samvinnu við KRFÍ. Það varð úr að Kristín Waage, félagsfræðingur hjá Áfengisvarnardeild Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur sótti ráðstefnuna. Hallveigarstaðir KRFÍ á þrjá fulltrúa í hússtjórn Kvennaheimilisins Hallveigarstaða, auk formanns eru Arndís Steinþórsdóttir, varaformaður ‘og Oddrún Krist- jánsdóttir gjaldkeri. Haldið hefur verið áfram viðgerð hússins. Er hún á lokastigi. Flaggstöng hefur verið ,sett upp og til stendur að merkja húsið. Þá hefur hússtjórnin sam- þykkt að útbúa bækling um Hallveigar- staði og félögin þrjú, sem eiga og reka húsið. Á sl. ári losnaði húsnæði f kjall- ara, norðanmegin og var það leigt Kvennaathvarfi undir skrifstofuhús- næði. Hússtjórn Hallveigarstaða veitti Kvennaathvarfi styrk, sern nam húsa- leigu til eins árs. Gerður hefur verið leigusamningur við Borgardómaraembættið í Reykjavík til 31. desember 1987. Stefnan hefur verið sú að framlengja leigu aðeins til eins árs í senn, en nú var breytt frá þeirri stefnu vegna mikils viðhaldskostnaðar og fyrirsjáanlegt er að félögin hafa ekki efni á að taka húsnæðið í notkun sjálf á næst- unni. 81
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.