19. júní - 19.06.1992, Síða 17
in. Vel skrifað bréf ásamt faglega fram-
settum, persónulegum upplýsingum
getur skipt sköpum þegar valinn er sá
hópur sem kallaður er til viðtals.
Texti og framsetning slíks bréfs fer
nokkuð eftir því hvers eðlis starfið er og
fyrirtækið sem auglýsti. Umsækjendur
um starf plötusnúðs á diskóteki geta
áreiðanlega leyft sér að slá á léttari
strengi í kynningarbréfi heldur en þeir
sem sækja um starf lögmanns hjá trygg-
ingafélagi. I öllum tilfellum er þýðingar-
mikið að bréfið sé stutt og laggott, skrif-
að á góðri íslensku án ritvillna og snyrti-
lega uppsett. Persónulegar upplýsingar
ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf fylgi gjarnan með á sérblaði.
I bréfinu þarf að koma fram að um-
sækjandi hafi áhuga á umræddu starfi
og af hverju. Hann gæti ef til vill skýrt í
stuttu máli frá því hvers vegna hann
haldi að starfið henti honum. Ef við-
komandi starf krefst nákvæmni og
bréfaskrifta, þá er ólíklegt að höfundur
illa skrifaðs bréfs með stafsetningar- eða
vélritunarvillum verði ráðinn. Trúlega
hafnar umsóknin í næstu ruslakörfu!
RÁÐLEGGINGAR TIL
UMSÆKJENDA
Við báðum Oddrúnu að gefa umsækj-
endum nokkur góð ráð áður en þeir fara
í viðtal, t.d. á ráðningastofu.
1. Það er mikilvægt að umsækjendur
viti við hvað þeir vilja helst starfa og
þá með tilliti til menntunar, reynslu
og áhugasviðs.
2. Séu tilbúnir að greina sem gleggst frá
fyrri störfum, þ.e. rekja starfsferil
bæði hvað varðar sumarstörf, störf
með skóla og eftir að námi lauk.
3. Tilgreini hvort leitað sé að framtíðar-
starfi eða starfi til skemmri tíma.
4. Geri sér grein fyrir því að spurningar
um t.d. áhugamál skipta máli, því oft
hefur það skipt sköpum við ráðningu
að viðkomandi hafi einmitt tiltekið
áhugamál.
5. Komi með afrit af prófskírteinum og
meðmælabréfum.
6. Hafi meðferðis nöfn hugsanlegra
meðmælenda, þ.e. fyrri vinnuveit-
enda eða kennara.
7. Komi snyrtilega til fara og séu já-
kvæðir. Hafa ber í huga að margir
umsækjendur eru um hvert starf
þannig að nauðsynlegt er að sýna
bestu hliðar sínar.
8. Vanda útfyllingu eyðublaðsins og
gerð æviágripsins.
NORRÆNA FERDASKRIFSTOFAN,
SMYRIL LINA - ÍSLAND
Laugavegur 3 • 101 Reykjavík • lceland
Tel.: (9)1-626362 • Fax: (9)1-29450 • Telex: 3122
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTOFAN HF.
Laugavegi 3 Fjaröargötu 8
101 Reykjavík 710 Seyöisfjöröur
Sími: 91-626362 Sími: 97-21111
Eftirfarandi er veröskrá fyrir fargjöld meö NORRÖNA
sumarið 1992. Miöaö viö gengi 15.1. 1992.
Hér er um aö ræöa fargjöld aöra leiðina. Hærra verðið 1)
skal nota ef aðeins er keypt önnur leiðin. Lægra veröiö 2) skal
nota ef viðkomandi kaupir ferð frá íslandi og aftur til baka á
árinu 1992. Athugið einnig aö 25% afsláttur veitist af þeirri leiö
sem hefst á blálituðum brottfarardegi samkvæmt áætlun.
ísland- ísland- ísland- íslandHringferð
Færeyjar Danmörk Noregur Hjaltland
Svefnpoka 1) 13.915,- 23.690,- 20.240,- 17,710,-
pláss 2) 10.435,- 17.770,- 15.180,- 13.285,- 34.413,-
4ra manna 1) 14.835,- 24.840,- 21.735,- 19.320,-
klefi 2) 11.130,- 18.630,- 16.300,- 14.490,- 38.040,-
4ra manna 1) 16.330,- 27.370,- 23.575,- 21.045,-
klefi m/baði 2) 12.250,- 20.530,- 17.685,- 15.785,- 40.800,-
2ja manna 1) 19.550,- 37.260,- 28.980,- 25.185,-
klefi m/baði 2) 14.640,- 27.950,- 21.735,- 18.900,- 52.530,-
„de-lux“ 1) 23.345,- 47.150,- 35.075,- 33.810,-
klefi 2) 17.510,- 35.365,- 26.310,- 25.360,- 67.965,-
Bifreið 1) 8.280,- 18.170,- 14.720,- 10.925,-
Bifreið 2) 6.210,- 13.630,- 11.040,- 8.200,-
Akagjald 1) 1.725,- 3.680,- 2.875,- 2.185,-
á metra 2) 1.300,- 2.760,- 2.155,- 1.640,-
fyrir bifreiðar
yfir 5 metra
Dæmi: Fargjald fyrir einn mann í 4ra manna klefa m/baði,
Ísland-Danmörk, Noregur-ísland: 20.530,- + 17.695,- = 38.215,-.