19. júní - 19.06.1997, Síða 23
Skal hún vera óhrein sjö daga
Sú ímynd sem birtist í auglýsingum um
hina hreinu og þurru konu á blæðingum
er algerlega andstæð þeirri ímynd kvenna
sem sjá má fyrr á öldum. I Biblíunni,
svo dæmi sé tekið, má sjá mikinn ótta
við tíðablóð kvenna. I þriðju Móse-
bók eru konur taldar óhrcinar þegar
þær eru d blæðingum og allt sem
þær snerta er einnig óhreint:
„Nú hefur kona rennsli, og
rennslið úr holdi hennar er
blóð, þá skal hún vera óhrein
sjö daga, og hver sem snertir
hana skal vera óhreinn til
kvelds. Allt það, sem hún
liggur á, meðan hún er
óhrein, skal vera óhreint,
og allt, sem hún situr á,
skal vera óhreint. Og
hver sem snertir hvílu
hennar, skal þvo klæði sín og
lauga sig í vatni og vera óhreinn til
kvelds... Og ef einhver samrekkir henni og tíða
blóð hennar kernur á hann, þá er hann óhreinn sjö daga,
og hver sú hvíla skal óhrein vera, er hann liggur í...“
í bókinni Purity and Danger fjallar mannfræðingurinn Mary
Douglas urn reglur samfélagsins um hreinleika og saurgun.
Margar reglurnar fjalla um tíðir kvenna og gefa til kynna saurg-
un og óhreinleika tíðablóðs. Tilvitnunin að ofan í Biblíuna er
gott dæmi um slíka reglu. Douglas minnist á ýmsa hjátrú um
tíðir og nefnir dæmi um menningarsantfélög þar sem karlar eru
taldir geta veikst eða jafnvel dáið ef þeir komast í snertingu við
tíðablóð. í dag hefur
hjátrúin hins vegar
vikið fyrir annarri hug-
mynd um tíðablóð í
vestrænu samfélagi.
Blæðingar teljast þó ekki
eðlilegur þáttur í lífi kvenna
nteð þeim óþægindunt og
verkjum sem blæðingum geta
fylgt. Búin hefur verið til ný og
ótrúverðug rnynd af konum á
blæðingum. Blæðingar eru orðn-
ar ofur þrifalegar, konur finna ekki
lengur fyrir þeim og konur eiga svo
sannarlega ekki að finna fyrir neinum
óþægindum á rneðan þær nota auglýst
dömubindi. Dömubindin virðast hafa
mikinn mátt í auglýsingunum, þau geta
meira að segja hjálpað til við að „tryggja
að stefnumótið verði ánægjulegt“. Tíðir
eru ekki lengur til trafala fyrir konur, sér-
staklega ekki í umgengni við karlmenn:
.sambönd gcta verið flókin og þú þarft sann-
arlega ekki á blæðingum að halda til að gera líf-
ið flóknara“ enda segir líka: „láttu ekki tímasetn-
inguna spilla stefnumótinu“. Konur hafa verið
álitnar óhreinar vegna blæðinga sinna í árþúsundir
og hafa þær haldið aftur af konum í menningu okk-
ar. Nú er hins vegar búið að snúa blaðinu við og keppast aug-
lýsendur við að sannfæra konur unt að blæðingar standi ekki í
vegi fyrir þeim á nokkurn hátt Iengur. Meira að segja samskipti
við karlmenn eru orðin auðveldari - það er að segja ef eitthvað
er varið í vin þinn. ■