Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.03.1988, Qupperneq 5

Faxi - 01.03.1988, Qupperneq 5
Formenn Stakks frú upphafi. íaftari nöð: Frímann Grímsson, Þorsteinn Marteins- son og Karl G. Sœvar. Sitjandi: Garðar Sigurdsson og núverandi formaður, Ólafúr Bjamason. Núvemndi stjóm Stakks. íaftari röð eru Jens Hilmarsson, Sœvar Reynisson ogÁmi Ámason. Sitjandi em: Ólajúr Bjamason, formaður og Halldór Halldórsson vam- formaður. þeirri skoðun meðal okkar félaga, að það eitt að vekja áhuga og um- ræður um björgunarmál hér á Suð- umesjum, væri góður árangur af okkar brölti, ekki verður annað séð en að sá árangur hafi skilað sér vel. Einnig hafði miðstýring sú er ríkti hjá Slysavamafélaginu á þessum tíma mikil áhrif á ákvörðun okkar. Arið 1968 þ. 28. apríl komu saman í Skátahúsinu í Keflavík um það bil 30 manns í þeim tilgangi að stofna björgunarsveit, sem svo hlaut nafn- ið STAKKUR. Lögsveitarinnar vom í aðalatriðum sniðin eftir lögum Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði. Var fyrsta stjóm sveitarinnar skip- uð eftirtöldum: Formaður Garðar Sigurðsson, varaformenn Ellert Skúlason ogHerbert Ámason, ritari Jón Tómasson og gjaldkeri Heimir Stígsson. Varastjóm skipuðu þeir, Birgir Olsen, Guðmundur Lárusson og Agúst Guðjónsson. Var reynt að sameina sem flesta þá aðila sem áhuga höfðu og mætti ætla að gætu hðsinnt starfsemi sem þessari, eins og skátafélögin í Njarðvík og Kefla- vík ásamt slysavamadeildinni hér í Keflavík og ýmsum áhugamönn- um, í einu félagi utan allra heildar- samtaka. Þrátt fyrir það að skátafé- lagið í Njarðvíkum sá sér ekki fært að starfa með okkur nema um skamman tíma, hefur þessi aðferð reynst nokkuð haldgóð enn þann dag í dag. Hófst nú starfsemin og gekk þar á ýmsu og skiptust þar á skin og skúrir eins og hjá öðmm félögum. Fljótlega fékk sveitin aðstöðu inni í slökkvistöðinni í Keflavík fyrir tæki sín og útbúnað, sem að vísu var ekki mikill að vöxtum. Húsnæði til fund- arhalda fengum við í skátahúsinu í Keflavík til bráðabirgða. Slysa- vamafélag íslands átti hér í slysa- vamaskýh sínu fluglínutæki til björgunar úr sjávarháska, sem það fól í okkar umsjá og hefur þeim ver- ið haldið við og meðferð þeirra æfð reglulega í góðri samvinnu við eig- endur. Það hafði verið siður hér á ámm áður er björgunarsveit Slysa- vamadeildarinnar var starfandi að hafa sjóbjörgunarsýningu á sjó- mannadaginn. Var farið fram á það við Stakk að taka þennan sið upp að nýju sem og var gert. Svo óheppi- lega vildi til að á einni af fyrstu sýn- ingunum hlaust slys á mönnum er eldur frá línueldflaug komst í vara- flaug sem var skammt frá línubyss- unni. Slösuðust þrír áhorfendur meira og minna vegna bmnasára. Sem betur fer náðu þeir allir góðri heilsu fljótlega og fór þar betur en á horfðist. Óhapp þetta hafði mikil og djúp áhrif á alla félaga sveitarinnar og sýndi á áþreifanlegan hátt, hversu starf björgunarsveita getur verið hættulegt, bæði fyrir þá sem taka þátt í því og ekki síður fyrir þá sem em að fylgjast með störfum þeirra. Sveitinni tókst þó að komast yfir þá örðugleika og vandræði sem af þessu óhappi leiddu og gat greitt þeim aðila sem slasaðist mest, nokkrar skaðabætur. Atvik þetta þjappaði sveitinni betur saman og varð til þess að geiðar vom allmikl- ar skipulagsbreytingar á starfsem- inni. Stakki gekk allvel að afla fjár til starfseminnar og smám saman gat sveitin komið sér upp talsverðum tækjabúnaði að ógleymdri bifreið er félagar byggðu yfir og innréttuðu í frístundum sínum. Er sá þáttur úr starfinu efni í sér blaðagrein því slík ósérhlífni og áhugi