Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Side 40

Frjáls verslun - 01.02.2002, Side 40
„Maður sér alltofmörg dæmi um Jýrirtœki sem skjótast upp á himininn eins og rakettur og hljóta síðansömu örlög, springa með Ijósadýrð oghverfa útímyrkrið,“segirÞórarinn ogbætirvið:„Við höfum engan áhuga á pví. Allt sem við höfum gert fram að pessu til að leggja grunninn að starf- semi Blájugls hefur verið á annan veg. Við erum hér til langframa. Við höfum úthald og orku og œtlum að nýta það skynsamlega. “ kominn tími til að gera upp við sig hvað maður ætlaði að gera. Synir okkar tveir voru orðnir, eða voru að verða, mjög amerískir. Það var svo sem ekkert slæmt en við vildum gefa þeim tækifæri til að verða Islendingar á íslandi, þannig að við tókum þá ákvörðun að flytja til íslands. Þetta var ijölskyldu- ákvörðun. Menn sögðu þá eins og þeir segja nú: „Hann hlýtur að vera vitlaus, maðurinn!“,“ segir Þórarinn. A Islandi kom hann undir sig fótunum sem ráðgjafi og sérfræðingur í flugfrakt og vann í nokkur ár að verkefnum um allan heim íyrir erlend flugfélög, flugvelli og flutningsmiðlanir. Hann var enn starfandi á því sviði þegar hann fór að skoða íslenska fraktmarkaðinn ásamt nokkrum öðrum mönnum árið 1993. Þeir voru fjórir sem stofnuðu fyrirtækið Flugflutninga og smám saman sogaðist Þórarinn út úr erlendu ráðgjafarverk- efnunum og inn í íslensku starfsemina. „Eg var mjög sáttur við þetta. Eg var orðinn ansi þreyttur á ferðalögum og heimsbrölti þannig að þetta hentaði mér ágætlega. Að hluta til er þessi upp- bygging hjá Bláfugli komin til vegna þess að ég er ánægður með að búa á Islandi og þarf að fá útrás fyrir orkuna einhvers VIÐTflL HflFNflÐl FORSTJÓRflSTflRFI staðar," segir hann og bætir við að „þetta Cargoluxævintýri“, þ.e.a.s. forstjóra- starfið, hafi komið upp áður. Viðurkenning að fá boðið ,Árið 1994 urðu forstjóraskipti hjá Cargolux og þá höfðu þeir samband við mig og vildu ræða við mig um það starf. Á þeim tíma hafði ég áhuga en þeir völdu annan mann, sem var fulltrúi Lufthansa, næst- stærsta hluthafans á þeim tíma. Sá maður hætti í maí á síðasta ári og þá fór Cargolux að leita sér að nýjum forstjóra. Cargolux hafði samband við mig síðasta haust og ég átti við þá viðræður. Það endaði með því að þeir buðu mér starfið og við áttum nánari viðræður um það boð en ég tók að lokum þá ákvörðun að þiggja boðið ekki. Þó að það væri mikil viðurkenning og virðing að koma til greina og vera boðið forstjórastarfið þá var tímasetningin ekki hentug. Ég er í miðju kafi að byggja upp mjög spenn- andi fyrirtæki og þó að Cargolux sé líka spennandi, mun stærra, alþjóðlegra og öflugra, þá var engan veginn hægt að snúa bakinu við öllu því sem ég var búinn að leggja inn í Bláfugl og hætta að takast á við þau tækifæri sem blasa við fyrirtækinu, bæði nær og íjær. Það var höfuðástæðan. Ég gat ekki hugsað mér að snúa baki við þessu barni hérna og ég veit að starfsmennirnir hér eru mjög sáttir við þá ákvörðun.“ Springa með Ijósadýrð Þórarinn telur að það taki þrjú til fimm ár þangað til Bláfugl er búinn að slíta barnsskónum og ná fullum þroska. „Við höfum markað þá stefnu að láta fyrirtækið vaxa markvisst en ekki of hratt. Við vildum vera viss um að við gætum tekist á við öll þau verkefni sem við tækjum að okkur og yxum þá frekar hægar ef þess þyrfti. Við erum núna i stell- ingum að bæta við annarri vél og ég á von á að hún verði komin í rekstur um mitt ár. Það er ekkert markmið fyrir okkur í sjálfu sér að verða stórt fyrirtæki hratt. Það er nokkuð augljóst að það er mikilvægt öllum fyrirtækjum að vaxa en það er jafn- framt mikilvægt að sá vöxtur sé eftir einhverri áætlun, sé mark- Bláfugl velti einum milljarði króna í fyrra Bláfugl er með eina vél í rekstri, Boeing 737-300F, far- þegaflugvél sem breytt var í flutningavél í Banda- ríkjunum. Félagið flýgur fimm sinnum í viku frá Keflavík til Edinborgar, Kölnar og til baka gegnum Bretland til ís- lands og einu sinni í viku á milli Keflavíkur og Lúxemborgar. Þórarinn Kjartansson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Eignaraðild er dreifð en hluthafar eru um 40 talsins. Helstir eru Einar Olafsson stjórnarformaður, sem var fyrsti forstjóri Cargolux, Ulfur Sigurmundsson hagfræðingur, Þór- arinn Kjartansson framkvæmdastjóri, Skúli Skúla- son, framkvæmdastjóri Flugflutninga, ýmsir aðilar tengdir þessum mönnum og starfsmenn Bláfugls. Heildarhlutafé er um 250 milljónir króna. Fyrir- tækið velti einum milljarði fyrsta starfsárið og var reksturinn réttu megin við núllið en hagnaður er ekki gefinn upp. Starfsmenn eru 21 talsins, þar af ellefu flugmenn. Von er á annarri flugvél í rekstur um mitt þetta ár. SQ 40
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.