19. júní


19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 33

19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 33
hún mun staldra stutt við þar vegna þess að leiðin liggur síðan til Ekvador með viðkomu í Flórída. „Við erum nokkrir sundfélagar í háskólanum í Ala- bama á leið til Ekvador til að æfa í þunna loftinu þar." Ekvador er í 9000 feta hæð yfir sjávarmáli og segir hún að mjög gott sé fyrir sundmenn að æfa í þunna loftinu. Sl. þrjú ár hefur Ragnheiður stundað nám í fþróttalffeðlisfræði og lýkur hún B.Sc. námi í vor. Æfingar fyrir Ólympíu- leikana í Barcelona á Spáni í vor hafa tekið allan hennar tíma og eftir dvölina í Ekvador fara hún og félagar hennar til vesturstrandar Bandaríkjanna til að taka þátt í sundmóti í Kaliforníu. Að því móti loknu snýr hún síðan heim til íslands á ný og fer með íslensku Ólympíuför- unurn til Spánar. „Æfingaaðstaðan vestanhafs er hreint stórkostleg. Ég held áfram að æfa þar eftir að ég lýk námi vegna þess að það er svo miklu ódýrara fyrir mig," segir hún. „Allar þessar æfingaferðir kosta mig aðeins 2000 dollara og mér býðst ekkert í líkingu við það hér heima. En það hefur bjargað mér fjárhagslega að ég fæ mánaðarlegar greiðslur úr Afreks- mannasjóði íþróttasambands íslands - annars gæti ég þetta ekki. Ég var færð upp í svokallaðan A flokk í sjóðnum þegar ég var kjörin íþróttamaður ársins. Aðrir í þeim flokki eru spjótkastararnir Sigurður Einarsson og Einar Vilhjálms- son." Ragnheiður er ergileg yfir lélegri æf- ingaaðstöðu sundmanna hér á landi. „Innisundlaugarnar eru of litlar og það eru bara útilaugarnar sem eru nægjan- lega stórar. Að æfa utandyra er ekki beint heppilegt með tilliti til veðurfars- ins á íslandi," segir hún og nefnir jafn- framt að engir íþróttamenn nema sund- menn verði að deila æfingasvæði sínu með almenningi. „Það yrði aldeilis upp- lit á fótboltaköppunum okkar ef þeir þyrftu að deila æfingavöllunum með áhugafólki um boltaíþróttir," bætir hún brosandi við. Hún segir að sem betur fer hafi sundlaugargestir í nýju sund- lauginni í Kópavogi, þar sem hún æfir þegar hún er hér á landi, sýnt mikla ti- litsemi. Aðalkeppnisgreinar Ragnheiðar eru 100 og 200 m bringusund en hún segist hafa byrjað frekar seint að æfa bringu- sundið, eða 17 ára gömul. „Ég var fyrst og fremst bak- og fjórsundskona hér áð- ur. En ég fékk astma þegar ég var 16 ára og varð að breyta um sundgrein. Ég ef- ast um að ég gæti synt baksund núorð- ið," segir hún. Astminn gerir henni erf- iðara fyrir í sundinu en öðrum en hún segist aldrei hafa látið slíkt „smáræði" hafa áhrif á sig. „Sund er eitt það besta sem fólk með astma getur stundað vegna þess að það eykur svo lungnaþolið." Ólympíuleikarnir verða lokapunktur- inn í keppnisferli Ragnheiðar Runólfs- dóttur. „Það er kominn tími á mig og þótt fyrr hefði verið," segir hún. „Það var algengt á árum áður að sundkonur hættu keppni um 16 ára aldur en nú er þetta að breytast og konur keppa jafnvel fram að þrítugu. Ég er sátt við að hætta núna á meðan mér gengur vel. Þetta er fjórtánda árið mitt í landsliðnu og satt að segja hef ég ekki átt sumarfrí síðan ég var 13 ára. Ég hef til dæmis aldrei farið neitt um verslunarmannahelgina en tel samt að ég hafi ekki misst af neinu. Sundið er ákaflega bindandi íþrótt en þegar ég lít yfir farinn veg veit ég að ég hef átt mjög skemmtilegan tíma og sé ekki eftir neinu." „Nú er kominn tími til að fara að borga námslánin og að byrja líf á öðr- um vettvangi en ofan í sundlauginni. Mér hefur verið boðið starf fram- kvæmdastjóra og yfirþjálfara Sundfélags Akraness og er mjög ánægð með það. Starfið er spennandi og gefandi en síð- ast en ekki síst þá nýtist menntun mín vel í því. Ég hef allt of mikið keppnis- skap til að halda áfram að keppa á sama tíma og ég er upptekin af öðrum verkefnum. Slíkt myndi ég ekki þola. Ég vil hætta keppni sátt við sjálfa mig og getað sagt að ég hafi lagt alla orku mína í að gera mitt besta." VEIT HVAÐÞU YILT! Mikil útbreiðsla DANFOSS ofnhitastilla a íslandi sýnir að þeir eru í senn nákvæmir og öruggir. Æ fleiri gera nú sömu kröfur til baðblöndun- artækja og velja hitastilltan búnað frá DANFOSS. Með DANFOSS næst kjörhiti á heimilinu Þú stillir á þægilegasta hitann i hverju her- bergi og DANFOSS varðveitir hann nákvæm- lega. Og í baðinu ertu alltaf öruggur með rétta hitann á rennandi vatni, ekki sístfyrir litlafólkið þitt. Aukin vellíðan, lœgri orkukostnaður. = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.