19. júní - 19.06.1997, Blaðsíða 22
„Samkvæmt auglýsingunum / eru allar konur prinsess-
ur / miðað við bláa blóðið / í dömubindunum." Svona
orti Andri Snær Magnason í Bónusljóðum. Elfa Ýr
Gylfadóttir veltir líka fyrir sér bláa blóðinu. Elfa er
bókmennta- og fjölmiðlafræðingur og á styrk frá Vís-
indasjóði til að kanna kynímyndir í íslenskum auglýs-
ingum
Hvað sýgur blóð og er meö vængi?
Auglýsingar um dömubindi sýna ímynd hinnar glaðlegu og
frjálsu konu. I’au eru orðin sýnileg í samfélagi okkar cftir ára-
tuga þögn og eru nú kynnt sem helsta hjálpartæki kvenna til að
einfalda lífið. Það má segja að dömubindin séu orðin að tákni
um frelsi kvenna. Aður táknuðu heimilistækin frelsi þeirra.
Konur dönsuðu með Nilfisk ryksugur í auglýsingum fyrir um
þrjátíu árurn síðan og réðu sér ekki af kæti vegna nýju þvotta-
vélarinnar. Upp úr 1960 voru það góð heimilistæki sem léttu
konum heimilisstörfin og veittu þeirn meiri frítíma. I dag dansa
konur af ánægju vegna dömubinda með vængjum sem sjúga í
sig bláan hreinsilög. I auglýsingunum eru konurnar glaðlegar,
öruggar og umfram allt hreinar. Dömubindi veita vellíðan og
„þér finnst þú vera hrein og þurr“ þegar þú notar þau. Auglýs-
ingarnar ganga allar út á að sýna fram á hvernig hægt er að vera
á blæðingum án þess að finna fyrir þeim: „einstakt dry-weave
yfirlagið leiðir rakann inn í bindið og hleypir næstum engu til
baka“. Hvorki konan sjálf né samfélagið eiga að gjalda þess að
konur hafi tíðir. Það sem meira er, konum virðist jafnvel líða
betur á blæðingum en hina daga mánaðarins af auglýsingunum
að dæma. Litirnir sem ríkjandi eru í auglýsingunum, blár og
hvítur, vekja athygli margra lesenda. Tær og bláleitur sótt-
hreinsunarvökvi kemur í staðs blóðs til að sýna hvernig hvít
dömubindin drekka í sig vökvann án þess að hann sjáist á yfir-
borðinu. Fyrirsæturnar í auglýsingunum eru oftar en ekki
klæddar þröngum og ljósum fötum, oftast hvítum buxum eða
pilsum. Þannig verður hvíti liturinn tákn hreinleika í auglýsing-
unum, svo ekki sé minnst á öryggið sem felst í að nota dömu-
bindin, fyrst konurnar klæðast hvítum og þröngum fötum á
meðan á tíðum stendur. Bláleiti, tæri vökvinn sem kemur í stað
rauða litarins, blóðsins í auglýsingunum, er kaldur litur og virð-
ist ólífrænn. Hann tengist sótthreinsun og er því alger andstæða
þess vökva sem hann á að tákna. Þannig er búið til hreint og
sótthreinsað yfirbragð á blæðingar sem tæplega eiga við rök að
styðjast.