Faxi

Årgang

Faxi - 01.03.1988, Side 20

Faxi - 01.03.1988, Side 20
11 Þakklæti efst í mínum huga — segir Ingimar Guönason í viótali vió Faxa U Einn þeirra fjölmörgu sem komið hafa við sögu hjá Stakk er Ingimar Guðnason. Margir þekkja Ingimar af þeim störfum sem hann hefur gengt um dagana. Hann var m.a. verksmiðjustjóri í Fiskiðju Kefla- víkur meðan hún var og hét, hann stofnaði verslunina Leikhólma og er nú liðsmaður Brunavama Suður- nesja. Við fengum Ingimar til segja okk- ur lítilsháttar frá nokkram þáttum í starfi Stakks, þar á meðal Stakks- húsinu á Berginu, flugeldasölunni, ýmsu í sambandi við leitarstörf og fleira. Stakkhúsið á Berginu Félagsmenn höfðu tekið þá ákvörðun að kaupa hús undir starf- semi félagsins og mörg hús skoðuð gaumgæfilega og á endanum var ákveðið að kaupa hús á Berginu, þar sem í hafði verið rekið bifreiða- verkstæði. í fyrstu var hugmyndin sú, að nota húsið undir bfla og tækjageymslu eingöngu. Þannig hagaði til, að áfast við húsið var skúrgarmur, svo aumur, að hann hélt hvorki vindi né vatni. Við nán- ari skoðun sáu menn, að þama mætti með góðum vilja gera fundar- og kaffiaðstöðu. Var nú ráðist í það verkefni að endurbyggja og innrétta allt húsnæðið. Allt það starf og sá árangur sem náðist var stórkostlegt æfintýri. A nokkram mánuðum með þrotlausri vinnu var hreysi breytt í höll, ef svo mætti að orði komast. Það er ótrúlegt, þegar maður fer að hugsa út í það, hversu mikla vinnu menn gátu lagt í þetta. Vinnudagurinn var ekki fýrr búinn hjá mönnum, en að menn skunduðu á Bergið, kvöld eft- ir kvöld og helgi eftir helgi. Allir vora með. Þama vora góðir verk- menn og fagmenn á ýmsum sviðum sem skiptu með sér verkum eftir því sem hverjum hentaði best hveiju sinni. Auk þess sem áður er getið, þá byggðum við við húsið ágæta snyrtiaðstöðu. Þetta vora skemmti- legir tímar. Leit að týndu fólki Björgunarsveitin Stakkur hefur oft komið við sögu, þegar þurft hef- ur að leita að týndu fólki. Annars staðar í blaðinu er sagt frá nokkram af þessum leitum, en við ætlum að spjalla lítilsháttar við Ingimar um ýmislegt sem upp kemur, þegar svona leit stendur yfir. Það er svo ótrúlega margt sem kemur uppá, þegar kallað hefur verið út til leitar. Utkallið sjálft, að ná mannskapnum saman. Menn era í vinnu og þurfa að stökkva frá Ingimar Guðnason. vinnu sinni. Hvemig á að skipu- leggja leitina, hvar á að leita. Menn leggja af stað í leit knúðir áfram af þeirri vitneskju, að líf fólks getur legið við. Það er mikil alvara og ábyrgð sem hvflir á leitarmönnum. Við spyrjum um samskiptin við lögreglu og almenning, þegar leit stendur yfir, jafnvel í langan tíma. Samskipti við lögreglu hafa alltaf verið mjög góð. Lögreglan hefur oft leitað til Stakks, þegar t.d. ófærð hamlar umferð, eða vond veður geysa. Þá þarf að aðstoða fólk við að komast heim til sín eða festa niður þakplötur sem era að losna, svo eitthvað sé nefnt. Samskipti við al- menning hafa einnig verið góð, enda starfar björgunarsveit eins og Stakkur með og fyrir almenning á svæðinu. Við leitir fáum við oft ábendingar frá fólki og við reynum ávallt að taka þær til athugunar. Atvinnurekendur hafa verið okkur mjög vinsamlegir. Aldrei hefur stað- ið á að gefa sveitarmönnum frí frá vinnu, þegar kallið hefur komið. Sérstaklega var þetta áberandi, þeg- ar leitað var að Geirfinni Einarssyni og einnig Eyjólfi Ben. Ellert Skúla- son og starfsmenn hans lögðu mikið af mörkum, svo einhverjir séu nefndir. Og enn víkur lngimar að sam- skiptum við almenning, því undir- staðan við rekstur félagsins hefur byggst á fjáröflun meðal almenn- ings. Þar hefur aldrei skort á veru- lega góðar undirtektir. Þess vegna hafa menn haft svo gaman af að leggja sig alla fram, því móttökum- ar hafa verið svo góðar. Ég vil t.d. nefna flugeldasölu Stakks, sjúkra- pokasöluna, jeppakeppnina o.fl. o.ll. Við flugeldasöluna hefur skap- ast skemmtileg stemming um hver jól og áramót. Við höfum auglýst söluna í jólaösinni með því að aka á bflnum okkar um bæinn með gjall- 108 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.