Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 73
Glitnir er til húsa í íslandsbanka, Kirkjusandi.
Ráðgjafar Glitnis skoða huaða fjármögnunarleið hentar í huerju
tilfelli fyrir sig. Glitnir leggur áherslu á skjóta afgreiðslu
umsókna.
^ Glltnir
Kirkjusandi • www.glitnir.is
Sími 560 8800 • Fax 568 8810
Leigugreiðslur vegna fjármögnunar eru gjaldfærðar
í skattuppgjöri. Tækið er því ekki eignfært né afskrifað
í skattuppgjöri þótt slíkt sé gert í fjárhagsuppgjöri.
Þegar leigutími er styttri en afskriftartími tækis mynd-
ast nokkurs konar flýtifyrning sem leiðir til lægri skatt-
greiðslna á leigutímanum. Fjármögnunarleiga verður
því oft hagstæðari en þegar um lánsfjármögnun er að
ræða. „Við vinnum náið með fyrirtækjum að útfærslu
fjármögnunar sem hentar starfsemi hvers og eins,"
segir Þórður. „Það er t.d. mismunandi hvað hentar
hverju fyrirtæki varðandi leigugreiðslurnar. Þær geta
verið breytilegar innan ársins og tekið þannig mið af
væntanlegu tekjustreymi. Eins er hægt að taka mið af
erlendri myntkörfu eða íslenskum krónum eða sam-
blandi af innlendum og erlendum gjaldmiðlum, allt eftir
því hvað hentar viðkomandi fyrirtæki."
Rekstrarleiga bifreiða
Þórður segir mikla aukningu hafa verið í rekstrarleigu bifreiða
undanfarið en rekstrarleigan er unnin í samstarfi við bifreiðaum-
boðin. „Fyrirtæki og opinberir aðilar nota þessa leið í vaxandi mæli
varðandi fólksbifreiðar og minni atvinnubíla sem notaðir eru í starf-
seminni," segir hann. „Þetta var fyrst kynnt hér á landi árið 1996
af Glitni og vöxturinn hefur verið stöðugur síðan. Venjulega eru
gerðir samningar til 24 eða 36 mánaða og innifalið í mánaðarlegri
leigu er notkun, viðhald og þjónusta. Bílunum er svo skilað í lok
samnings og þannig losna fyrirtæki undan áhættu við endursölu
þeirra. Þeir sem slíka samninga gera eru þannig alltaf á nýlegum
bifreiðum sem líta vel út og eru öruggir í rekstri og styðja þannig
við jákvæða ímynd fyrirtækisins. Bifreiðin er ekki eignfærð hjá
leigutaka og eru leigugreiðslur því gjaldfærðar."
Útreikningar á vef og sjálfvirk svörun umsókna
Einfalt er að finna út fyrirfram hvernig greiðslur verða miðað við
ýmsar forsendur og mismunandi fjármögnunarform með því að
notfæra sér reiknivélar Glitnis sem eru á heimasíðu fyrirtækisins,
www.glitnir.is. Þar er einnig að finna mjög ítarlegar upplýsingar
um allar fjármögnunarleiðir. Viðskiptavinir geta sótt um fjár-
mögnun á vefnum með sérstökum umsóknum. Þegar um bílafjár-
mögnun er að ræða eru umsóknir afgreiddar að stórum hluta á
sjálfvirkan hátt. Svar við umsókn berst því oftast mjög fljótt, hvort
sem sótt er um utan eða innan venjulegs vinnutíma. Þegar um
tækjafjármögnun er að ræða þarf oft frekari upplýsingar en
komast fyrir í umsókn þar sem venjulega er um meiri fjárfestingu
að ræða. Slíkar umsóknir eru alla jafna afgreiddar á innan við
sólarhring frá því nauðsynlegar upplýsingar liggja fyrir en ráð-
gjafar okkar eru ávallt reiðubúnir að veita viðskiptavinum ráðgjöf
varðandi fjármögnun að sögn Þórðar. 99
Markaðshlutdeild
fjármögnunarfyritækja 2001
SP Fjármögnun 19%
Lýsing 35%
Glitnir 46%
AUGLÝSINGAKYNNING
73