Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2003, Page 20

Frjáls verslun - 01.01.2003, Page 20
skiptavin. í landinu voru til tölvulagerar fyrir um tvo milljarða króna. Til að losa sig við þennan mikla lager og til að geta borgað fastan kostnað einbeittu menn sér að því að selja vörurnar og hættu jafnframt að leggja jafn mikið upp úr fram- legðarprósentunni. Þeir treystu á að ná inn framlegðinni á þjónustunni. Dýrkeyptar breytinyar Ýmis kostnaður og taprekstur vegna nýfjárfestinga hafði sitt að segja. íslensk miðlun var endan- lega lýst gjaldþrota og tapaði Tæknival um 120 milljónum á þvi. Rúnar Sigurðsson hafði um nokkurt skeið talað ákaft fyrir því að kaupa einkaleyfi til að hefja rekstur Office 1 stór- markaðar hér á landi að bandarískri fyrirmynd og var slík verslun opnuð með pomp og pragt í Skeifunni í m;irs 2001. Ýmislegt annað hafði líka sitt að segja, BT-verslunum var t.d. ijölgað verulega, þeim breytt og þær stækkaðar. Öllum þessum ákvörðunum fylgdu mikil ijárútlát og kostuðu þær fyrirtækið alls 200-300 milljónir króna. Office 1 gaf ekki mikið af sér, a.m.k. ekki til að byrja með. „Það var lagt í mikinn kostnað á erfiðum tímum. Allur þessi kostnaður hverfur ekki, hann hangir bara í stuðaranum hjá þér,“ segir heimildarmaður. Þá bættist við alltof lítill veltuhraði. Um ára- mótin 2000-2001 var efnahagsreikningurinn upp á 2,9 millj- arða og veltan 5,8 milljarðar. Ari síðar námu tekjurnar 5,1 milljarði og efnahagsreikningurinn 2,2 milljörðum. Sumarið 2001 voru fyrirtækin Aco og Tæknival sameinuð í Aco-Tæknival fyrir tilstuðlan Búnaðarbankans að talið er. Tæknival stóð illa ijárhagslega og var vonast til að það yrði góður varnarleikur í yfirvofandi samdrætti að samnýta ýmsan kostnað hjá þessum tveimur fyrirtækjum. I ágúst var Magnús Norðdahl, sem þá hafði verið forstjóri Tech Data í Noregi um árabil og rifið það fyrirtæki upp úr mikilli lægð, ráðinn til Aco-Tæknivals. Átti hann að stýra ijármálum, upplýsingatækni og vörustjórnun, og sjá til þess að rekstur fýrirtækisins væri innan eðlilegra marka. Árni Sigfússon sagði starfi sínu lausu í október og tók Magnús við fyr- irtækinu. Við þessar aðstæður ríkti hálfgert stríðsástand í fyrirtækinu og fóru kraftar nýs forstjóra að mestu leyti í að sameina starfsemina og halda sjó í rekstrinum. Sameining er alltaf áhættusöm enda er sagt að reynslan sýni, bæði erlendis og innanlands, að 80 prósenta líkur séu á því að samruni skili ekki tílæduðum árangri. Þannig varð hjá Aco-Tæknival. Þjónustustigið hrundi og samkeppnisaðilarnir náðu af þeim 700-800 millj- óna króna viðskiptum. Viðskiptavinir og birgjar fóru með við- skipti sín annað og salan á sumum tölvumerkjum féll niður. Sameiningin Óheppileg Það kom í hlut Magnúsar að búa til nánast nýtt fyrirtæki, skipuleggja innviðina frá grunni, raða saman fólki og skera niður innan fyrirtækisins. Birgðir og viðskiptakröfur voru skornar niður um einn milljarð á einu ári og þóttí frábært. Starfsmönnum fækkaði úr ríflega 300 í um 180 um síðustu áramóL Velta sameinaðs fyrirtækis hefði átt að nema um 6,6 milljörðum króna á ári, eða a.m.k. 5,8 milljörðum ef ársvelta Aco upp á 1,6 milljarða og Tæknivals upp á 4,2 milljarða er lögð saman. Það gekk ekki eftír. Veltan var aðeins rétt rúrnir 4 milljarðar króna. Mikill sölu- og sam- keppnisandi hafði verið í Tæknival, þar voru góðir sölumenn í starfi en það dugði ekki til, svarið fólst ekki lengur í því að auka söluna. Losarabragur var á fyrirtækinu og allur tími stjórnenda fór í að leysa fortíðarvandamál og hreinsa til, bjarga rekstrinum frá degi tíl dags. „Sameiningin var mjög óheppileg aðgerð fyrir félögin. Það þurftí að fara strax í það að útvega fjármagn. Það var stór bití sem menn voru kannski ekki tílbúnir tíl að takast á við,“ segir einn viðmælandi Fijálsrar verslunar. Hopað rólega allan tímann Farið var í hlutafláraukningu sem skilaði 550 milljónum króna haustið 2001. Búnaðarbank- inn, sem var viðskiptabanki fyrirtækisins, keypti hlut fyrir 50 milljónir, sölutryggði 200 milljónir og gaf út skuldabréf með breytíréttí upp á 250 milljónir. Opin kerfi keyptu svo fyrir 50 milljónir króna, sem fyrirtækið seldi Straumi skömmu síðar 1978 1983 1990 1995 1997 Aco stofnað af Áka Jónssyni til að þjónusta bandaríska herinn. Aco fékk smám saman Apple-umboðið og síðan Sony, Panasonic o.fl. Si Tæknival hf. stofnað af Rúnari Sigurðssyni. aga ATV Tæknival sameinaðist Hugtaki hf. og 1992 Sameind hf. Samstarf við Opin kerfi hófst 1993. Fyrsta BT-verslunin var opnuð í Skeifunni árið 1995. Önnur verslun 1998 og þrjár til við- bótar 1999 og svo koll af kolli, bæði á lands- byggðinni og höfuð- borgarsvæðinu. BT- verslanirnar eru nú sex talsins. Tæknival sameinast TDK og meirihluti keyptur í Kerfi hf. 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.