Fréttablaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 128
100 18. desember 2010 LAUGARDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 18. desember
➜ Gjörningar
13.00 Daníel Hjörtur mun í dag skera
út andlit og fleira úr rekaviðardrumbum
og öðru óvenjulegu efni við verslunina
Eitthvað íslenskt á Skólavörðustíg 14.
Hann beitir söginni á heila tímanum frá
13-18 og eru allir velkomnir.
➜ Tónleikar
16.00 Jaðarkántríkapparnir í Hudson
Wayne ætla spila fyrir gesti HAVARÍ í
dag kl. 16. Frítt inn.
17.00 Tinna Þorsteinsdóttir leikur ný
píanóverk eftir Slátur meðlimi í Nor-
ræna húsinu í dag kl. 17. Miðaverð er
1500 krónur, 1000 krónur fyrir nema og
5000 krónur fyrir atvinnugagnrýnendur.
20.00 Hljómsveitin Malneirophrenia
verður með útgáfutónleika í Slippsaln-
um, NemaForum Mýrargötu 2 (við hlið-
ina á Búllunni) í kvöld kl. 20. Miðaverð
er 1000 krónur.
21.00 Plx, Quadroupolus og Árni
Grétar(Futurgrapher)vs. Steve Samp-
ling spila raftónlist í Nýlenduverslun
Hemma og Valda, á Laugavegi 21 í
kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
21.00 Hljómsveitin Agent Fresco spilar
á útitónleikum hjá versluninni Nikita,
að Laugavegi. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Enginn aðgangseyrir.
23.00 Hljómsveitin Stóns verður með
tónleika á Sódóma Reykjavík í kvöld.
Tónleikarnir hefjast kl. 23 og er 18 ára
aldurstakmark. Aðgangseyrir er 1500
krónur, frítt er inn fyrir þá sem eiga
afmæli 18. desember.
➜ Opnanir
14.00 SÍM - Samband íslenskra mynd-
listarmanna hefur tekið í notkun nýtt
vinnustofuhús fyrir félagsmenn sína í
Lyngási 7, Garðabæ. Formaður SÍM
mun opna húsið formlega í dag kl.14.
Allir velkomnir.
17.00 Í dag kl. 17 opnar Þorvaldur
Óttar Guðlaugsson sýninguna Jóla-
bókahrunið – falsbókmenntir eftirhruns-
áranna. Sýningin er til sýnis í Gallerí
Fold, að Rauðarárstíg 12-14.
17.00 Í dag klukkan 17 opna 12
ungir listamenn sýningu á verkum
sínum í Hugmyndahúsi háskólanna
að Grandagarði 2, 101 Reykjavík. Allir
velkomnir!
➜ Dansleikir
Hljómsveitin Á móti sól leikur á
próflokahátíð í Höllinni, Vestmanna-
eyjum, í kvöld. Aldurstakmark er 18 ár
og er miðaverð 2000 krónur.
➜ Dagskrá
15.00 Kvenfjélag Kaffibarsins og
Kallakórinn Bartónar kynna Jólagleði
2010 sem hefst á Kaffibarnum kl. 15.
Kvenfjélagið verður með jólakökubasar
og Kallakór Kaffibarsins hefur raust sína
kl. 17 og syngja jólalög.
➜ Fyrirlestrar
13.00 Dr. Terry
Gunnell flytur í dag
kl. 13 erindi í fyrirlestr-
arsal Þjóðminjasafns
Íslands um íslenska
jólasiði í aldanna rás,
frá heiðnum goðum
til hrekkjóttra íslenskra
jólasveina. Fyrirlest-
urinn er á ensku.
Aðgangur er ókeypis
og eru allir velkomnir.
➜ Markaðir
13.00 Jólaþorpið í Hafnarfirði
verður opið um helgina frá kl. 13-18.
