Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Blaðsíða 7
IÐUNN
]ón A. Hjaltalín
skólastjóri á Möðruvöllum.
]ón A. Hjaltalín er fæddur 21. marz 1840 á Stað í
Súgandafirði. Faðir hans var Andrés, síðast prestur í
Flatey á Breiðafirði, Hjaltason prófasts á Stað í Stein-
grímsfirði d. 1842, Jónssonar prófasts á sama stað d.
1810, Sveinssonar prests í Hvammi í Norðurárdal d.
1752, Guðlaugssonar bónda í Staðarsveit, Tómassonar.
Kona séra Andrésar og móðir Hjaltalíns var Margrét
Asgeirsdóttir bónda á Rauðumýri á Langadalsströnd,
Asgeirssonar. Kona Hjalta prófasts var Sigríður Guð-
brandsdóttir prests á Brjánslæk, Sigurðssonar. Kona
]óns prófasts var Guðríður ]ónsdóttir lögréftumanns á
Háafelli, Vigfússonar. Kona séra Sveins var Helga
]ónsdóttir prests á Stað á Olduhrygg, ]ónssonar pró-
fasts í Belgsdal, Loftssonar, Arnasonar, Péturssonar,
Loftssonar, Ormssonar, Loftssonar ríka Guttormssonar.
Eins og sjá má, voru það sterkar ættir er að Hjaltalín
stóðu, enda var manninum ekki fisjað saman.
Hjaltalín kom í lærða skólann 1855 og útskrifaðist
þaðan 1861 með I. einkunn. Síðan gekk hann á Presta-
skólann og lauk þar prófi 1864, einnig með I. einkunni
Þann 23. maí 1863 kvæntist hann Guðrúnu Margrét.
ISunn XI. 1