19. júní - 19.06.1992, Síða 44
Ný stjórn Kvenréttindafélags íslands. Efri röð f.v.: Ásthildur Ketilsdóttir, Cuðrún Gísladóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Hulda
Karen Ólafsdóttir, Lilja Ólafsdóttir, Kristín Karlsdóttir, Guðrún Eyjólfsdóttir, Dóra Guðmundsdóttir.
Neðri röð f.v.: Ellen Ingvadóttir, Jónína Margrét Guðnadóttir, lnga Jóna Þórðardóttir, formaður KRFÍ, Ragnhildur Hjaltadóttir
og Áslaug Brynjólfsdóttir.
Ársskýrsla stjómar Kvenréttinda-
félags íslands fyrir starfsárið
27. mars, 1991 til 19. mars, 1992
Síðasta ár einkenndist af hefðbundnum
félagsstörfum. Haldnir voru 10 stjórnar-
fundir á tímabilinu auk þess sem fram-
kvæmdastjórn hittist reglulega tvisvar í
mánuði og oftar ef þurfa þótti. Tvö
merkisafmæli bar upp á árið. Menning-
ar- og minningarsjóður kvenna hélt upp
á fimmtíu ára afmæli sl. haust og KRFÍ
varð 85 ára gamalt þann 27. janúar sl.
Auk venjulegra starfa fór töluverður
tími í vangaveltur og umræður um
stöðu félagsins, starfsaðferðir þess og
framtíð. Með það fyrir augum að gera
þá umræðu hnitmiðari var Hugmynda-
nefnd K.R.F.Í. skipuð í ársbyrjun 1992. í
nefndinni eru Ásdís Skúladóttir, Auður
Eir Vilhjálmsdóttir, Björg Einarsdóttir,
Lilja Ólafsdóttir, Margrét Ásgeirsdóttir,
Vilborg Harðardóttir og varaformaður
félagsins, Jónína Margrét Guðnadóttir.
Ekkert verður af alþjóðaþingi kvenna
á íslandi í júm' á þessu ári. KRFI og ýmis
önnur samtök voru nánast í startholun-
um en síðan kom í Ijós frá erlendum
samstarfsaðilum að fjármálin gengu
hreinlega ekki upp ytra. Þingið verður
hins vegar haldið á Irlandi í sumar.
Starfsmannaskipti urðu hjá félaginu á
sl. ári. Herdís Hall lét af störfum fram-
kvæmdastjóra í ágúst eftir fjögurra ára
farsælt starf. Við tók Hjördís Þorsteins-
dóttir, formaður MMK, en hennar starfs-
krafta var því miður notið skemur en
efni stóðu til og lét hún af störfum í
mars sl. vegna veikinda. í forföllum
hennar hefur fyrrverandi formaður fé-
lagsins, Esther Guðmundsdóttir, starfað
tímabundið á skrifstofunni að Hallveig-
arstöðum. Þessum konum eru þökkuð
góð störf og trúnaður við félagið.
Hallveigarstaðir
Fulltrúi KRFÍ í hústjórninni er Herdís
Hall en Guðrún Árnadóttir til vara. í
desember var alþingiskonum boðið til
hádegisverðar til að kynna þeim starf-
semina í húsinu. Ekki er enn Ijóst hver
framtíð Hallveigarstaða verður en þó er
Ijóst að Borgardómur hverfur úr húsinu
á árinu.
Almennir félagsfundir
Nokkrar stjórnarkonur brugðu sér norð-
ur fyrir heiðar sl. vor og héldu kynningar-
fund með kvenframbjóðendum allra
flokka í Norðurlandskjördæmi eystra
fyrir Alþingiskosningarnar. Fundurinn,
sem var haldinn á Akureyri, var mjög
vel sóttur og í alla staði vel heppnaður.
Svipaður fundur var haldinn á Hótel
Borg í Reykjavík og var hann einnig
ágætlega sóttur.
Menningar- og minningar-
sjóður kvenna 50 ára
Hátíðarfundur Menningar- og minning-
arsjóðs kvenna var haldinn í Gerðu-
bergi þann 28. september til að minnast
50 ára afmælis sjóðsins. Fundurinn var
mjög vel sóttur og ríkti mikill hátíðar-
bragur á þessum tímamótum.
Fundur um EES
Haldinn var fræðslu- og umræðufundur
um „Áhrif EES á stöðu og hag kvenna"
þann 26. nóvember sl. Erindi fluttu
Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri,
Stefán Már Stefánsson, prófessor, og
Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur
BSRB. A eftir erindunum voru pall-
borðsumræður og fyrirspurnir og er
ánægjulegt að skýra frá því að umræður
voru miklar og fróðlegar.
44