Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 49
NÆRMYND ÞÓRÓLFUR ÁRNASON
alltaf verið stutt í léttleikann. Hann undirbúi alla viðburði
mjög vel. Einhvern tímann ku Þórólfur hafa sagt: „Maður
lætur ekki hlutina gerast einhvern veginn, maður ákvcður
hvernig maður vill að þeir gerist"
Gylfi Rútsson, framkvæmdastjóri íjármála- og rekstrar-
sviðs Pharmanor, sem starfaði með Þórólfi hjá Tali sem
framkvæmdastjóri fiármálasviðs segir: „Þórólfur er að mínu
mati mjög alhliða sterkur stjórnandi, sem fyrir utan sína
rnarkaðsþekkingu og styrkleika í mannlegum samskiptum,
hefur mikla fiármálalega vitund og tilfinningu fyrir fiár-
málum og er fljótur að setja sig inn í mál. Þegar hann hóf
störf hjá Tali þá hjálpaði starf hans í stjórn Islenska járn-
blendifélagsins á Grundartanga honum við að setja sig inn
1 þau fiármálahugtök og skilgreiningar sem hinir erlendu
eigendur Tals notuðu mikið. Jafnframt er hann mikill per-
sónuleiki og heiðarlegur maður.“
Þórólfi líður vel í sviðsljósinu. Hann á auðvelt með að
fyrirgefa.
Gallar Þórólfur er ör, óþolinmóður og stundum skap-
bráður og fljótfær, maður sem er fljótur upp en líka fljótur
niður aftur. Hann vill „tækla hlutina strax“.
Þetta eru gallar sem hann veit af og hafa slípast
með árunum. Guðjón segir að stundum láti
hann tilfinningarnar taka völdin og Árni Páll
Segir að Þórólfur megi helst gæta sín á því að
®tla sér ekki um of í greiðvikni við aðra.
Ahugamál Sveitamennska, útivera og knatt-
spyrna, bæði þátttaka og áhorf. Þórólfur er
alinn upp í Kópavogi og þess vegna slær hjarta
hans með Blikunum. Hann spilaði knattspyrnu
með meistaraflokki Breiðabliks á yngri árum
en meiddist snemma og varð að hætta. Hann er
samt rogginn af árunum í boltanum og vill
raeina að hann hefði getað náð lengra. Þórólfur
hefur gjarnan spilað með Blikum 40 ára og eldri
a pollamótum fyrir norðan og getur þá orðið
„alveg trítilóður, jafnvel svo að liggur við slags-
aiálum.“ Hann er stuðningsmaður Manchester
United og spilar vikulega með félagsskap
aiiðaldra karla sem kalla sig Lunch United.
Einnig hefur hann leikið fótbolta með gömlum
Elikum í félagsskap sem kallaður er Augnablik.
hórólfur er mjög virkur í félagsmálum og hefur
tekið að sér fiölda trúnaðarstarfa, ekki síst í for-
eldrastarfi í leikskóla, skóla og íþróttafélögum,
bd. hjá Val. Hann hefúr stundum mátt passa sig
a því að taka ekki of mikið að sér. Fjölskyldan á
sumarhús á Mýrum, í nágrenni við æskuslóðir
hórólfs, og þar hefur Þórólfur gaman af að
ganga á fiöll og fara á ijúpu. Þórólfur hefur
ahuga á listum; tónlist, bókmenntum og mynd-
hst. Hann hefur ekki verið áhugamaður um
sfiórnmál eða gengið í neinn stjórnmálaflokk
°g alls ekki viljað tengjast stjórnmálum. Það
kom því mörgum á óvart þegar hann tók
akvörðun um að setjast í borgarstjórastólinn í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Þórólfur var í framkvæmdastjórn for-
setaframboðs Olafs Ragnars Grímssonar en leit ekki á það
sem stjórnmál, heldur persónukosningu.
Félagar Þórólfur er vinmargur maður og fiölskyldu hans
er gott heim að sækja, um það eru allir viðmælendur
Fijálsrar verslunar sammála. Of langt mál yrði að telja upp
alla þá samstarfsmenn og vini sem Þórólfur hefur eignast í
gegnum tíðina en að öðrum ólöstuðum má nefna Davíð
Lúðvíksson, verkfræðing hjá Samtökum iðnaðarins, Asgeir
Sigurvinsson, knattspyrnuráðgjafa hjá KSI, Höskuld
Sveinsson arkitekt, Rúnar Oskarsson, verkefnastjóra hjá
Ax hugbúnaðarhúsi, Hafliða Loftsson, eiganda Verkfræði-
stofu Hafliða Loftssonar, Jón Georg Ragnarsson, eiganda
JGR heildverslunar í Borgarnesi, Pál Valdimarsson verk-
fræðiprófessor, Hauk Sveinbjörnsson bónda, Geir A.
Gunnlaugsson, framkvæmdastjóra Hæfis, Friðfmn Finn-
bogason, kaupmann í Vestmannaeyjum, Pál R. Sigurðsson
verkfræðing, Bjarna Valtý Guðjónsson, frænda og vin úr
Borgarnesi, og séra Sigurjón heitinn Einarsson, fv. prófast
á Kirkjubæjarklaustri. ffl
49