19. júní - 19.06.1997, Síða 8
w >Wvcrs vegna Óskarsverðlaunamyndir? Óskarsútnefning er
|*ai sölustimpill sem tryggir oftast nær meiri dreifingu og fleiri
JL Aáhorfendur, og virðingin sem fylgir styttunni er enn frek-
ari staðfesting á því að skilaboð kvikmyndar séu kerfinu þóknan-
leg. Einnig eru kvikmyndir þar sem konur fara með stór hlutverk
oftastnær markaðssettar með kvenáhorfendur í huga. Listinn var
á þessa leið:
Frances McDormand - Faigo
Brenda Blethyn - Secret & Lies
Diane Keaton - Marvin's Room
Kristin Scott Thomas - The English Patient
Emily Watson - Breaking the Waves
framleidd fyrir utan Hollywoodkerfið. I’etta sýnir þó , ef við
höldum fast í aðskilnaðarstefnuna, að hin svokallaði listræni, sjálf-
stæði, óháði geiri fellur í gryfjur staðlaðra kvenímynda alveg eins
og gróðapúkarnir í kvikmyndaiðanaðinum ógurlega.
Sumir myndu segja að árið í ár hafi engu að síður verið óvenju-
legt og benda á Óskarsverðlaunaútnefningu síðasta árs ntáli sínu
til stuðnings. Þá voru eftirfaranda leikkonur útnefndar fyrir aðal-
hlutverk:
Meryl Streep - The Bridges of Madison County
Emma Thompson - Sense and Sensibility
Elisabeth Shue - Leaving Las Vegas
Susan Sarandon - Dead Man Walking (vann)
Sharon Stone - Casino
Hvernig hlutverk fóru þær með?
McDormand Iék kasóléttan lögreglustjóra í smábæ sem á ró-
lyndislegan hátt leysti svæsið sakamál.
Blethyn lék miðaldra breska lágstéttarkonu sem skyndilega stend-
ur frammi fyrir dótturinni sent hún gaf frá sér ung að árurn.
Keaton lék konu sem hefur forðast ábyrgð en þarf að standa
reikningskil gerða sinna þegar systir hennar greinist með hvít-
blæði.
Scott Thomas lck tragíska hcfðardömu sem deyr fyrir hina einu
sönnu ást.
Watson lék tragíska heittrúaða unga konu sem fórnar sér fyrir
hina einu sönnu ást.
Þar sem mynd Keatons, Marvinís Room, hefur ekki verið sýnd í
bíó hér get ég ekki fjallað um hana. Um hinar fjórar kvenpersón-
urnar má segja að þær skilgreinast allar sem góðar. Samt eru þær
mjög ólíkar og eingöngu cin barnung. Persónur Scott Thomas
og Watson dóu báðar óperudauða fýrir ástina og uppfylltu þannig
mjög staðlað og gamalkunnugt hlutverk. Sérstaklega uppfyllti
Watson sem hrein mey og heilög fórn gamla rnýtu. Hlutverkin
sem McDormand og Blethyn fóru með eru, hins vegar, víðs fjarri
stöðluðum hugmyndum um konuna sem rómantíska fórn.
McDormand fékk Óskarinn fyrir túlkun á sjálfstæðum og úrræða-
góðum lögreglustjóra, sem gat bæði sinnt sínu starfi og átt maka
og heimilislíf. Persóna Blethyn var hvorki sérstaklega sjálfstæð né
úrræðagóð en hún var ekki heldur fórnarlamb né flatur einhliða
karakter. Hún horfðist í augu við sjálfa sig og tók áhættu. Það er
þess vegna ekki hægt að kvarta undan skorti á margbreytileika í
þeim kvenímyndum sem Óskarinn heiðraði í ár. Það var bæði
boðið upp á hefðbundin fórnarlömb og heilsteyptar nútímakon-
ur, en fordæður með rýtinga voru hvergi sjáanlegar.
í þetta skipti er ekki hægt að skella skuldinni vegna fórnarlamba-
ímyndarinnar alfarið á Hollywoodkerfið. Allar kvikmyndirnar
fjórar voru framleiddar fyrir utan kerfið eða á mörkum þess. Ann-
ars er eignaraðild orðin það flókin í kvikmyndaheiminum og oft
svo örar breytingar að erfitt er að skilgreina hvort kvikmynd til-
heyrir hinu hefðbundna kerfi eða ekki. The English Patient var
t.d. að stórum hluta fjármögnuð af Miramax, sem er í eigu Disn-
ey, en samt var fjallað um kvikmyndina eins og hún hefði verið
Gárungar á einu kvikmyndablaði skilgreindu hlutverkin á þennan
hátt:
Konurnar með gullhjörtun áttu það sameiginlegt að hugsa fyrst
og frernst um aðra og færa persónulegar fórnir. Þær voru samt
sem áður ekki án sjálfstæðis. Fordæðan var auðvitað kfild kona og
hugsaði eingöngu um sjálfa sig og peninga. Þannig voru frekar
hefðbundnar útgáfur á „góðri“ konu og „vondri“ konu mjög
ráðandi á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra.
En þar með er ekki öll sagan sögð. Ef við bökum enn aftar og
skoðum hvers konar kvenhlutverk voru útnefnd í hittífýrra þá
kemur í ljós að leikkonurnar það árið túlkuðu allar góðar konur
sem voru á einhvern hátt villtar og sjálfstæðar. Þetta voru:
Af þessari Óskarsverðlaunaskoðun má því sjá að þau hlutverk sent
standa leikkonum til boða í kvikmyndum, bæði innan og utan
Hollywood, eru ívið fjölbreyttari en fullyrðing Byrnes gerir ráð
fýrir. Hinar hefðbundu, stöðluðu rullur eru að sjálfsögðu til stað-
ar en annars konar hlutverk bjóða upp á ímyndir sem víkka út
hugmyndir um það hvað það er að vera hvít gagnkynhneigð
kona. Innan ramrna staðlaðrar kvenímynda er einnig ákveðið
svigrúm sem leyfir ólíkar áherslur og einhverja nýbreytni þannig
að ímyndir þróast og breytast, þær eru aldrei fullkomalega niður-
negldar. Það er þess vegna ekki nein ástæða til þess að örvænta og
hætta að fara í bíó. Það er boðið upp á fleira en barnung fórnar-
lömb og mannætukonur. ■
Húsmóðir með gullhjarta
Hefðardama með gullhjarta
Hóra með gullhjarta
Nunna nteð gullhjarta
Fordæða án hjarta
Jessica Lang - Blue Sky (vann)
Jodie Foster - Nell
Miranda Richardson - Tom & Viv
Susan Sarandon - The Client
Winona Ryder - Little Women