Faxi

Volume

Faxi - 01.03.1988, Page 50

Faxi - 01.03.1988, Page 50
Sjóslysaannáll Keflavíkur FRAMHALD AF BLS. 134. unin að koma Síldinni upp að síðu Eldeyjar og dæla síðan sjónum úr skipinu. Ásamatímaáttu tveirbátar að koma taugum í stefni og skut Eldeyjar og halda henni upp í veðr- ið. Mikil hætta var þó á að Eldey og Síldinni slægi saman, því veður versnaði er á kvöldið leið. Ekki er þó Ijóst af fréttum hvort Síldin komst upp að Eldey. Hins vegar stóðu þessar björgunartilraunir yfir I um tvo og hálfan tíma. Án árangurs, enda var Eldey orðin lúgufull af sjó er leið á kvöldið. Um klukkan 2,20 aðfaranótt 23. október, var Eldey yfirgefin og sökk hún fljótlega á eftir. Mun lokaður hvalbakur skips- ins hafa haldið því svo lengi á floti, sem raun varð á. Skömmu síðar kom fram við sjó- próf, sem voru haldin í Keflavík, að ein aðalorsök slyssins, hafi verið sú, að gangar undir bátaþilfari hafi verið opnir og hurðir óþéttar. Sjór komst því lítt hindraður niðrí skipið. Eldey var fallegt skip, 150 lestir, smiðuð í Noregi 1960. Hún var úr stáli og eitt fullkomnasta og best búna fiskiskip, sem Keflvíkingar áttu þá. Sennilega var Eldey með fyrstu bátum hér, sem var með kraftblökk, til síldveiða. Eldey var svört á lit, hvítir einkennisstafir á kinnungum framanverðum. Fremst á stefni og á reykháf var máluð mynd af Eldey við Reykjanes, sem báturinn hét eftir. Var þetta mjög falleg mynd, með fallegri skor- steinsmerkjum, sem annálshöfund- ur hefur séð á íslenskum bátum. Yfirbygging Eldeyjar og hvalbakur var hvítt að lit. Möstur þó gul að annálshöfund minnir. Eigandi Eldeyjar var samnefnt hlutafélag, en aðaleigandi var Jóhannes Jóhannesson frá Gauks- stöðum, útgerðarmaður í Keflavík. Eldey kom mjög við sögu 1964 er hún bjargaði Kötlu I Keflavíkurhöfn. (Sjá hér að framan.) (Mbl. 24. okt. 1965: „Eldey frá Keflavík sökk í fyirinótt“. Þjóðviljinn 24. okt. 1965: „Síldar- skipið Eldey sökk í fyrrinótt“. Tíminn 23. okt. 1965: „TVö sfldar- skip á hliðna“. Tíminn 24. okt. 1965: ,,Eldey sokkin“. Mbl. 26. okt. 1965: ,,Opnir gangar og óþéttar hurðir meginorsök fyrir því að Eldey sökk“. Faxi, nóv. blað 1965, bls. 150. Frétt.). 1966 Eldur í v.b. Rán Aðfaranótt sunnudagsins 3. apríl 1966, um kl. hálf þrjú, kom upp eld- ur í kortaklefa vélbátslns Ránar SU, sem lá við bryggju í Keflavík. Breiddist eldurinn þaðan niður í ká- etuna. Skipstjórann bar að I sömu svifum og hélt hann, að einhver væri sofandi niðri í káetunni. Snar- aðist hann þangað niður við illan leik. En þar var enginn. Kallaði skip- stjóri þvl næst á slökkviliðið. Vegna þrengsla aftur í bátnum var mjög erfitt að slökkva eldinn. Lauk slökkvistarfi ekki fyrr en á sjötta tímanum um morguninn. Eyðilögð- ust öll tæki I stýrishúsinu. Hásetar sváfu frammi í lúkar og urðu einskis varir fyrr en skipstjóri vakti þá. Rán var 56 lesta eikarbátur, smíð- aðuríDanmörku 1958. Báturinn var keyptur til Kef lavíkur 1964, en gekk áður frá Fáskrúðsfirði, og bar þá einkennisstafina SU 58. (Vísir 4. apríl 1966: ,,Miklar skemmdir af eldi í m.b. Rán. Mbl. 5. aprfl 1966: ,,Bátur skemmist af eldi“). 1967 Hjólaði fram af bryggju í Keflavík Hinn 1. nóv. 1967, lá v.b. Glaður KE við bryggju I Keflavíkurhöfn. Um hádegisbilið var níu ára drengur að leik á hjóli þar á bryggjunni. Hjólaði hann fram af bryggjunni og lenti ofan í bátnum. Við læknisskoðun kom í Ijós, að drengurinn hafði brák- ast á rifbeini, að öðru leyti sakaði hann ekki. (Þjóðviljinn 2. nóv. 1967. Stutt frétt). Framhald í næsta blaði I 138 FAXI i #&«* fí1" v rr ) £,^rS%St 4 ,AF BOKUM í orstutm am Suðumesjamenn á bókamarkaði í síðasta Faxa varð mév heldui' betur á. Þar gleymdi ég að geta Gests Auðunssonar. En Gestur gaí út bók sem á enga sér líka í annars fjölskrúðugri bókaút- gáfu á síðasta ári. Bók Gests er niðjatal Guðmundar Loftssonar bónda í Holti í Mýrdal. Gestur tók saman allt efni bókarinnar og gaf þar að auki út á sinn kostnað. Það sem er ekki síst merkilegast við þessa bók er að hún er handskrifuð. Bókin er skínandi vel unnin, og rithöndin er hin glæsilegasta. Það var svo sterkt til orða tekið í stuttri kynningu á bókinni í Morgunblaðinu fyrir nokkmm vikum, að bókinni var líkt við fomritin. Átti Elín Pálmadóttir varla orð til að lýsa hrifningu sinni á þessari bók. En það er skemmtilegt til þess að hugsa að enn sé verið að handskrifa bækur á þessari tækniöld. Og bera svo saman nútíma tækni við texta- vinnslu og allar þær framfarir sem orðið hafa í prentiðnaðinum. Bókin er ljósrituð og öll hin fallegasta. Myndimar sem fylgja grein þessari em af Gesti við púltið sem hann skrifar við og sýnishom úr bókinni. Upphafsstafimir em teiknaðir og í lit sem kemur reyndar ekki fram á myndinni. Þorsteinn Marteinsson t

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.