Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Síða 8
2
Jón A. Hjalfalín.
IDUNN
dóttur Jóns landlæknis Thorstensen. Hún andaðist 12.
júní 1903. Ekki varð þeim barna auðið. en fósturbörn
ólu þau upp nokkur. Þar á meðal Ásgeir Sigurðs-
son konsúl og stórkaupmann í Reykjavík, bróðurson
Hjaltalíns.
Á stúdentsárum Hjaltalíns var mikið og fjörugt fé-
lagslíf í Reykjavík. Þá var »Kvöldfélagið« í blóma
sínum. Var Hjaltalín einn af stofnendum þess og tók
mikinn þátt í umræðum á fundum. Hann var þá gleð-
skaparmaður mikill, vel máli farinn og þótti gott skáld.
Orti hann allmikið á yngri árum, en síðari hlut æfinnar
mun hann ekki hafa fengist við skáldskap. Skoðaði
hann kvæði sín og kveðskap eins og barnaskap, sem
hann vildi helzt ekki tala um. Fáein af kvæðum hans
hafa verið prentuð. Sum eru til í handritum, en mörg
munu vera glötuð.
Um það leyti, sem Hjaltalín lauk guðfræðisprófinu,
var hann orðinn því fráhverfur að taka prestvígslu, enda
mun honum þá hafa fundist, að hann gæti ekki í öllu
fylgt kenningum kirkjunnar. Hann var tvö ár embættis-
laus í Reykjavík og vann fyrir sér með kenslu, en árið
1866 réðist hann til utanfarar ásamt konu sinni, og
dvöldu þau síðan í Englandi þangað til 1880, nema
veturinn 1868—69, er þau voru í Kaupmannahöfn.
Þegar Hjaltalín fór til Englands átti hann enga at-
vinnu vísa, þótti því mörgum þetta fremur ógætilegt,
því ærið er torsótt fyrir útlendinga að komast áfram í
Englandi. Hann hafði fyrst ofan af fyrir sér með kenslu-
störfum, fyrirlestrum, einkum um íslenzk efni, og með
því að skrifa í blöð. Fékk hann brátt gott orð og kynt-
ist ýmsum merkum mönnum. Þann 9. apríl 1868, var
hann ásamt konu sinni kvaddur á fund Viktoríu drotn-
ingar á Windsor Castle. Þar var margt tigið fólk saman-