Sólskin - 01.07.1932, Síða 29

Sólskin - 01.07.1932, Síða 29
27 Hvadan fœr rófan sykur? Ykkur þykir nú sjálfsagt margbrotin og staglsöm sagan um það, hvernig sykurmolinn komst frá þýsku verksmiðjunni til mín. Ojæja, það finst mjer nú reyndar líka, börnin góð, en eitthvað þessu lík er nú sagan hans samt. Hann gengur kaupum og söl- um, eins og fleiri, og hver sem vissi um alla þá, sem hafa átt hann, hagnast á, honurn — eða tapað á. honum — sá vissi lengra nefi sínu. En svo er ennþá eitt eftir um sykurinn, og' það er þetta: Hvernig varð hann til í sykurrófunni, og úr hverju? Þessum spurningum getið þið ekki svarað til fulls, fyr en þið eruð búin að læra vel um jurt- irnar. Jeg sagði ykkur áðan, að sykurinn yrði til í kálblöðunum. Núna ætla jeg að bæta því við, að hann verður þar til úr vatni lofti og sólskini. Já, vatni, lofti og sólskini. Hann verður til í öllum græn- um plöntum, grasinu okkar, eins og öðrum, því að allar plöntur nærast á sykri. Flestar þeirra eyða jafnóðum, því sem þær afla, en sumar safna þó forða, meðan þær eru ungar, og geyma hann til þess tíma, er líf þeirra nær mestri fullkomnun og kostar mest erfiði, — þess tíma, er þær bera blóm og fella fræ. En engar plöntur eru jafn geymnar á sykur, eins og sykurrófan og sykurreyrinn, sem vex í heitu lönd- unum, — Þetta er í stuttu máji sagan af því, hvernig sykur- molinn minn er til kominn og- hvernig hann er til mín kominn. Þetta er svarið við spurningu hans sjálfs.

x

Sólskin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.