Dagskrá hefst báða dagana kl. 14. Allir
velkomnir.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 19. desember
➜ Tónleikar
16.00 Stórsveit Reykjavíkur heldur
sína árlegu jólatónleika í dag kl. 16 í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Sérstakur gestur
verður Helgi Björns og Samúel J. Sam-
úlesson. Flutt verður fjölbreytt dagskrá
jólatónlistar í djassútsetningum, inn-
lendum og erlendum, nýjum og göml-
um. Aðgangur ókeypis.
16.00 Hátíðartónleikar verða haldnir í
Salnum Kópavogi, í dag kl. 16. Skóla-
kór Kársness syngur. Sérstakir gestir
eru Sigrún Hjálmtýsdóttir og Valla-
gerðisbræður. Píanóleikari er Anna
Guðný Guðmundsdóttir. Boðið verður
upp á léttar jólaveitingar í hléi.
17.00 Árlegir jólatónleikar hljómsveit-
arinnar ADHD fara fram í Þjóðmenn-
ingarhúsinu í kvöld klukkan 17. Hljóm-
sveitin kemur fram ásamt leynigesti.
Miðaverð er 1500 krónur.
17.00 Jólatónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur verða haldnir í Áskirkju í
dag kl. 17. Aðgangseyrir er 2.500 krónur,
miðasala við innganginn og á midi.is.
19.00
Jóhanna
Guðrún
verður með
jólatónleika í
Egilsstaðakirkju
í dag frá kl.
20 til 21.30.
Miðasala er við
innganginn og
kostar 2000
krónur. Húsið
opnar kl. 19.
20.00 Hljómsveitin Seabear heldur
sína síðustu tónleika á árinu í sal
Tjarnarbíós í kvöld kl. 21. Hljómsveitin
Hudson Wayne hitar upp fyrir Seabear.
Húsið opnar kl. 20. Miðaverð er 2000
krónur.
22.30 Camerarctica heldur sína árlegu
kertaljósatónleika í Kópavogskirkju kl.
22.30 í kvöld. Miðasala við innganginn.
Miðaverð kr. 2000 og 1000 fyrir eldri
borgara og nemendur. Frítt fyrir börn.
➜ Dansleikir
20.00 Jóladansleikur Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni verður
að Stangarhyl 4, í kvöld kl. 20 til 23.
Fjölbreytt skemmtiatriði, happdrætti,
Sighvatur leikur fyrir dansi, stjórnendur
Matthildur og Jón Freyr.
➜ Dagskrá
11.00
Skemmtidag-
skrá verður í
Þjóðminja-
safni Íslands
í dag. Dag-
skrá hefst kl.
11. Skyrgám-
ur, upplest-
ur, fræðsla
og leiðsögn.
Ókeypis
aðgangur
og allir vel-
komnir.
13.00 Jólasýning Árbæjarsafns er opin
á sunnudaginn frá kl. 13-17. Dagskrá frá
kl. 14. Aðgangseyrir er 600 krónur fyrir
fullorðna, ókeypis fyrir börn, ellilífeyris-
þega og öryrkja.
➜ Leiðsögn
15.00 Ásta Ólafsdóttir verður með
leiðsögn um sýningu sína VEGFERÐ í
Suðsuðvestur, Keflavík, í dag kl. 15. Allir
velkomnir og aðgangur ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Jóladagatal Norræna hússins 1.-23. des. kl: 12.34
Kópavogskirkju sunnudag 19. des. kl. 22.30
Hafnarfjarðarkirkju mánudag 20. des. kl. 21.00
Garðakirkju á Álftanesi þriðjudag 21.des. kl. 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudag 22. des. kl. 21.00
Miðasala við innganginn, miðaverð kr. 2.000 / 1.000
Mozart við kertaljós
Kammertónlist á aðventu 2010
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Garðabæ, Kópavogsbæ og Reykjvíkurborg
Camerarctica
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
MEIRI
GLAMÚR
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook
geta unnið óvænta vinninga í
hverri viku.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!