Faxi

Årgang

Faxi - 01.03.1988, Side 12

Faxi - 01.03.1988, Side 12
Guðfinnur Sigurvinsson Til hamingju, Stakkur! Þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst. Hver kannast ekki við þessi orð og þá hughreystingu, sem í þeim felst. Fátt reynir meira á manninn, en þegar erfiðleikar gera vart við sig í hvaða mynd sem það gerist. Á stundum eru erfiðleikarnir persónulegir og þannig vaxnir að erfitt er um vik og fátt eitt, sem í mannlegu valdi stendur getur orðið til hjálpar. Margir leita þá til hans, sem öllu ræður, með bæn um hjálp. Slíkt hefur fært mörgum manninum frið og nýja von og leiðir til að leysa vandann. Menn hafa bundist samtökum um að hjálpa öðrum þegar því verður við komið, má þar nefna björgunarsveitir, slysa- vamafélög, hjálparsveitir o.fl. Við emm það lánsöm hér í Keflavík að eiga aðila, sem vinnur ötullega að slíkum málum, en það er Björgunarsveitin Stakkur, sem nú hefur starfað hér í um 20 ár. Oftar en margan gmnar hafa björgunarsveitarmenn lagt á sig ómælt erfiði við ýmiskonar björgunarstörf og unnið frá- bært starf. Þeir hafa ávallt reynst boðnir og búnir að veita að- stoð. Má þar nefna þegar illviðri hafa gengið yfir, þá hafa þeir hjálpað við að verja mannvirki skemmdum, greiða úr umferð, hjálpa þeim, sem þurfa að komast leiðar sinnar í ófærð og veitt ýmiskonar aðra hjálp. Einnig hefur björgunarsveitin tekið þátt í stærri verkefnum ásamt með sveitum úr öðrum byggð- arlögum m.a. við leit að fólki. Fyrir tveimur árum var ég viðstaddur þegar björgunarsveit- armenn fögnuðu því að vera komnir í framtíðarhúsnæði fyrir starfsemi að Iðavöllum 3 hér í bæ. Það var margt um manninn og á öllu fasi félaganna mátti ráða að hér var saman komin hópur samhenntra manna, sem fögnuðu því að sjá nú árangur vinnu sinnar í hinu nýja húsnæði og ekki var annað að sjá en að eiginkonurnar samgleddust eiginmönnunum þegar árang- ur sameiginlegs átaks blasti við. Húsnæði björgunarsveitarinnar er allt hið vistlegasta og öllu haganlega fyrir komið. Augljóslega er allt skipulag á þann veg að með sem minnstum fyrirvara megi bregðast við og hefja hjálparstarf á sem allra skemmstum tíma. Aðstaða fyrir stjómstöð, sem er mjög mikilvægur þáttur, er góð í heild og er allt skipulag til fyrirmyndar. Með þessari góðu aðstöðu hefur björgunarsveitarmönnum tekist að skapa betri möguleika en áður til að sinna hinu göf- uga áhugamáli sínu, að hjálpa öðmm og veita okkur bæjarbú- um öryggi, sem er ómetanlegt. Faxafélagar færa hinum vöskum félögum í Björgunarsveit- inni Stakki innilegar hamingjuóskir í tilefni af tuttugu ára afrnæli sveitarinnar og þakka af heilum hug allt það, sem þið hafið gert. Megi heill og hamingja fylgja ykkur í göfugu og fórnfúsu starfi. ánægjan af starfinu þó að tíminn væri naumur, tókst okkur halda basar að þrem mánuðum liðnum og vomm við mjög ánægðar með ár- angurinn og gátum lagt dágóða upp- hæð inn á bók til ávöxtunar. Síðan tók við annasamur tími hjá flestum okkar, þar sem jólin fóru í hönd og enginn tími til fundar- halda, en næst er við komum saman þ. 4. febrúar var orðin breyting, því að þá hafði björgunarsveitin flutt í sitt eigið húsnæði, Stakkshúsið á Berginu og þar fengum við starfsað- stöðu og fannst töluvert mikið til um. Á þessum fundi var ákveðið að hafa fundi einu sinni í mánuði og vinna að basar á hausti komanda. Kaffinefnd sá um eitthvað góðgæti með kaffi og síðan að útvega skemmtiheimsókn við góðar undir- tektir og á öðrum fundi var snyrti- vörukynning og síðast en ekki síst fengum við Heimi Stígsson til að sýna myndir og svona mætti lengi telja. Allt gerði þetta mikla lukku og jók á starfsgleðina og fleiri fjáröflunar- leiðir litu dagsins ljós eins og köku- basarar og eins tókum við að okkur að sjá um kaffisölu og meðlæti á Stakksfundum og mæltist það vel fyrir. Á jeppakeppnum sáum við iðulega um veitingasölu og smurð- um jafnvel samlokur til að selja þar og varð af dágóður ágóði. Á Þjóðhátíðarafmælinu 1974 var haldin hátíðarvika og sáu konur úr Kvennaklúbbi Stakks um kaffisölu. Skiptust þær á um að baka og bera fram heitar vöfflur með rjóma og rjúkandi kaffi. Við þetta framtak jókst upphæðin á bankabókinni verulega. Um mitt sumarið árið 1976, tók- um við okkur til og fórum kvöld- stund inn á skógræktarsvæðið við Snorrastaðatjamir og hreinsuðum þar allt msl og drasl af svæðinu. Þetta vakti athygli ráðamanna í Keflavík og var þessa getið í Suður- nesjatíðindum. Ýmsar fjáröflunarleiðir voru ræddar, en aðaltekjulind okkar var jólabasarinn sem haldinn var ann- aðhvert ár eftir fyrstu tvö árin. Var komið saman hálfsmánaðarlega á vinnufundi frá september til apríl- loka. Fyrsta stjómin sat þar til á aðal- fundi 4. febrúar 1976 að ný stjórn tók við og hana skipuðu Elín Guðnadóttir, formaður, Erla Jó- hannsdóttir, varaformaður, Anna Pála Sigurðardóttir, gjaldkeri og Ragnheiður Þórisdóttir, ritari. Það er ánægjulegt í dag að fletta fundar- gerðarbókinni og rifja upp allskon- ar aðstæður sem við vomm að vinna við. Til dæmis þ. 29. mars 1976 hafði verið svo kalt að kyndingin hafði ekki við, en ekki var fundi af- lýst heldur sátu allar í yfirhöfnum og prjónuðu sér til hita. Seinnipart apríl-mánaðar sama ár er sagt frá því að nokkrar af félags- konum hafi farið um páskana í Landmannalaugar og haft með sér prjóna og árangurinn orðið þó nokkrir basarmunir. Þessi félagsskapur okkar starfaði til ársins 1982 en þá virtust ýmsar aðstæður vera að breytast og grund- völlurinn fyrir okkar starfsemi að minnka. Konur fóm að taka meira þátt í björgunarstarfmu sjálfu og stöðugt minnkaði afraksturinn af okkar vinnu enda stærri og fleiri fjáröflunarleiðir í gangi hjá sveit- inni! Félagsstarfið var afskaplega skemmtilegt á meðan það var og hét og vil ég nota tækifærið og þakka félagskonum fyrir samstarfið og ánægjulegar samvemstundir. Saman tók Iiulda Guðrádsdóttir 100 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.