19. júní


19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 14

19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 14
ERTU AÐ LEITA AÐ VINNU? eftir Ernu Hauksdóttur Ertu að leita þér að vinnu? Ertu að koma út á vinnumarkaðinn í fyrsta skipti eða ertu ef til vill að velta fyrir þér að skipta um starf? í þessari grein verður fjallað um ráðningamál almennt, hvort það sé eitthvert sérstakt umhugsunarefni hvernig fólk beri sig að, hvort það sé einhver munur á körlum og konum hvað varðar sjálfsmat, launakröfur og fagleg vinnubrögð við sjálfa starfsumsóknina. Ennfremur veltum við því fyrir okkur hvaða áhrif breyttar aðstæður í þjóðfélaginu hafa á hegðun umsækjenda. Við leituðum til tveggja ráðningarstjóra, Oddrúnar Kristjánsdóttur hjá Liðsauka og Þóris Þorvarðarsonar Hagvangi og báðum þau að miðla okkur af reynslu sinni með því að svara nokkrum spurningum. Er vandi að sækja um starf? Val á starfsmönnum er einn mikilvæg- asti þátturinn í rekstri fyrirtækja auk þess sem starf hvers manns er einn mikil- vægasti þátturinn í lífi hans. Erlendis hafa mörg fræðirit verið skrifuð um það hvernig fólk eigi að bera sig að þegar það sækir um starf, sérstaklega ef um einhvers konar stjórnunarstöður er að ræða, enda samkeppnin gífurleg. Hér á landi hafa þessi mál ekki verið í brenni- depli. í þeirri þenslu og eftirspurn eftir starfsfólki sem einkennt hefur vinnu- markaðinn lengi hefur fólk jafnvel sagt starfi sínu lausu án þess að hafa tryggt sér annað. Mörg dæmi eru um að fólk hafi stokkið úr starfi við minnsta tilefni fullvisst um að næsti vinnuveitandi bíði með opinn faðminn. Langvarandi um- frameftirspurn eftir starfsfólki leiðir sannarlega til ábyrgðar- og andvaraleys- is. í dag er skortur á atvinnu. Stórir hóp- ar fólks um land allt eru atvinnulausir. Fjöldinn allur af háskólamenntuðu fólki hefur gengið um atvinnulaus í allan vet- ur. Þeir sem hafa vinnu ríghalda í störf sín. En jafnvel þótt núverandi ástand batni, sem það vonandi gerir, eru líkur á því að samkeppni um góðar stöður fari vaxandi hér á landi sem annars staðar, enda er það markmið almennt hjá þjóðinni að stöðugleiki komist á og skattpeningum verði ekki lengur dreift í alls kyns atvinnubótavinnu. Það verða því meiri kröfur til faglegra vinnubragða í framtíðinni. Atvinnuauglýsingar Þeir sem eru að leita að vinnu hafa í raun tvo möguleika helsta, atvinnu- 14 auglýsingar í dagblöðum og ráðninga- stofur. Mjög er misjafnt hve miklar upplýs- ingar koma fram í atvinnuauglýsingum sem birtast í dagblöðunum. Vandaðar auglýsingar með nákvæmum upplýsing- um spara bæði fyrirtækinu og umsækj- endunum fyrirhöfn. Sá ósiður er algeng- ur meðal fyrirtækja að svara hvorki um- sækjendum né endursenda gögn, sem í flestum tilfellum eru myndir og persónu- legar upplýsingar. Því er það oft að um- sækjendur kæra sig ekki um að láta of mikið uppi í umsókn. Góðar ráðningastofur spara fólki mik- ið umstang, sérstaklega hvað varðar persónulegar upplýsingar, sem fólk vill síður senda til fyrirtækja sem mörg auglýsa ekki undir nafni. Mjög mikil- vægt er í öllu ráðningarstarfi að vænt- ingar bæði umsækjandans og vinnu- veitandans séu Ijósar. Ef annar hvor að- ilinn uppfyllir ekki væntingar hins þegar starf er hafið hefur ráðningin í raun mis- tekist og starfsmaðurinn skiptir fljótt aft- ur um starf. Slíkt veldur bæði miklum kostnaði og leiðindum. Trúlega getur góður starfsmannastjóri á ráðningar- stofu komist næst væntingum beggja aðila en það krefst áreiðanlega mikillar vinnu, sérstaklega ef um stjórnunarstarf er að ræða. Áhrif jafnréttislöggjafar, sem sett var 1976, hafa verið talsverð. Árið 1985, í lok kvennaáratugarins, voru lögin endur- skoðuð og endurbætt. Tvær greinar lag- anna fjalla um atvinnuauglýsingar. Starf sem auglýst er skal vera opið jafnt körl- um sem konum. Við endurskoðun lag- anna var heimilað að auglýsa eftir öðru kyninu ef tilgangurinn er að stuðla að jafnri dreifingu kynja í starfsgreinum. Tilgangurinn þarf að koma fram í auglýsingunni. Meginmarkmið löggjafar- innar var að bæta stöðu kvenna á vinnumarkaðnum. Atvinnuleit tekur tíma Leit að nýrri atvinnu tekur yfirleitt lengri tíma en fólk gerir sér grein fyrir í upp- hafi ef frá er skilinn sá þenslutími sem ríkti hér á íslandi síðustu árin og fjallað var um hér að framan. Jafnvel þótt leit fólks að nýju starfi taki mislangan tíma er mikilvægt að gera ráð fyrir því að hún taki nokkra mánuði en það fer að sjálfsögðu eftir eðli starfsins sem leitað er. Skv. niðurstöðum könnunar sem ný- lega var gerð í Bandaríkjunum tekur það a.m.k. 6-8 mánuði að finna stjórn- unarstarf. Óraunhæfar væntingar gera það eitt að verkum að sjálfsálit fólks verður fyrir áfalli og því finnst því hafn- að. Þess vegna er nauðsynlegt að skipu- leggja þennan tíma vel fjárhagslega. Jafnframt er nauðsynlegt að umsækj- endurnir velti því fyrir sér hvernig haga beri starfsleitinni svo þeir hafi á tilfinn- ingunni að þeir séu að bjóða mikilvæga vöru, en ekki betla starf. Er munur á karlmönnum og kvenfólki sem umsækjendum? Það virðist mjög algengt að konur sem eytt hafa nokkrum árum í húsmóður- störf og barnauppeldi missi allt sjálfs- öryggi eftir ótrúlega stuttan tíma og van- meti sig þegar þær vilja snúa aftur út á vinnumarkaðinn. Þetta vanmat virðist eiga við um mjög margar konur burtséð frá menntun. i!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.