Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 79

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 79
idunn Georg Brandes, 73 sínum tíma og skerfur sá, er hann lagði til bókmenta og menningarmála, metinn til verðs. Enginn þarf að kvíða þeim dómi. Jafnvel þótt nokkrir mínusliðir kynnu að koma í ljós, er engin hætta á að þar verði um þrotabú að ræða. Þótt verk hans verði gagnrýnt, þá er það sízt að harma. Hitt væri honum meiri vansæmd, ef enginn dirfðist að hagga við niðurstöðum hans. Alt hans uppeldisstarf meðal ynsr' kynslóðarinnar stefndi einmitt að því, að ala upp athugula og sjálfstæða menn, sem ekki víla fyrir sér að víkja út af troðnum brautum. IV. Það hefir oft verið sagt og endurtekið — einnig í þessari grein — að Brandes væri sú hin vígreifa hetja, borinn til stríðs og styrjalda. Og vitanlega er það rétt, að líf hans og starfsemi einkennist af erjum og ófriði. En er nú þetta sannleikur inn til kjarnans? Er það allur sannleikurinn um Brandes? Atti hann að eðlisfari þessa vígólmu víkingslund, sem þráir að berjast bardag- ans vegna? Vér vitum að hann var vanur að henda á lofti hverja hnútu, er til hans var kastað. Vér vitum líka að hann lét sjaldan ónotuð þau tækifæri, er buðust til að spenna bogann og leggja ör á streng. Alkunnugt er og það, að örvar hans flugu hart og hæfðu að jafnaði markið. Samt sem áður liggur nærri að ætla að lífið hafi fært honum meir af beiskum erjum og illdeilum en hann kærði sig um. Þrátt fyrir leifturskýran skilning hans, hvössu dómgreind og köldu glöggrýni — alt eigin- leikar, er sýna vitsmuna-yfirburði hans, er þó ýmislegt, sem bendir til þess, að í djúpinu hafi búið annar Brandes, sem aldrei fékk að njóta sín til fulls: draum- sjónamaðurinn, sveimhuginn, skáldið. Hinn ljóðræniv

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.