sem flestir félag- ar sveitarinnar sýndu í því máli verður seint fullþökkuð. Bæjarsjóð- ur Keflavíkur og sveitarsjóður Njarðvíkurhrepps, veittu sveitinni árlega styrki sem komu í góðar þarfir. Ýmis félagasamtök, fyrir- tæki og einstaklingar urðu einnig til að rétta sveitinni hjálparhönd í formi fjárframlaga, gjafa og fyrir- greiðslu á ýmsan hátt. Allt þetta kom að góðum notum og sýndi fé- lögum sveitarinnar að þrátt fyrir nokkum andbyr sem fylgdi í kjölfar óhapps þess sem fyrr var minnst hér á, naut sveitin trausts og vel- vildar almennings. Ekki má gleyma að minnast á þátt félaganna sjálfra í öflun fjár til starfsemi sveitarinnar og er þar hreint ótrúlegt hve marg- víslegar hugmyndir komu upp í þeim efnum og hve margar þeirra komust í framkvæmd. Sveitarfélag- ar lögðu á sig að ganga í hús í Kefla- vík og Njarðvík til að selja sjúkra- poka, þeir stóðu fyrir tveim kosn- ingagetraunum, gáfu út viðskipta- símaskrá, þeir hafa gengist í því að fá hingað þekkta listmálara til að halda málverkasýningar í fjáröflun- arskyni fyrir sveitina, þeir hafa gengist fyrir torfæruaksturskeppn- um í sama skyni og síðast en ekki síst hafa þeir tekið að sér að flytja heilt hús, steypa undir það gmnn og selja síðan, allt til fjáröflunar fyrir sveitina. Þessar fjáraflanir og ýmsar fleiri sem hér hefur ekki verið getið, urðu til þess að sveitin gat keypt sér sitt eigið húsnæði. Tóku félagar að sér sjálfir að innrétta það til notkun- ar fýrir starfsemina. Hús þetta er 150 fermetra verkstæðishús og er staðsett á svokölluðu Bergi við Keflavík. Sveitarfundir hafa verið haldnir svo til mánaðarlega ffá upphafi og æfingar og önnur starfsemi sveitar- innar ákveðin á þeim fundum í fullu samráði við félagana. Æfingar hefur verið reynt að halda mánaðarlega og námskeið í notkun ýmissa tækja sveitarinnar vom haldin árlega. í því sambandi hefur sveitin notið fyrirgreiðslu Flugbjörgunarsveitar- innar, Hjálparsveita skáta í Reykja- vík og Hafnarfirði ásamt Slysa- vamafélags íslands, sem léðu sveit- inni leiðbeinendur. Sveitin átti því láni að fagna að bjarga nokkmm mönnum úr sjávarháska og veita aðstoð við ýmis björgunarstörf bæði hér í heimabyggð félaga sinna og annars staðar á suðvestur- landi. 'Ihlsvert varð vart við að ekki var leitað til sveitarinnar eins og annarra sveita og mátti eflaust rekja það til sjálfstæðisyfirlýsingar henn- ar. Nú er það ekki þannig að það sé félögunum kappsmál að taka þátt í öllum björgunarstörfum hvar sem er, hvort sem þeirra er þörf eða ekki. Félagar í sveitinni hafa margir fyrir heimilum að sjá og á fyrstu ámm hennar hefur meðalaldur þeirra verið nálægt 30 ámm. Flestir félag- anna fá ekki greiddan þann tíma sem þeir missa úr vinnu, við útköll, þeir setja það þó ekki fyrir sig ffekar en annað þegar útkall kemur. En óneitanlega vafðist það oft fyrir þeim að finna skýringu á því hve þörfin á aðstoð björgunarsveitanna virtist vera svo misjöfn sem raun bar vitni, eftir því undir hvaða merki þær starfa. Sem bemr fer hafa þessi mál lagast mikið með auknu sam- starfi björgunaraðila í landinu. Sveitin hefur aukið meðlimafjölda sinn mikið ffá upphafi, en stofnfé- lagar vom 40, og með nýjum félög- um hafa komið nýir siðir og nýjar hugmyndir. Hefur hin jafna og stöð- uga endumýjun orðið sveitinni til góðs og haft mikil áhrif á starfsemi hennar. Þegar litið er yfir starfstíma Björg- unarsveitarinnar Stakks þá er af mörgu að taka og ekki hægt í stuttri blaðagrein að telja það allt upp, en vert er að minnast á það markverð- asta. FAXI 93

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.